„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Aðstoðarmaður þingflokks Pírata sakar Miðflokkinn um nasískar aðferðir

„Að magna upp hræðsl­una við eitt­hvað óskil­greint, flókið og útlenskt er sama taktík og nas­istar not­uðu við að útrýma gyð­ingum, sós­í­alistum, hommum og fötl­uðum,“ skrifar Eiríkur Rafn Rafnsson, aðstoð­ar­maður þing­flokks Pírata á hópa sem kall­ast Pírata­spjallið. Facebook-hóp­ur­inn er óform­legur umræðu­vett­vangur flokks­ins með tæp­lega þrettán þús­und með­limi.

Aðstoðarmaður þingflokks Pírata sakar Miðflokkinn um nasískar aðferðir

Eiríkur segir umræðu um þriðja orku­pakk­ann ein­kenn­ast af hræðslu­á­róðri og lygum. Hann gefur um leið í og setur málið í sam­hengi við aðferðir Nasista.

Sjá einnig: Orku­pakk­inn skekur stjórn­málin

„Þjóð­ern­ispopúlista­hræðslu­á­róðri Mið­flokks­ins“ vill hann að verði hafnað og þriðji orku­pakk­inn ræddur á grunni stað­reynda. „Hver sá sem segir þér að þriðji orku­pakk­inn snú­ist um valda­af­sal Íslands til Evrópu, nauð­ung­ar­sölu á Lands­virkjun, sjálf­krafa sam­þykki fyrir lagn­ingu sæstrengs eða að það þurfi að virkja hvern ein­asta bæj­ar­læk sam­kvæmt skip­unum frá ESB…. ER AÐ LJÚGA AÐ ÞÉR!“

Sjá einnig: Þórdís Kolbrún hjólar í and­stæð­inga þriðja orku­pakk­ans og segir þá fara með „hrein ósann­indi“

Í gær birt­ist umsögn ASÍ vegna máls­ins þar sem Alþýðu­sam­bandið lýsir sig andsnúið sam­þykkt þriðja orku­pakk­ans. And­stæð­ingar máls­ins hafa því fengið öfl­ugan stuðn­ing. „Raforka er grunn­þjón­usta og á ekki að mati Alþýðu­sam­bands Íslands að vera háð mark­aðs­for­sendum hverju sinni. Raforka á að vera á for­ræði almenn­ings og ekki á að fara með hana eins og hverja aðra vöru á mark­aði. Það er því mat ASÍ að of langt hafi verið gengið nú þegar í mark­aðsvæð­ingu grunn­stoða og feigð­ar­flan að stað­festa mark­aðsvæð­ing­una og ganga lengra í þá átt. Rafmagn er und­ir­staða til­veru okkar í dag og það er sam­fé­lags­leg ábyrgð að tryggja fram­leiðslu og flutn­ing til allra, sú ábyrgð er of mikil til að mark­að­ur­inn fái að véla með hana enda hefur mark­aðsvæð­ing grunn­stoða yfir­leitt ekki bætt þjón­ustu, lækkað verð né bætt stöðu starfs­fólks,“ segir í umsögn ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins