„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fréttaskýring: Það sem við vitum á þessari stundu um harmleikinn í Noregi

Gunnar Jóhann Gunn­ar­son, sem tal­inn er hafa orðið Gísla Þór Þór­ar­ins­syni að bana í Mehamn í Noregi, var yfir­heyrður mið­viku­dag­inn 1. maí. Í yfir­heyrsl­unni neit­aði hann sök. Lögmaður Gunnars, Vidar Zahl Arntzen, segir í sam­tali við RÚV að skjól­stæð­ingur sinn telji að um slys sé að ræða. Hann hafi aldrei ætlað sér að skaða bróður sinn.

Fréttaskýring: Það sem við vitum á þessari stundu um harmleikinn í Noregi

Gunnar er grun­aður um að hafa skotið hálf­bróður sinn til bana með hagla­byssu. Gísli Þór var alvar­lega slas­aður þegar lög­regla kom á vett­vang aðfara­nótt laug­ar­dags 27. apríl. End­ur­lífg­un­ar­til­raunir báru ekki árangur og var hann úrskurð­aður lát­inn á staðnum. Bæði Gísli Þór og Gunnar voru búsettir í bænum Mehamn í Noregi. Gísli Þór var fer­tugur þegar hann lést.

Skömmu eftir atvikið birti Gunnar játn­ingu á Facebook þar sem hann bað aðstand­endur Gísla Þórs afsök­unar. „ég framdi sví­virði­legan glæp sem mun elta mig alla ævi. En þetta átti ekki að fara svona en þetta var stór­slys, ætl­aði aldrei að hleypa af.“

Sjá einnig: Færsla á Facebook frá öðrum hinna grun­uðu lýsir skotárásinni sem óvilja­verki

Gunnar var hand­tek­inn um hádeg­is­bil 27. apríl, tæp­lega hálfum sól­ar­hring eftir atvikið. Hann var úrskurð­aður í fjög­urra vikna gæslu­varð­hald í Vadsø á mánu­dag­inn ásamt öðrum Íslend­ingi. Hinn aðil­inn, 32 ára karl­maður, er grun­aður um aðild að morð­inu. Maðurinn, sem var með Gunnari allt þar til þeir voru hand­tekn­ir tæp­um fimm tím­um eft­ir að fyrsta til­kynn­ing barst lög­reglu, hefur neitað þát­töku í and­láti Gísla Þórs. Hann áfrýj­aði gæslu­v­arð­halds­úrsk­urði sínum sem Hér­aðs­dóm­ur Aust­ur-Finn­merk­ur í Vadsø felldi. Dóm­stóll­inn féllst þá á beiðni lög­reglu um viku­langt gæslu­v­arð­hald yfir mann­in­um. Varð­haldið tók gildi á þriðju­dag. Norska rík­is­út­varpið NRK greinir frá þessu.

Yfir­heyrslan, sem fór fram í gær, stóð frá klukkan tíu um morg­unin til klukkan hálf fimm. Verjandi Gunnars sagði í sam­tali við RÚV hann vera nið­ur­brot­inn en hafi í yfir­heyrsl­unni varpað ljósi á hvað gerð­ist þennan dag. Gunnar hefur við­ur­kennt aðild sína að mál­inu, en eins og áður kom fram, neitað að um ásetn­ing hafi verið að ræða.

Sjá einnig: Gísli Þór lýsti erf­iðum upp­vaxt­ar­árum í við­tali við Vikuna

Með brotaferil að baki

Gunnar mun hafa haft í hót­unum við Gísla Þór, sem hafði fengið nálg­un­ar­bann sett á hann. Bannið tók gildi 17. apríl. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gunnar kemst í kast við lögin en hann á langan afbrota­feril að baki sér, hér á landi. Frá árinu 1999 hefur hann verið dæmdur fyrir umferða­laga­brot, fíkni­efna­laga­brot, þjófnað og vopna­laga­brot. Árið 2002 var hann dæmdur, ásamt öðrum manni, fyrir nauðgun á 16 ára stúlku. Gunnar, sem var þá 19 ára, hlaut 22 mán­aða fang­els­is­dóm. Árið 2007 var Gunnar dæmdur í 15 mán­aða fang­elsi fyrir stór­fellda lík­ams­árás og 2010 í var hann dæmdur í tveggja ára fang­elsi. Sá dómur var fyrir aðra stór­fellda lík­ams­árás, frels­is­svipt­ingu og rán. Mbl.is greinir frá.

Fjörutíu þegar yfirheyrðir af norskri lögreglu

Fjörutíu manns hafa verið yfir­heyrðir og gerir Norska lög­reglan ráð fyrir að þurfa yfir­heyra nokkra ein­stak­linga hér á Íslandi. „Við erum byrj­aðir að móta mynd af því sem gerð­ist klukku­stund­irnar áður en morðið var framið. Við höfum rætt við vitni sem þekktu hinn látna og þann grun­aða eða voru með hinum grun­aða klukku­stund­irnar á undan,“ hefur Vísir eftir Torstein Pett­er­sen hjá Norsku lög­regl­unni í Finnmörk. „Við höfum sömu­leiðis rætt við vitni sem hafa lýst sam­bandi hins látna og grun­aða lengra aftur í tím­ann.“

Sýni af vett­vangi hafa verið send til grein­ingar og er tækni­rann­sókn Norsku lög­regl­unnar að ljúka. Skotvopn er einnig til rann­sóknar en ekki hefur verið stað­fest hvort um morð­vopnið sé að ræða. Fyrsta fasa rann­sóknar er lokið og leggur lög­reglan nú áherslu á að greina þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir og ann­ast eft­ir­fylgni.

Yfirheyra aðila á Íslandi

Í frétta­til­kynn­ingu Norsku lög­regl­unnar kemur fram að verið sé að kanna hvort nágrannar Gísla búi yfir upp­lýs­ingum sem gagn­ast geti rann­sókn­inni. „Við erum núna að ganga á milli húsa í hverf­inu og bönk­um þar á dyr og spyrj­um spurn­inga,“ seg­ir Silja Ar­vola, upp­lýs­inga­full­trúi lög­regl­unn­ar í Finn­mörku, í sam­tali við mbl.is. „Síðan vilj­um við líka fá að yf­ir­heyra nokkra ein­stak­linga á Íslandi.“ Samkvæmt Arvola liggur ekki fyrir hvort lög­reglu­menn verði sendir til Íslands eða hvort yfir­heyrsl­urnar verði fram­kvæmdar sím­leiðis. Ef til þess kæmi þyrfti aðstoð Íslensku lög­regl­unnar. Þegar er búið að ræða við fjölda ein­stak­linga í Nor­egi vegna máls­ins.

Kærastan minntist Gísla á Facebook síðu sinni

„Gísli Þór var rif­inn af okk­ur í einu vett­vangi á laug­ar­dag­inn,“ skrifar Elena Und­eland, kærasta Gísla Þórs, í færslu á Facebook síðu sinni á þriðju­dag. „Gísli Þór, hjartað mitt, svo blíður og góður, besti kær­asti og stjúp­faðir í heimi. Mitt allt.“ Í færsl­unni biðlar Elena til allra sem hafa tök á að styrkja fjöl­skyldu Gísla Þórs, „Það verður kostn­að­ar­samt að flytja Gísla til hinstu hvílu, hann verður jarð­sett­ur á Ísaf­irði á Íslandi. Við hefj­um því söfn­un á borð við þá sem systk­ini hans og vin­ir á Íslandi hafa hafið.“

Styrkt­ar­reikn­ingur sem hún gefur upp er norskur og er banka­reikn­ings­núm­erið 4750.72.45982. Norsk­ar banka­milli­færsl­ur krefj­ast ekki kenni­tölu.

Systir Gísla í losti eftir tíðindin

Heiða B. Þórð­ar­dóttir, systir Gísla Þórs, var í losti eftir að lög­reglan færði henni tíð­indin. Hún sagði þau hafa verið náin, enda rætt saman dag­lega vik­una fyrir and­látið. „Sárs­auk­inn er ólýs­an­legur” sagði hún við Frétta­blaðið. Hún segir bróður sinn hafa verið með „mik­inn og stóran per­sónu­leika og ljóst sé að margir syrgi hann”.

Fyrrverandi kærasta Gísla skrifaði hjartnæm minningarorð á Facebook

Bríet Sunna Valdi­mars­dóttir, fyrr­ver­andi kærasta Gísla Þórs, lýsir honum sem ein­stakri per­sónu í Facebook færslu. „Þú varst gæddur þessum ein­stöku per­sónu­töfrum og ljóma. Þú sagðir alla hluti beint út án þess að særa neinn, það tóku allir mark á því sem þú sagðir og þú náðir til allra.“

Bríet segir frá erf­ið­leikum þeirra Gísla í barn­eignum og segir hann hafi glaðst mikið þegar hún sagði honum að hún ætti von á barni: „Þú varst svo ánægður þegar ég sagði þér að ég væri loks­ins ólétt því við gátum aldrei eign­ast barn en ákváðum bæði að sætta okkur við það og að lífið yrði samt æðis­legt því við vorum saman. Ég lok­aði sam­band­inu okkar því ég vissi að þú gast aldrei sleppt mér sjálfur því þú vildir aldrei særa mig. Þú vissir samt jafn­vel og ég að sam­bandið gengi ekki í svona mik­illi og langri fjar­veru. Þessi mikli og kær­leiks­mikli vin­skapur slitn­aði þó aldrei, þó svo við gátum oft stuðað hvort annað þá var það aldrei í langan tíma og fyr­ir­gefn­ingin var alltaf mjög ofar­lega hjá okkur báðum.“

Sjá einnig: Hjartnæm Facebook-færsla fyrr­ver­andi kær­ustu Gísla

Hún segir að Gísli hafi vitað að hún ætti von á strák á undan öllum öðrum. „Ég vissi ekki kynið þá og eng­inn. Í gær kom í ljós að ég geng með strák. Þú hafðir rétt fyrir þér Gísli. Ég veit nú að strák­ur­inn okkar Stefáns hefur besta og fal­leg­ast vernd­ar­engil sem til er.“

Fyrrverandi vinnnuveitandi Gísla Þórs segir hann hafa verið til fyrirmyndar

Oddvar Jenssen, fyrr­ver­andi vinnu­veit­andi Gísla Þórs lýsir honum sem yfir­veg­uðum ein­stak­lingi og í alla staði eðal­menni. Hann hafi verið ábyrg­ur og skiln­ings­rík­ur starfs­maður og átt auð­velt með að eiga í sam­skipt­um við aðra. Þetta kemur fram á Norska frétta­vefnum iFinn­mark. Odd­var rek­ur bæði fisk­vinnslu­fyr­ir­tækið Nor­d­kyn Sea­food og hót­elið Arctic Hotel Mehamn en Gísli Þór starf­aði á báðum stöðum. Nordkyn Seafood aðstoð­aði Gísla einnig fjár­hags­lega þegar hann fjár­festi í bát sem hann gerði út.

Bæjarstjóri Gamvik segir íbúa Mehamn slegna

Trond Einar Olaussen, bæj­ar­stjóri í Gamvik, er búsettur í miðbæ Mehamn rétt hjá þar sem Gísli Þór lést. Hann sagði íbúa slegna yfir atvik­inu. „Þetta er mikið áfall fyrir sam­fé­lagið hér. Við erum fámennt sveit­ar­fé­lag þar sem allir þekkj­ast. Fólki er afar brugðið vegna máls­ins.“ Trond segir fjöldi Íslend­inga, sem búsettur eru á svæð­inu, sé hlut­falls­lega mik­ill. „Íslend­ingar hafa komið hingað að vinna til dæmis í útgerð­inni og við veiðar. Margir hafa fest hér rætur og eru mik­il­vægur hluti af sam­fé­lag­inu hér.“ Vísir greinir frá.

Trond segir mik­il­vægt að íbúar bæj­ar­ins standi saman á svona tímum. „Það er mik­il­vægt að við styðjum hvort annað og einkum þá sem eiga um hvað sár­ast að binda eftir þennan harm­leik. Það mun taka tíma fyrir sam­fé­lagið að ná sér eftir þetta og þá er mik­il­vægt að tala við hvort annað og styðja og við erum það hér í Gamvik og Mehamn. Þetta er atburður sem snertir okkur öll.“

Noregi er skipt í 18 fylki og þar af í 422 hrepps­fé­lög. Mahemn er stjórn­setur Gamvik-hrepps sem er hluti af fylk­inu Finn­mörku.

Gísli Þór var á for­síðu Vikunnar í jan­úar árið 2009.

Gísli Þór í viðtali við Vikuna árið 2009

Gísli Þór sagði sögu sína í við­tali við Vikuna árið 2009. Þar lýsti hann upp­vaxt­ar­árum sínum og hvernig drykkja og fátækt ein­kenndi heim­il­is­lífið þegar hann bjó hjá móður sinni. Gísli var þrí­tugur þegar við­talið birt­ist. Hann lýsti því hvernig hann hafi búið hjá mömmu sinni en farið til pabba síns tvær helgar á ári, fyrir utan það var faðir hans ekki til staðar.

Í við­tal­inu, sem Hrund Þórs­dóttir tók, lýsti Gísli því að hann hafi oft þurft að fara svangur í skól­ann vegna þess að þeir pen­ingar sem voru til á heim­il­inu voru not­aðir til að kaupa áfengi og sígar­ettur í stað­inn fyrir mat. Þetta hafði áhrif á frammi­stöðu hans í skóla og var hann álit­inn erf­iður nem­andi. „Ef eng­inn matur var í boði varð ég reiður og var álit­inn erf­iður, en ég var bara svangur,“ útskýrði hann.

Í við­tal­inu kemur einnig fram að ýmis áföll í æsku hafi haft mikil áhrif á líf Gísla og systk­ina hans. „Þetta bitn­aði á okkur systkin­unum og í kjöl­farið mynd­uð­ust sár sem aldrei munu gróa,“ sagði Gísli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mehamn

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins