Fjölskyldan nýtti tímann þar vel og kynntu sér sjávarlífið og náttúruna. “Við fórum m.a. Í hvalaskoðun og sæböðin flottu og gengum um Dimmuborgir” segir í Facebook færslu forsetafrúarinnar, áður en haldið var heim til Reykjavíkur. Á Páskadag var ekki einungis gætt sér á páskaeggi heldur nýttu hjónin hann vel í útiveru. „Í dag vorum svo hér syðra, gengum á Úlfarsfell og fórum í sund í Mosó”.
Guðni Th. hefur notið mikillar vinsældar kjörtímabilinu en Í þjóðarpúlsi Gallup, sem birtur var í febrúar síðast liðinn, mældist traust til embættis forseta Íslands 83% í könnun Gallup. Hefur traustið aukist milli ára. Traust á Alþingi hefur á sama tíma hrunið úr 29% í 18% milli ára og traust til borgarstjórnar úr 24% í 16%. Embætti forseta sker sig því nokkuð úr.
Fyrsta kjörtímabil hans lýkur á næsta ári en hefur forsetinn ekki sagt hvort hann hyggst gefa kost á endurkjöri.

























Athugasemdir