„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég lít ekki Tenerife sömu augum eftir þetta“

Íslensk kona segir fleiri Íslend­inga hafa orðið fyrir árásum á hinum vin­sæla ferða­manna­stað Tenerife.

„Ég lít ekki Tenerife sömu augum eftir þetta“
|

Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að árásin á íslensku feðgana á Tenerife, sem var greint frá í síð­asta tölu­blaði, sé ekk­ert eins­dæmi. Íslensk kona sem vill ekki láta nafns síns getið segir í sam­tali við Mannlíf að ráð­ist hafi verið með hrotta­fengnum hætti á tvo Íslenska karla þar í jan­úar á þessu ári og að árás­ar­menn­irnir hafi beitt svip­uðum aðferðum og í máli feðganna sem var byrlað ólyfjan, þeir rændir og beittir ofbeldi.

„Þetta voru mjög alvar­legar árásir. Annar mann­anna var bar­inn og rændur. Hinn var ekki rændur en hann var lam­inn – mjög illa. Hann var með það mikla áverka á höfði að hann fékk blæð­ingu inn á heila, þurfti að vera í hjóla­stól og var í tíma­bundnu flug­banni. Þessir menn þurftu báðir að dvelja á spít­ala eftir þetta,“ lýsir konan sem var þá sjálf nýkomin til Tenerife og gisti á sama hót­eli og menn­irnir tveir þegar atvikið átti sér stað.

„Þetta voru mjög alvar­legar árásir.“

Hún segir fólk og einkum Íslend­inga á svæð­inu hafa verið slegna óhug vegna árás­ar­innar. „Fólk var hrein­lega í áfalli. Sjálfri stóð mér ekki á sama, mér leið ekki vel og ég var mjög óör­ugg eftir þetta, enda var hót­elið okkar bara í fimm mín­útna göngu­fjar­lægð frá versl­un­ar­göt­unni þar sem árásin var framin.“ Umrædd gata heitir, að hennar sögn, Veronicas og er mjög vin­sæll við­komu­staður meðal Íslend­inga á Tenerife. Gatan er einmitt sú sama og þar sem ráð­ist var á íslensku feðgana fyrr­nefndu; þegar ólyfjan var sett út í gos­drykki þeirra á veit­inga­stað einum, Joyce, með þeim afleið­ingum að þeir rot­uð­ust, voru rændir og skildir eftir á bak við ruslagám, þar sem þeir komust svo til með­vit­undar um fjórum klukku­stundum síðar, illa átt­aðir og lemstraðir.

Segir konan að fleiri atvik af þessum toga hafi komið upp á Tenerife á meðan hún dvaldi þar. Til dæmis hafi verið ráð­ist á tvær erlendar konur á svæð­inu, á svip­uðum tíma og árásin á Íslend­ing­ana tvo átti sér stað.

„Konurnar, sem ég held að hafi verið breskar, voru teknar nauð­ugar og skildar eftir illa farnar,“ lýsir hún, en erlendir fjöl­miðlar hafa und­an­farið greint frá svip­uðum til­fellum. Þannig fjall­aði írska útgáfan af The Independent til dæmis í síð­asta mán­uði um svip­aðar árásir á írska ferða­menn á Tenerife og í einu til­felli virð­ist maður hafa horfið spor­laust. „Þetta er mjög óhugn­an­legt allt saman. Það er eins og það sé ein­hver far­aldur þarna,“ segir konan.

„Það er eins og það sé ein­hver far­aldur þarna.“

Spurð hvort hún viti til þess að mál Íslend­ing­ana tveggja sé upp­lýst seg­ist hún ekki vita það. Hún viti því ekki hverjir voru að verki, hvort til dæmis rúm­enska maf­ían sem er talin tengj­ast árásinni á feðgana, eins og greint var frá á man.is, eigi hluti að máli.

„Eina sem ég veit er að þegar við vorum þarna þá var eins og það væri verið að reyna að þagga þetta mál svo­lítið niður. Eins og menn vildu ekki að þetta spyrð­ist út, af ótta við að það kynni að skemma fyrir túrism­anum,“ segir hún. „Sjálf hef ég margoft verið þarna en ég lít ekki Tenerife sömu augum eftir þetta.“

Sjá einnig: „Við lifðum af og fyrir það erum við þakk­látir“

Sjá einnig: Telur árás á íslenska feðga tengj­ast mafí­unni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Óvæntur leynigestur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ
Menning

Óvæntur leynig­estur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ

Erpur Eyvind­ar­son rapp­aði fyrir vini sína í Sri Lanka en bauð svo upp á stór­glæsi­legan leynig­est. Sverrir Þór Sverr­is­son, eða Sveppi eins og hann er iðu­lega kall­aður, tróð óvænt upp með Erpi Blazroca Eyvind­ar­syni í veislu erlendis, senni­lega á Sri Lanka en Erpur hefur und­an­farið unnið sem leið­sögu­maður hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Crazy Puffin, sem sér­hæfir sig í ferðum til landa sem...
Björn sá merkilegt skilti á Máritíus: „Fallegt á síðasta degi ársins“
Menning

Björn sá merki­legt skilti á Máritíus: „Fallegt á síð­asta degi árs­ins“

Björn Þor­láks­son sá fal­lega sýn í gær á ferða­lagi sínu á Máritíus-eyrík­inu. Rit­höf­und­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Björn Þor­láks­son er á ferða­lagi undan ströndum Afríku þessa dag­ana en í gær birti hann ljós­mynd af skilti sem hann sá á alþjóða­flug­vell­inum í höf­uð­borg Máritíus, en þar er bent á sér­stakt bæna­her­bergi, þar sem ekki er spurt um trú heldur geta allir þeir sem...
Skelkaðir farþegar skemmtiferðaskips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND
Heimur

Skelk­aðir far­þegar skemmti­ferða­skips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND

Skelf­ingu lostnir far­þegar skemmti­ferða­skips sendu „kveðju­skila­boð“ til ást­vina af ótta við að þeir myndu „deyja eins og á Titanic“ þegar risa­stormur velti skip­inu í „45 gráður“. Dan So var að yfir­gefa Bar-Svar (e. Pub-Quiz) um borð í skemmti­ferða­skip­inu Royal Caribbean sem sigldi frá Spáni til Miami í Banda­ríkj­unum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag [7. nóv.] þegar hann heyrði „öskrur og glös brotna“. Hinn...
Tásumyndir Siggu Daggar setja internetið á hliðina – Nýtur lífsins með eiginmanninum á Ítalíu
Menning

Tásu­myndir Siggu Daggar setja inter­netið á hlið­ina – Nýtur lífs­ins með eig­in­mann­inum á Ítalíu

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur og eig­in­maður hennar Sævar Eyj­ólfs­son njóta nú lífs­ins í Ítal­íu­sól­inni en hægt er að fylgj­ast með ferða­lagi þeirra á Instagram. Sigga Dögg er skemmti­lega opinn ein­stak­lingur og deilir ævin­týrum sínum með fylgj­endum sínum á Instagram en nýj­ustu ljós­myndir hennar hafa nán­ast sett inter­netið á hlið­ina. Um er að ræða „skyldu tásu­myndir“ eins og hún orðar það...
Glæsileg Dorrit fékk sér sundsprett í miðju þrumuveðri – MYNDBAND
Menning

Glæsileg Dorrit fékk sér sund­sprett í miðju þrumu­veðri – MYNDBAND

Dorrit Moussaieff nýtur lífs­ins á Indlandi um þessar mundir en hún birti í dag mynd­skeið þar sem hún sést fá sér sund­sprett á þaki hót­els í miðju þrumu­veðri. Fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands, Dorrit Moussaieff hefur efni á að ferð­ast og gerir það óspart. Ef marka má myllu­merki hennar á ýmsum Instagram-færslum hennar und­an­farið hefur hún meðal ann­ars notið lífs­ins á Grikk­landi,...
Gjörbreytt Bríet brillerar í Köben með Hr. Hnetusmjöri
Menning

Gjör­breytt Bríet brill­erar í Köben með Hr. Hnetu­smjöri

Bríet Ísis Elfar skellti sér til kóngs­ins Köben á dög­unum ásamt fríðu föru­neyti, þar á meðal Hr. Hnetu­smjöri en til­efnið var gigg í borg­inni en tón­leik­arnir þóttu takast afar vel. Skæl­bros­andi Brí­et­Mynd: Instagram-sjá­skot Söngdívan Bríet birti ljós­myndir og mynd­skeið á Instagram frá ferð­inni en þar sést hún með glæ­nýjan hára­lit og má segja að hún sé nær óþekkj­an­leg með dökku...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins