„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hvað er plast og hvers vegna er það skaðlegt umhverfinu?

Plast var upp­götvað í kringum alda­mótin 1900 og varð strax mik­il­vægur stað­geng­ill fyrir vörur sem gerðar voru úr dýrum, til að mynda horn, skjald­böku­skeljar og fleira. Plast kemur við sögu í lífi flestra á hverjum degi og er hluti af nán­ast öllum okkar dag­legum athöfnum, bæði heima við og í vinnu. Vörur úr plasti geta verið vörur sem auka öryggi okkar eins og örygg­is­hjálmar og -gler­augu, auk barna­bíl­stóla. Margar vörur sem auð­velda líf okkar eru úr plasti, til dæmis umbúðir utan um mat­væli, tölvur, far­símar og burð­ar­pokar. Einnig er plast í vörum sem hafa skemmt­ana­gildi eins og leik­föng, sjón­vörp og annað.

Hvað er plast og hvers vegna er það skaðlegt umhverfinu?
plast

Til að fram­leiða plast er að mestu leyti notuð olía og jarð­gas en einnig efni eins og kol, sellu­lósi, gas og salt. Eig­in­leikar plasts eru þeir að end­ing­ar­tími þess er yfir­leitt nokkuð mik­ill. Plast er slitsterkt svo það hverfur ekki eða eyð­ist heldur brotnar í smærri og smærri plast­hluta í nátt­úr­unni, kallað örplast. Plast er það létt efni að það flýtur. Það getur þar af leið­andi borist um hund­ruð kíló­metra í vötnum og höfum og valdið þannig skaða langt frá upp­runa­stað sínum. Gríð­ar­stórir flákar af plasti hafa þegar mynd­ast í Kyrra­hafi, Atl­ants­hafi og Ind­lands­hafi þar sem haf­straumar hafa borið það. Það er síðan fast í þessum gríð­ar­stóru hring­straumum sem þar eru.

Notk­un­ar­tími einnota plasts er mjög stuttur því einnota umbúðum er hent um leið og búið er að drekka vatnið, kaffið, borða brauðið, ávext­ina og fleira. Að með­al­tali er talið að hver plast­poki sé not­aður í um tutt­ugu mín­útur og endi síðan í rusl­inu eða úti í nátt­úr­unni.

Á Íslandi er magn umbúða­pla­stúr­gangs um 40 kíló­grömm á hvern íbúa á hverju ári eða alls á Íslandi um 13.000 tonn á ári. Þegar talað er um umbúða­plast er átt við allt umbúða­plast sem teng­ist lífi ein­stak­lings, heim­ili, skóli, vinna. End­ur­vinnsla á umbúða­plasti er aðeins um 11 til 13 pró­sent á Íslandi. Ekki eru til góðar heild­ar­tölur fyrir annað plast sem ekki er skil­greint sem umbúðir og er til að mynda í raf­tækjum, leik­föngum, hús­gögnum og slíku.

Plastpokafrumvarpið fyrst og fremst táknræn aðgerð

Mælt hefur verið fyrir frum­varpi á Alþingi til laga um breyt­ingu á lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir sem varðar notkun burð­ar­poka. Lagt er til í frum­varp­inu að frá og með 1. júlí næst­kom­andi verði óheim­ilt að afhenda alla burð­ar­poka, þar með talið burð­ar­poka úr plasti, án end­ur­gjalds á sölu­stöðum vara og skuli gjaldið vera sýni­legt á kassa­kvittun. Frá og með 1. jan­úar 2021 verði síðan óheim­ilt fyrir versl­anir að afhenda burð­ar­poka úr plasti, hvort sem er með eða án gjalds. Bannið sjálft á þannig við um plast­poka en ekki burð­ar­poka úr öðrum efnum.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hefur sagt plast­poka­frum­varpið fyrst og fremst vera tákn­ræna aðgerð, því hún snerti líf okkar allra. Hann bendir á að vand­inn sé víð­tæk­ari, því vör­urnar sem fólk ber heim í plast­pok­unum séu einnig iðu­lega í plast­um­búðum. Enn fremur bendir hann á að um þriðj­ungi mat­væla í heim­inum sé hent og því megi segja að þriðj­ungur inni­halds pokans muni enda í rusl­inu. Þannig sé plast­poka­frum­varpið ein­ungis lít­ill hluti af „stóra plast­vand­anum“.

Að auki tók ráð­herr­ann á móti til­lögum í haust sem kveða meðal ann­ars á um að setja úrvinnslu­gjald á plast­um­búðir til þess að reyna að draga úr þeim eins og hægt er. Jafn­framt komu fram til­lögur um að sam­ræma og skylda flokkun. Guð­mundur Ingi telur það grund­vall­ar­at­riði í nútíma­sam­fé­lagi að fólk fari betur með hluti og að úrgangur sé nýttur sem hrá­efni í frek­ari fram­leiðslu og til verð­mæta­sköp­unar.

„Við þurfum fyrst og fremst að huga að því hvernig við getum tak­markað sem mest það sem fer inn í keðj­una, þannig að úrgang­ur­inn verði minni. En við verðum einnig að nýta hann eins vel og við getum. Við Íslend­ingar höfum verið svo­lítið hrædd við að tala um neyslu,“ segir Guð­mundur Ingi og rifjar upp orð­ræð­una fyrir hrunið 2008. „Ef ein­hver sagði orðið græðgi þá var það eitt­hvað sem ekki mátti taka sér í munn því þá var maður ekki maður með mönnum. Maður var algjör tuð­ari og aft­ur­halds­seggur; að hamla fram­förum og allt þetta. En ég held að við séum komin á aðeins annan stað núna og það er algjör­lega nauð­syn­legt að sam­band okkar og neysl­unnar sé end­ur­skoðað.“

Greinin er hluti af ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans í nýjasta tölu­blaði Mannlífs. Hægt er að lesa alla skýr­ing­una hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

plast

Út með Styrofoam og í endurvinnsluna með plastið
Innlent

Út með Styrof­oam og í end­ur­vinnsl­una með plastið

Í dag kom fyrsta sam­fé­lags­skýrsla Krón­unnar fyrir augu starfs­fólks og í henni kemur margt áhuga­vert fram. Krónan hefur verið fram­ar­lega í umhverf­is­málum og mark­visst unnið að því að draga úr notkun plast­um­búða, minnka mat­ar­sóun og hækka end­ur­vinnslu­hlut­fall. Í skýrsl­unni kemur fram að 90% af versl­unum Krón­unnar náðu flokk­un­ar­mark­miði fyrir 2020, ári á undan áætlun sem er 68,31% end­ur­vinnslu­hlut­fall. Þegar kemur...
Innlent

„Mér finnst við ekki lengur geta leyft okkur þetta hátta­lag“

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, vill banna plast­vörur eins og einnota bómull­arp­innar úr plasti, hnífa­pör, diskar, sogrör, hrærip­innar og blöðru­prik sem og mat­ar­í­lát, drykkj­ar­í­lát og bollar úr frauð­plasti. Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið kynnti í des­em­ber í sam­ráðs­gátt stjórn­valda drög að breyt­ingum á lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir og breyt­ingar á lögum um úrgangs­mál. Þar er þá lagt til að óheim­ilt...
Plastpokabann gæti skapað nýjan vanda
Innlentplast

Plast­poka­bann gæti skapað nýjan vanda

Plastið er orðið tákn þeirrar umhverf­is­vár sem íbúar jarð­ar­innar glíma við og hefur gríð­ar­leg vit­und­ar­vakn­ing átt sér stað á síð­ustu miss­erum og árum. Með miklu upp­lýs­inga­flæði geta ákvarð­anir þeirra sem vilja vera með­vit­aðir neyt­endur flækst fyrir þeim; hvað skal versla og í hverju á að bera það heim. Svo er spurn­ing hvort þetta skipti yfir­höfuð ein­hverju máli í stóra sam­heng­inu?
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins