„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tilvistarkrísa hins góða neytanda

Plastið er orðið tákn þeirrar umhverf­is­vár sem íbúar jarð­ar­innar glíma við og hefur gríð­ar­leg vit­und­ar­vakn­ing átt sér stað á síð­ustu miss­erum og árum. Með miklu upp­lýs­inga­flæði geta ákvarð­anir þeirra sem vilja vera með­vit­aðir neyt­endur flækst fyrir þeim; hvað skal versla og í hverju á að bera það heim. Svo er spurn­ing hvort þetta skipti yfir­höfuð ein­hverju máli í stóra sam­heng­inu?

Tilvistarkrísa hins góða neytanda

Í flóknum heimi hraðra breyt­inga getur reynst erfitt að fóta sig sem neyt­andi – og hlýtur fólk að velta því fyrir sér hver áhrif þeirra eigin neyslu og lifn­að­ar­hátta séu. Plast­notkun hefur orðið ákveðin tákn­mynd þeirra vanda­mála sem mann­kynið stendur frammi fyrir og ekki er óal­gengt að rekast á myndir af urð­un­ar­stöðum fullum af plast­pokum, maga sjáv­ar­dýra útbelgda af plast­úr­gangi og fuglum með kippuplast fast um háls­inn með fréttum eða póstum á sam­fé­lags­miðlum. Raun­veru­leik­inn vekur því ugg og ákveð­innar við­horfs­breyt­ingar gætir varð­andi umhverf­is­vernd og lofts­lags­mál á síð­ustu árum.

Margar spurn­ingar vakna þegar að því kemur að ákveða hvernig best sé að snúa þess­ari þróun við – er það til að mynda ein­ungis stjórn­valda og fyr­ir­tækja að setja lög og reglur fyrir fólk að fylgja eða getur hver og ein mann­eskja haft sín áhrif? Við flóknum vanda­málum eru oft flókin svör og er plast­vand­inn eitt þeirra vanda­mála. Ein skila­boð sem neyt­endur hafa fengið er að sleppa því að kaupa plast­poka í versl­unum og nota papp­írs- eða fjöl­nota poka í stað­inn til að bera vör­urnar heim. Þetta virð­ist þó ekki vera svo ein­falt þegar fleiri þættir eru skoð­aðir eins og kolefn­is­spor pokanna og þegar kostir og ókostir þeirra eru bornir saman byrja málin að flækj­ast.

Ekki er auð­velt að svara því hvort papp­írs­pokar eða plast­pokar séu umhverf­is­vænni, eða þá fjöl­nota pokar. Banda­ríska blaðið The New York Times fjall­aði um málið í mars síð­ast­liðnum og þar er bent á að plast­pokar, sem grotna margir ekki niður fyrr en að árhund­ruðum loknum, geti skapað mikið úrgangs­vanda­mál. Hins vegar útheimti fram­leiðsla papp­írs­poka meiri orku og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, sem sé ekki gott út frá lofts­lags­breyt­ingum.

End­ur­nýt­an­legir pokar geti þannig verið ágætis mála­miðlun ef passað er upp á þá og þeir not­aðir mikið. Það sem sett sé í pok­ann hafi þó á end­anum meiri áhrif á umhverfið en hvaða teg­und af poka not­aður sé.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á vef Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins