„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Friður í Evrópu! Heimsstyrjöldinni síðari lauk formlega í dag árið 1945

Sig­ur­dagur í Evrópu er hald­inn hátíð­lega víða um heim í dag. Þennan dag árið 1945 end­aði heims­styrj­öldin hin síðar form­lega með upp­gjöf Þjóð­verja.

Friður í Evrópu! Heimsstyrjöldinni síðari lauk formlega í dag árið 1945
Frá und­ir­ritun upp­gjafar Þjóð­verja 8

Síðari heims­styrj­öldin stóð yfir frá árinu 1939 til 1945. Styrj­öldin teygði anga sína frá Evrópu til Banda­ríkj­anna, Asíu og Afríku. Rúmlega 30 lönd áttu í beinum átökum. Meiri­hluti þjóða heims komu óbeint að stríð­inu.

Heims­styrj­öldin er mann­skæð­asta stríð sem háð hefur verið. Tala lát­inna er metin frá fimm­tíu til 85 millj­ónir manna.

„Vitað er að samn­ingar um skil­yrð­is­lausa upp­gjöf voru und­ir­rit­aðir í bæki­stöðvum Eisenhowers í fyrr­inótt,“ sagði á for­síðu Morg­un­blaðs­ins, 8. maí árið 1945. Þar kemur fram að Noregur sé nú frjáls á ný. Noregur var her­tek­inn af Þjóð­verjum í stríð­inu.

Forsíða Morg­un­blaðs­ins 8. maí 1945.

„Friður í Evrópu! Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa sigrað fas­ista­ríkin,“ segir for­síða Þjóð­vilj­ans í til­efni form­legra stríðsloka. Þjóð­vilj­inn fjall­aði um morðið á Guðmundi Kamban rit­höf­undi í Kaup­manna­höfn. „Sú fregn hefur borist frá Kaup­manna­höfn að danskir föð­ur­lands­vinir hafi skotið Guðmund Kamban rit­höf­und,“ segir á for­síðu blaðs­ins. „Fóru þeir til hans inn í mat­sölu­hús og báðu hann um að koma með sér, en hann neit­aði og bjóst til varnar og var þá skot­inn.“ Þjóð­vilj­inn segir einnig að full­sannað sé talið að hann hafi haft sam­vinnu við Þjóð­verja á her­náms­ár­unum.

Forsíða Þjóð­vilj­ans 8. maí 1945.

Sveinn Ein­ars­son er höf­undur ævi­sögu Guð­mundar Kamban sem kom út árið 2013. Sveinn dregur hug­myndir um að rit­höf­und­ur­inn hafi verið nas­isti af raun­veru­legri trú í efa.

Styrj­ald­ar­lok í Evrópu í dag sagði Tíminn árið 1945. Blaðið gerir frjálsa Danmörku að for­síðu­frétt og birtir mynd af Krist­jáni tíunda.  „Síðan íslenska lýð­veldið var stofnað á síð­asta ári hefur eng­inn atburður vakið jafn­mik­inn fögnuð hér á landi og frelsun Dan­merkur. Strax þegar fregnir um upp­gjöf þýska hers­ins í Danmörku barst hingað að kvöldi fjórða þessa mán­aðar voru fánar víða dregnir að hún og allan næsta dag blöktu fánar á stöng víðs vegar ´sveitum, þorpum og kaup­stöðum lands­ins.“ Blaðið segir þessi við­brögð sýna hve sterkan bróð­ur­hug íslensk þjóð hafi til Dana.

Tíminn 8. maí 1945.

„Skil­yrð­is­laus upp­gjöf þjóð­verja und­ir­rituð kl. 2.41 í fyrr­inótt í Rheim,“ segir Vísir. Síðan rekur upp­haf stríðs­ins frá inn­rásinni gegn Póllandi. Þá segir blaðið frá fyr­ir­skipun Heinrich Himmler, arki­tekt helfar­ar­innar, um að allir fangar í Dachau fanga­búð­unum skyldu myrtir. „Her­sveitir Banda­ríkja­manna hafa kom­ist yfir fyr­ir­skipun frá Himmler þar sem nas­istum þeim, sem fang­anna gættu, voru gefin ströng fyr­ir­mæli um, að láta engan fanga sleppa lif­andi í hendur banda­manna,“ segir blaðið.

Vísir 8. maí 1945.gu
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins