„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vandamálið með Valitor

Arion banki á greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Valitor í gegnum dótt­ur­fé­lag og ætlar sér að selja Valitor á árinu 2019. Til þess hefur bank­inn ráðið alþjóð­lega bank­ann Citi til að veita sölu­ráð­gjöf.

Vandamálið með Valitor
||

Í fjár­festa­kynn­ingu bank­ans vegna árs­reikn­ings hans kemur fram að Valitor sé nú flokkað „sem starf­semi til sölu frá og með fjórða árs­fjórð­ung­i.“ Þar segir enn fremur að fyr­ir­hugað sölu­ferli Valitor sé komið á næsta stig og stefnt sé að því að mark­aðs­setn­ing hefj­ist á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019. Það þýðir fyrir mars­lok.

Vanda­málið er að Valitor lítur að mörgu leyti ekk­ert sér­stak­lega vel út um þessar mundir. Valitor Holding, dótt­ur­fé­lag Arion banka sem heldur á eign­ar­hald­inu, tap­aði 1,9 millj­arði króna í fyrra. Félagið hafði skilað um 940 milljón króna hagn­aði ári áður. Í árs­reikn­ingi Arion banka kom fram að tapið sé vegna fjár­fest­ingar í alþjóð­legri starf­semi Valitors og að það hafi haft tölu­verð áhrif á lak­ari afkomu sam­stæðu Arion banka. „Valitor er í mik­illi upp­bygg­ingu erlendis og hefur í þeim fasa verið rekið með rekstr­ar­tapi,“ segir í árs­reikn­ingn­um. Í þeirri upp­bygg­ingu hefur meðal ann­ars falist að ná í stóra við­skipta­vini á Írlandi og í Bret­landi.

Það er þó fleira sem tel­ur. Einn stærsti við­skipta­vinur Valitor, Stripe, hætti færslu­hirð­ing­ar­við­skiptum sínum við Valitor um mitt ár 2018, líkt og Kjarn­inn greindi frá í mars í fyrra að stæði til. Þessi ákvörðun Stripe leiddi til þess að velta fyr­ir­tæk­is­ins flutt­ist frá Valitor sem „hafði tals­verð áhrif á vöxt tekna og við­skipta Valitor á árin­u.“

Til við­bótar var greint frá því í vik­unni að hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafi gert Valitor að greiða Datacell og Sunshine Press Productions (SPP) 1,2 millj­arða króna í skaða­bætur fyrir að slíta samn­ingi um greiðslu­gátt fyr­ir­vara­laust. Fjöl­mið­ill­inn Wikileaks tók við styrkjum fyrir starf­semi sína í gegnum greiðslu­gátt sem Datacell og Sunshine Press Production (SPP) ráku. Greiðslu­gáttin var opnuð 7. júlí 2011 en degi síðar sleit Valitor samn­ingnum fyr­ir­vara­laust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins