„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svala um ofbeldi Margrétar og séra Georges: Eins og þau vissu hvaða börn væru auðveld bráð

Söng­konan Svala Björg­vins­dóttir hrósar bróður sínum Krumma fyrir að opna sig um ofbeldið sem hann mátti þola af hálfu séra Ágústusar Georges og Mar­grétar Müller.

Svala um ofbeldi Margrétar og séra Georges: Eins og þau vissu hvaða börn væru auðveld bráð
|

„Ég man hve skít­hrædd við þau ég var og ég fann að þau lögðu suma í ein­elti og aðra ekki. Það var eins og þau vissu hvaða börn væru auð­veld­ari til að beita ofbeldi,” skrifar söng­konan Svala Björg­vins­dóttir á Facebook. Til­fefnið er færsla bróður hennar Krumma Björg­vins­sonar þar sem hann lýsir því hvernig Séra Ágústus George, fyrr­ver­andi skóla­stjóri Landa­kots­skóla og kenn­ar­inn Margrét Müller beittu hann ofbeldi þegar hann var barn.

„Ótrúlega sikk ein­stak­lingar og glæpa­menn. Að þetta hafi við­gengst þarna er svo sorg­legt,“

Rifjar söng­konan upp tím­ann sem þegar hún fór sjálf í alt­ar­is­göngu í Landa­kots­skóla á ald­urs­bil­inu 9 til 10 ára og kennsl­una í kringum hana en hún var í höndum fyrr­nefnds séra Georges og Mar­grétar, en eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum beittu þau skötu­hjú börn þar lík­am­lega, and­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi um ára og ára­tuga skeið. „Ótrúlega sikk ein­stak­lingar og glæpa­menn. Að þetta hafi við­gengst þarna er svo sorg­legt,“ segir Svala.

Ýmsir hafa stigið fram og minnst þess­ara ára með óhug, þar á meðal rit­höf­und­ur­inn Vigdís Gríms­dóttir sem kenndi einn vetur við Landa­kots­skóla og blöskr­aði svo fram­koma Mar­grétar í garð barn­anna að hún reyndi að koma í veg fyrir hana með því að leita til skóla­stjór­ans, séra Georges, algjör­lega ómeð­vituð um að hann væri engu skárri.

Þá hafa skrif Krumma orðið til þess að frænka hans, leik­konan Edda Björg­vins­dóttir minnt­ist ofbeld­is­ins í Landa­kots­skóla. „Ég marg reyndi að klaga í fræðslu­yf­ir­völd þegar Róbert var þarna og þessi vonda kerl­ing nídd­ist á öllum börn­unum í bekknum hans,” skrif­aði hin ást­sæla leik­kona um Margréti á Facebook, en Róbert er yngri sonur hennar og Gísla Rúnars Jóns­sonar leik­ara.

Bæði Edda og Svala hafa hrósað Krumma fyrir að stíga fram og tjá sig um ofbeldið sem hann varð fyrir í æsku. „Hann bróðir minn Krummi Bjorg­vins­son er hetja,” skrifar söng­konan í færslu á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins