„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hatarar séu þátttakendur í „áróðursmaskínunni“ þvert á eigin hugmyndir um sérstöðu

„Hatari, sem telja sig hafa ein­hvers konar sér­stöðu vegna óljósra yfir­lýs­inga um mót­mæli, taka þannig með beinum þætti í áróð­ursmask­ín­unni,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Snið­göngum Eurovision í Ísrael sem birt var á Facebook í gær­kvöldi. Í gær birt­ust mynd­skeið í fjöl­miðlum frá upp­tökum á póst­korti fyrir beina útsend­ingu keppn­innar.

Hatarar séu þátttakendur í „áróðursmaskínunni“ þvert á eigin hugmyndir um sérstöðu
||||

„Hefð er fyrir því að spila stutt mynd­skeið á undan atriðum í Eurovision, sem eru gjarnan notuð til að kynna landið sem heldur keppn­ina fyrir áhorf­endum. Ísrael hefur lagt mikla vinnu í póst­kortin í ár, en for­maður Kan sjón­varps­stöðv­ar­innar hefur kallað þau full­komið tæki­færi til að sýna 200 milljón áhorf­endum „fag­urt and­lit Ísrael“,“ segir í til­kynn­ing­unni. Snið­göngum Eurovision í Ísrael segir landið nota póst­kortin sem tæki­færi til að sýna her­numin og inn­limuð svæði Ísraels. „Þema póst­kort­anna í ár er „dans­andi Ísrael“, en þau eru tekin upp á völdum stöðum sem Ísrael vill sýna áhorf­endum, meðal ann­ars í Golan-hæðum. Við sjáum þannig með skýrum hætti hvernig Eurovision skapar tæki­færi til að sýna ólög­lega inn­limuð og/eða her­numin svæði á borð við Golan-hæðir og palest­ínsku Austur-Jer­úsalem sem hluta af Ísrael. Þetta er aðeins eitt af fjöl­mörgum dæmum um hvernig keppnin er notuð í áróð­urs­skyni og í póli­tískum til­gangi af Ísrael.“

Vilja nýta dagskrárvaldið til að gagnrýna stefnu Ísrael

Meðlimir Hatara sögðu í við­tali við Stundina síð­ast­lið­inn febr­úar að frá­leitt væri að Ísland taki þátt í keppni sem haldin er í ríki sem traðki á mann­rétt­indum fólks. „Gagn­rýnin á okkur er skilj­an­leg og til marks um að fjöl­mörgum Íslend­ingum svíður með­ferðin á Palest­ínu­mönnum. Okkur finnst sjálf­sagt að svara henni af virð­ingu og án þess að snúa svar­inu upp í grín, sem við gerum vana­lega í fram­komu okkar við fjöl­miðla. Það er ekk­ert öfga­kennt við að tala fyrir snið­göngu á keppn­inni. Við erum sam­mála þeim sjón­ar­miðum sem þar liggja að baki. Páll Óskar gerði til að mynda vel með því að snið­ganga keppn­ina opin­ber­lega. Þar með nýtti hann áhrif sín sem opin­ber per­sóna og nafn­tog­aður Eurovision-spek­úlant til að halda á lofti gagn­rýnu sam­tali um Ísrael og snið­göngu,“ hefur Stundin eftir Höturum.

Ísland og Ísrael voru miklar vinaþjóðir

Árið 1947 var Ísland eitt þeirra landa sem ljáðu skipt­ingu bresku Palest­ínu stuðn­ing sinn. Svæðinu yrði skipt í ríki gyð­inga ann­ars vegar og ríki araba hins vegar. Tillagan var borin upp og sam­þykkt 29. októ­ber 1947. Ísland og Ísrael áttu náin og vin­sam­leg sam­skipti næstu árin og lengi vel voru Íslend­ingar meðal helstu stuðn­ings­manna Ísra­els­ríkis. Í sátta­nefnd um Palest­ínu var Thor Thors, sendi­herra og fasta­full­trúi Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, en hann var fram­sögu­maður nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar.

Af frétta­flutn­ingi íslenskra fjöl­miðla á fimmta ára­tug síð­ustu aldar má greina að Íslend­ingar hafi verið nokkuð stoltir af þætti sínum, og Thor Thors, í stofnun Ísra­els­ríkis. „Enginn vafi er á því, að nefnd sú, sem sendi­herr­ann hefur nú verið kos­inn í, er hin mik­il­væg­asta,“ segir Morg­un­blaðið um málið. Óvíst er hvort sú túlkun blaðs­ins eigi sér­stak­lega við rök að styðj­ast enda var fjöld­inn allur af nefndum stofn­aðar um skipt­ingu bresku Palest­ínu milli gyð­inga og araba. Íslend­ingar tóku veru sína í Sam­ein­uðu þjóð­unum afar alvar­lega á fimmta ára­tugnum enda þátt­taka okkar í ráð­inu talin hluti af við­ur­kenn­ingu ann­ara þjóða á Íslandi sem sjálf­stæðu ríki.

Vísir 12. nóv­em­ber 1964, Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra ræðir við blaða­menn um för sína til Ísrael.

Skilyrðislaus vinátta

Sú var tíðin að vin­semd Íslands og Ísrael var slík að tekið var eftir. Íslensk stjórn­völd sýndu Ísrael strax mestu vin­semd og raunar mun meiri vin­semd en stjórn­völd ann­ara Norð­ur­landa. Árið 1949 greiddu Íslend­ingar atkvæði með aðild Ísrael að Sam­ein­uðu þjóð­unum en Danir og Svíar sátu hjá. Þá höfðu sendi­herrar þjóð­anna tveggja skipst á trún­að­ar­bréfum þegar árið 1951. Vakin er athygli á sam­starfi Íslands og Ísrael í loka­rit­gerð Jakobs Snævars Ólafs­sonar loka­rit­gerð til BA-gráðu frá árinu 2013 er fjallað um sam­skipti Íslands og Ísrael frá stofnun lands­ins. Jakob segir að Guð­mundur Í. Guð­munds­son utan­rík­is­ráð­herra hafi eftir heim­sókn sína til Ísraels árið 1960 vakið athygli Norð­ur­landa­þjóða á hug­myndum Ísrael um að Norð­ur­lönd myndu beita sér í auknu mæli í Afríku til að vega upp á móti áhrifum stór­veld­anna. Hug­myndin hlaut ekki hljóm­grunn.

Landhelgisdeilur

Ísraelar ljáðu Íslandi stuðn­ing sinni í Land­helg­is­mál­inu, það er að segja, þegar Íslend­ingar vildu færa eigin land­helgi í 12 mílur. Árið 1958 blésu Sam­ein­uðu þjóð­irnar til haf­rétt­ar­ráð­stefnu í Genf, Sviss. Engar stór­vægi­lega breyt­ingar voru sam­þykktar á ráð­stefn­unni en Ísland ákvað í kjöl­farið að færa eigin land­helgi út í 12 mílur. Viðbrögð Breta létu ekki á sér standa. Þeir mót­mæltu ákaft og sendu her­skip til þess að verja tog­ara sína gegn íslensku varð­skip­unum. Hófst nú þorska­stríð milli Íslands og Bret­lands. Ísrael greiddi atkvæði með mál­stað Íslend­inga á haf­rétt­ar­ráð­stefnu nokkru síðar. Deila Íslend­inga og Breta stóð til árs­ins 1961. Ísrael var heilt á litið mót­fallið öllu tak­mörk­uðu aðgengi að fiski­miðum. Þau töldu hins vegar að gera yrði und­an­tekn­ingu fyrir þjóðir sem lifðu nán­ast ein­göngu á fisk­veiðum.

Aðdáun á báða bóga

Ásgeir Ásgeirs­son, for­seti Íslands, ávarp­aði árið 1966 ísra­elska þingið, Knesset. Ásgeir var þá fyrsti erlendi þjóð­höfð­ing­inn til að hlotn­ast sá heiður. Heimsókn Ásgeirs stóð yfir í níu daga og var öll hin vina­leg­ust. Ásgeir fór einnig fyrir vígslu­at­höfn nýrrar götu í Jer­úsalem að við­stöddu fjöl­menni. Ferðalag Ásgeirs var ekki fyrsta heim­sókn Íslenskra ráða­manna til Ísrael en áður hafði Gísli Þ. Gíslason mennta­mála­ráð­herra heim­sótt Ísrael í opin­berum erinda­gjörðum árið 1965. Ráð­herr­arnir Bjarni Bene­dikts­son og Guð­mundur Í Guð­munds­son höfðu sömu­leiðis farið í heim­sókn til lands­ins. Birgir Finnsson, þá for­seti sam­ein­aðs Alþingis, ávarp­aði ísra­elska þingið árið 1966, líkt og Ásgeir hafði gert. Sam­skipti ríkj­anna voru ekki aðeins góð heldur ríkti gagn­kvæm virð­ing og áhugi ríkj­anna á milli. Íslend­ingar voru stoltir af þætti sínum í stofnun Ísrael og dáð­ust af elju Ísraela við upp­bygg­ingu hins nýja ríkis. Þá virð­ast íslenskir ráða­menn almennt hafa verið stuðn­ings­menn zionisma og gerðu ekki athuga­semdir við hug­mynda­fræð­ina. Ásgeir heiðr­aði á sínum tíma Theodor Herzl, upp­hafs­mann stefn­unnar, þegar hann lagði blóm að leiði hans. Bjarni Bene­dikts­son gerði hið sama árið 1964.

Umfjöllun í Vikunni um Ísrael árið 1973.

Skilyrtur vinskapur

Almennt naut Ísra­els­ríki vel­vildar vest­ur­ríkj­anna en eftir sex daga stríðið, árið 1967, fjölg­aði álykt­unum þar sem gjörðir Ísrael voru for­dæmdar. Í áður­nefndri rit­gerð Jakobs Snævar Ólafs­sonar segir að það hafi ekki verið fyrr en árið 1973 sem Ísland greiddi atkvæði með ályktun gagn­rýnni á aðgerðir Ísrael. Íslend­ingar áttu það til að sitja hjá við kosn­ingar vegna álykt­ana sem vörð­uðu stöðu Jer­úsalem eða álykt­anir þar sem því var haldið fram að Ísrael bryti mann­rétt­indi Palest­ínu­manna. Í álykt­unum þar sem ýtt var á Ísrael að draga til baka af her­teknu svæð­unum var sama uppi á ten­ingnum; Ísland hélt sig til hlés.

Ísland gegn Ísrael

Árið 1971 greiddu íslensk stjórn­völd atkvæði með ályktun þar sem aðgerðir Ísrael gagn­vart Palest­ínu­mönnum voru gagn­rýndar. Rík­is­stjórn Ólafs Jóhann­es­sonar stefndi að sjálf­stæð­ari utan­rík­is­stefnu frá stór­veld­unum en þar til hafði verið raunin. Ætlunin var meðal ann­ars að styðja betur við bakið á þjóðum þriðja heims­ins. Undir lok árs­ins kom upp ágrein­ingur innan fasta­nefndar Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum. Innan hóps­ins þótti nokkrum Hannes Kjart­ans­son, fasta­full­trúi Íslands ganga gegn stefnu rík­is­stjórn­ar­innar með stuðn­ingi sínum við Ísrael. Hann mun hafa mót­mælt því og sagt að alltaf hefði ríkt sam­hugur um að styðja við bakið á Ísrael. Hags­munir Íslands á alþjóða­vett­vangi blönd­uð­ust svo inn í málin. Árið 1973 greiddu íslensk yfir­völd atkvæði með ályktun sem gagn­rýndi notkun Ísraela á nátt­úru­auð­lindum svæða sem þeir höfðu her­tekið í sex daga stríð­inu árið 1967. Stríðið var á milli Ísraels ann­ars vegar og Egypta­lands, Jórdaníu og Sýrlands hins vegar. Stríðið var háð milli 5.–10. júní. Írak, Sádi-Arabía, Súdan, Túnis, Marokkó og Alsír lögðu einnig til her­sveitir til stuðn­ings aröbum. Atkvæði Íslands með álykt­un­inni var afar óvenju­legt. Það var þó ekki svo að virð­ing við mann­rétt­indi Palest­ínu­búa ræki Íslend­inga áfram í mál­inu. Sjálfir stóðu Íslend­ingar í bar­áttu yfir eigin nátt­úru­auð­lindum og höfðu af þeim sökum áður fengið sam­þykkta ályktun um yfir­ráð þró­un­ar­ríkja á eigin nátt­úru­auð­lindum. Sú ályktun var í meg­in­at­riðum sú sama og ályktun um auð­lindir her­tek­inna svæða. Full­trúar Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum töldu sig þar af leið­andi ekki geta annað en sam­þykkt álykt­un­ina. Hætt er við að hefðu Íslend­ingar ekki stutt álykt­un­ina um auð­lindir her­teknu svæð­anna að erf­ið­lega hefði gengið fyrir stjórn­völd að treysta á stuðn­ing þró­un­ar­ríkja í land­helg­is­deilu Íslend­inga. Áður höfðu Ísra­els­menn stutt Ísland í land­helg­is­deilu lands­ins en nú var svo komið að Ísrael sat hjá í mál­inu. Stuðn­ingur Ísrael við land­helgis­kröfur Íslands var því liðin tíð. Árið 1974 sat Íslands aftur á móti hjá þegar sams­konar ályktun um auð­lindir her­teknu svæð­anna var afgreidd á þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ný rík­is­stjórn hafði í milli­tíð­inni tekið við en sú stjórn hafði minni áhyggjur af sjálf­stæði utan­rík­is­þjón­ustu gagn­vart Banda­ríkj­unum.

Ísland viðurkennir Palestínu

Diplómat­ísk sam­skipti Íslands og Ísrael eru í dag fremur köld. Árið 2012 tók Shimon Peres, þá for­seti Ísrael, það sér­stak­lega fram að sam­skipti Íslands og Ísrael væru í kald­ara lagi er hann tók við trún­að­ar­bréfi sendi­herra Íslands gagn­vart Ísrael. Hann bætti við að færi væri til að bæta úr því. Við­ur­kenn­ing Alþingis á sjálf­stæði Palest­ínu ári áður hafði ekki orðið til þess að sætta Ísra­els­menn sér­stak­lega. Þá virð­ist Össuri Skarp­héð­ins­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafa verið ein­stak­lega lítið í mun að ganga í augun á Ísrael. Árið 2011 fór Össur í heim­sókn til Mið­aust­ur­landa en forð­að­ist sam­skipti við Ísrael í þeirri ferð. Það vakti við­brögð í Ísrael en Manfred Gersten­feld for­maður Mið­stöðvar um almanna­tengsl í Jer­úsalem skrif­aði afar harð­orða grein um hroka Össurar gagn­vart Ísra­els­mönnum. Össur gaf lítið fyrir þá gagn­rýni. Frægust er þó ræða Össurar á Alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna, frá sept­em­ber árið 2012, þar sem utan­rík­is­ráð­herra fór hörðum orðum um Ísrael. Í ræð­unni ávarp­aði hann Net­anyahu og kall­aði eftir því að hann rífi niður aðskiln­að­ar­vegg Ísraela á Vest­ur­bakk­anum.

Þess má geta að meðal þeirra sem greiddu til­lögu Alþingis, um við­ur­kenn­ingu sjálf­stæðis Palest­ínu, atkvæði sitt var Amal Tamimi, vara­þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar. Amal er fædd og upp­alin í Jer­úsalem. Í ævi­sögu sinni segir Amal frá því að þegar hún þrettán ára var hand­tekin og ákærð fyrir að kasta steinum í ísra­elska her­menn. Að eigin sögn sat Amal í fang­elsi í tvær vikur á meðan hún beið rétt­ar­halda og hlaut sex mán­aða dóm.

Vinsæll og veit af því

Erfitt getur verið að ímynda sér stuðn­ing við Palest­ínu og óhug vegna aðgerða Ísrael sem jað­ar­skoðun. Almennt eru Íslend­ingar í dag stuðn­ings­menn Palest­ínu enda höfum við gengið lengra en önnur vest­ræn ríki í að við­ur­kenna stöðu Palest­ínu sem sjálf­stætt og full­valda ríki. Sú var þó staðan á Íslandi framan að. Stuðn­ingur og raunar samúð við Palest­ínu var jað­ar­skoðun langt til vinstri á meðan Ísrael vakti áhuga og aðdáun Íslend­inga. Gríð­ar­leg upp­bygg­ing var í Ísrael á ára­tug­unum eftir stofnun. Þeir sem höll­uðu til hægri litu gjarnan svo á að Ísrael væri ríki vest­rænnar menn­ingar í heimi araba og mik­il­vægt sem slíkt. Vinstri­menn voru gjarnan hrifnir af sós­íal­ískum áherslum Ísraela. Vinstri­m­iðlar hér á landi voru afar hrifnir af áherslu Ísrael á sam­vinnu­fé­lög og samyrkju­bú­skap. Íslend­ingar tengdu sömu­leiðis bar­áttu ísra­el­skra gyð­inga fyrir eigin ríki við sjálf­stæð­is­bar­áttu Íslend­inga.

Þótt breyt­ingin hafi orðið á löngum tíma og sé afleið­ing margra þátta er vert að nefna sér­stak­lega þátt Stein­gríms Her­manns­sonar for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins en sem ráð­herra var hann afar gagn­rýn­inn á Ísrael í sam­an­burði við for­vera sína og tók gjarnan undir mál­stað Palest­ínu­manna. Leiða má að því líkur að vilji æðsta emb­ætt­is­manns Íslands til að taka upp hansk­ann fyrir mál­stað Palest­ínu­menn eigi tals­verðan þátt í að færa þá umræðu frá jaðri rök­ræð­unnar út til miðju umræð­unnar. Sömu­leiðis tók Stein­grímur ítrekað upp hansk­ann fyrir Palest­ínu­menn á meðan hann var utan­rík­is­ráð­herra og það þrátt fyrir að sam­starfs­flokk­ur­inn væri oft afar ósáttur við afstöðu Stein­gríms.

Uppreisn Palestínumanna

Í ævi­sögu Stein­gríms segir að við­brögð Ísraela við upp­reisn Palest­ínu­manna á her­teknu svæð­unum sem braust út árið 1987 hafi orðið til þess að hann ákvað að gagn­rýna Ísrael með jafn afger­andi hætti og raun varð. Stein­grímur hafði fram að því ekki sýnt stöðu Palest­ínu­manna sér­stakan áhuga og hafði raunar sagt að hann skyldi sjón­ar­mið Ísrael. Eftir að Ísraelar brutu að baki upp­reisn­ina af mik­ill hörku breytt­ist tónn­inn. „Mér sýn­ist ekki unnt að líkja því við neitt annað en hin verstu hryðju­verk,“ sagði Stein­grímur, þá utan­rík­is­ráð­herra, um aðgerðir Ísra­els­hers í umræðum um málið á þingi. Þá sagði hann að eng­inn gæti stutt morð á ófrískum konum og gam­al­mennum. Skömmu síðar lýsti hann því yfir að Frels­is­sam­tök Palest­ínu­manna PLO væru raunar lög­mæt full­trúa­sam­tök Palest­ínu­manna. Stein­grímur steig þannig nauð­syn­legt skref í átt að því að færa sam­skipti Íslands og full­trúa Palest­ínu á jafn­rétt­is­grund­völl sem sjálf­stæð og full­valda ríki. PLO voru, á þessum tíma, að mati Ísraela hryðju­verka­sam­tök og því er ljóst að ummæli hans og afstaða til PLO settu sam­skipti ríkj­anna í við­kvæma stöðu. Þor­steinn Pálsson sem þá var for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins tók ekki í mál að hitta eða ræða við PLO. Í ævi­sögu sinni segir Stein­grímur að honum hafi þótt þetta barna­leg afstaða en að hann hafi tíma­bundið hætt við að hitta Yasser Arafat, for­mann frels­is­sam­taka Palest­ínu, sökum harka­legra við­bragða Sjálf­stæð­is­manna.

Hatari stíga á svið í Tel Aviv þann 14. maí næst­kom­andi með lag sitt Hatrið mun sigra.

Mynd / Magnús Andersen fyrir Grapevine

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins