„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rúmlega þúsund börn á Íslandi hafa misst foreldri frá árinu 2009

„Á árunum 2009–2018 missti að jafn­aði 101 barn for­eldri árlega, fæst árið 2015 þegar 89 börn misstu for­eldri en flest árið 2010 eða 133 börn. Alls misstu 1.007 börn for­eldri yfir tíma­bilið, 525 drengir og 482 stúlkur.“ Þetta kemur fram tölum Hag­stof­unnar sem birtar voru í dag.

Rúmlega þúsund börn á Íslandi hafa misst foreldri frá árinu 2009

Hag­stofan hefur tekið saman upp­lýs­ingar frá árinu 2009. „Alls lét­ust 649 for­eldrar barna á tíma­bil­inu, þar af voru 448 feður og 201 móðir. Flestir feðra sem lét­ust voru eldri en 49 ára, 172 tals­ins eða 38%. Næst­flestir voru milli 40 og 49 ára, 140 feður eða 31% af heild­ar­fjölda feðra. Flestar mæður sem lét­ust voru á aldr­inum 40–49 ára, 85 tals­ins eða um 42%. Næst­stærsti hóp­ur­inn var á aldr­inum 30–39 ára, 56 mæður, tæp­lega 28%.“

Þá kemur fram í gögnum Hag­stof­unnar að á tíma­bil­inu 2009–2018 hafi flestir for­eldrar sem lét­ust fallið frá af völdum ill­kynja æxlis eða 257, tæp­lega 40%. „Næstal­geng­ast var að for­eldri lét­ist vegna ytri orsaka áverka og eitrana, tæp­lega 34% til­vika eða 218 manns. Tveir und­ir­flokkar dauðs­falla af völdum ytri orsaka áverka og eitrana voru skoð­aðir sér­stak­lega, ann­ars vegar óhöpp og hins vegar sjálfs­víg og vís­vit­andi sjálfs­skaði. Meiri­hluti for­eldra sem lét­ust af völdum ytri orsaka, lét­ust af völdum sjálfs­vígs og vís­vit­andi sjálfs­skaða, alls 106 (48,6% af heild­ar­fjölda for­eldra sem lést af völdum ytri orsaka og 16,3% af heild­ar­fjöld­anum).“

Krabba­meins­fé­lagið heldur mál­þing um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við frá­fall for­eldris í dag, mánu­dag klukkan 15.00 til 17.45. Mál­þingið fer fram í húsi Íslenskrar erfða­grein­ingar og ber yfir­skrift­ina „Hvað verður um mig?”. Á mál­þing­inu verða gögn Hagstofu kynnt en meðal þátt­tak­enda í mál­þing­inu eru Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra ásamt Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands. Á mál­þing­inu verða kynntar rann­sóknir um upp­lifun barna eftir frá­fall for­eldris og hvernig nýta má þær upp­lýs­ingar sem fram komu til að skapa umgjörð fyrir fag­fólk og alla sem standa að börn­unum. Jafn­framt verður greint frá rann­sóknum á stöðu barna sem aðstand­enda krabba­meins­sjúk­linga. Fjallað verður um eigin rétt barn­anna og þarfir fyrir stuðn­ing og leið­sögn, skyldur og ábyrgð hins opin­bera, tengsl fjöl­skyldu, sam­fé­lags og sjálf­stæða þörf barna fyrir sorg­ar­vinnslu og utan­um­hald allt til full­orð­ins­ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hagstofa Íslands

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins