„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Beðið með skipan dómsmálaráðherra fram yfir þinglok

Fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Sigríði Andersen er mjög áfram um að setj­ast aftur í stól dóms­mála­ráð­herra sam­kvæmt því sem fram kemur í Frétta­blað­inu í morgun .

Beðið með skipan dómsmálaráðherra fram yfir þinglok
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd/ Bára Huld Beck

Sex vikur eru liðnar frá því að Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, var skipuð dóms­mála­ráð­herra í kjöl­far nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í máli Guð­mundar Andra Ást­ráðs­sonar gegn Íslandi. Dóm­stóll­inn taldi skipan Arn­fríðar Ein­ars­dóttur í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt „sví­virði­legt brot á gild­andi lögum“ hér á landi. Strax við skipan Þórdísar í stól dóms­mála­ráð­herra var gefið út að um tíma­bundna lausn væri að ræða. Þrátt fyrir það bólar enn ekk­ert á nýjum ráð­herra. Töfina segir Frétta­blaðið vilj­andi og til að halda þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins sam­starfs­fúsum.

Nýr dóms­mála­ráð­herra verður því lík­lega ekki skip­aður fyrr en eftir þing­lok. Þetta segir Frétta­blaðið að öllum lík­indum til að halda ró í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins og til að auka sam­starfsvilja þing­manna „enda þeir þing­menn sem hafa áhuga á emb­ætt­inu lík­legri til að vera sam­starfs­fúsir á meðan emb­ætt­inu er óráð­stafað.“

Sjá einnig: Mannétt­inda­dóm­stól Evrópu dæmir ríkið fyrir brot á mann­rétt­indum Bjarna Ármanns­sonar

Mynd/Aldís Páls

Sigríður Andersen hefur ekki tekið sæti í þing­nefnd frá því að Lands­dóms­málið og nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins varð til þess að hún hrökkl­að­ist úr emb­ætti. Hún er sögð sækj­ast fast að setj­ast aftur í stól dóms­mála­ráð­herra. Heim­ildir Frétta­blaðs­ins herma að valið standi helst milli Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur og Birgis Ármanns­sonar í emb­ætti dóms­mála­ráð­herra.

Sjá einnig: „Það var reynt að vega að mér um leið og ég kom inn í ráðu­neytið“

Í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar, sem kom út fyrir páska, kemur fram að aldrei hafi verið fjallað um þann mögu­leika að íslenska rík­inu yrði dæmt áfelli í Lands­rétt­ar­mál­inu. Dómurinn hefur víð­tæk áhrif á réttar­ör­yggi hér á landi en ekki var mótuð áætlun né mörkuð stefna um hvernig bregð­ast skyldi við nið­ur­stöðu ráð­herra í óhag.

Samkvæmt svörum sem Stundin fékk frá skrif­stofu yfir­stjórnar for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins var talið „erfitt ef ekki úti­lokað að skipu­leggja fyrir fram með ein­hverri vissu hvaða við­brögð teld­ust við­hlít­andi til skemmri og lengri tíma“. Dagana eftir nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins ríkti upp­lausn­ar­á­stand í rétt­ar­kerf­inu. Lands­réttur lagði niður störf, engar aðgerðir voru boð­aðar til að tryggja réttar­ör­yggi íslenskra borg­ara og alger óvissa ríkti um hvernig brugð­ist yrði við af hálfu dóm­stóla og stjórn­valda.

Uppfært: Fyr­ir­sögn hefur verið breytt frá því að fréttin birt­ist fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MDE

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins