„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Árásin í Noregi: Sá grunaði með afbrotaferil að baki

Maðurin sem er tal­inn hafa orðið bróður sínum að bana í í Mehamn í Finmörku í Noregi í gær­morgun er með afbrota­feril að baki á Íslandi. Hafði hann haft í hót­unum við hinn látna, sem hafði fengið nálg­un­ar­bann á bróður sinn.

Árásin í Noregi: Sá grunaði með afbrotaferil að baki
|

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í til­kynn­ingu sem lög­reglan í Meham sendi frá sér rétt í þessu. Lögregla hefur hingað til varist frétta af mál­inu en í til­kynn­ing­unni kemur fram að gæslu­varð­halds verði kraf­ist yfir mönn­unum tveimur sem ovoru hand­teknir í tengslum við málið; m.a. fjög­urra vikna varð­haldi yfir þeim sem hleypti af skot­vopn­inu. Skýrsla var tekin af vitnum í tengslum við málið í gær.

Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum var lög­regla kölluð til á stað­inn um klukkan 5.30 í gær­morgun. Maðurinn sem varð fyrir skot­inu var alvar­lega slas­aður þegar lög­regla kom á vett­vang. End­ur­lífg­un­ar­til­raunir báru ekki árangur og var hann úrskurð­aður lát­inn á staðnum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá norsku lög­regl­unni. Maðurinn sem lét lífið eftir skotárás­ina hét Gísli Þór Þór­ar­ins­son. Hann var fer­tugur og búsettur í Meham.

Norska blaðið Verdens Gang (VG) segir að árásin hafi átt sér stað í heima­húsi en ekki kemur fram hver var hús­ráð­andi. Voru tveir menn hand­teknir vegna máls­ins, eftir að stol­inn bíll fannst skammt frá.

Maðurinn sem er tal­inn hafa skotið hinn látna birti játn­ingu og afsök­un­ar­beiðni á Facebook-síðu sinni skömmu eftir atvikið. Hann er 35 og var hálf­bróðir hins látna og með afbrota­feril að baki á Íslandi. Hafði hann haft í hót­unum við hinn látna, sem hafði fengið nálg­un­ar­bann sett á hann sem tók gildi fyrir rúmri viku eða 17. apríl, að því er kemur fram á RÚV.

Hinn mað­ur­inn sem var hand­tek­inn er 32 ára og neitar hann sök. Segir verj­andi hann, Jens Bernhard Herstad að hann hafi rætt stutt­lega við skjól­stæð­ing sinn og skilji mað­ur­inn ekki hvers vegna hann sitji í gæslu­varð­haldi. Menn­irnir tveir koma til með að verða yfir­heyrðir af lög­reglu á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mehamn

Fréttaskýring: Það sem við vitum á þessari stundu um harmleikinn í Noregi
Innlentmehamn

Frétta­skýr­ing: Það sem við vitum á þess­ari stundu um harm­leik­inn í Noregi

Gunnar Jóhann Gunn­ar­son, sem tal­inn er hafa orðið Gísla Þór Þór­ar­ins­syni að bana í Mehamn í Noregi, var yfir­heyrður mið­viku­dag­inn 1. maí. Í yfir­heyrsl­unni neit­aði hann sök. Lögmaður Gunnars, Vidar Zahl Arntzen, segir í sam­tali við RÚV að skjól­stæð­ingur sinn telji að um slys sé að ræða. Hann hafi aldrei ætlað sér að skaða bróður sinn.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins