„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fjármálaeftirlitið krafðist þess að söfnunarsíðunni yrði lokað

Fjár­mála­eft­ir­litið gerði athuga­semd við fjár­mögn­un­ar­síð­una hlut­hafi.com.

Fjármálaeftirlitið krafðist þess að söfnunarsíðunni yrði lokað

Í gær var greint frá því að vef­síða um stofnun nýs flug­fé­lags væri farin í loftið á slóð­inni hluta­hafi.com. Þar var óskað eftir hluta­fjár­lof­orði að minnsta kosti tíu til tutt­ugu þús­und hlut­hafa í þeim til­gangi að end­ur­reisa flug­fé­lagið WOW air eða stofna nýtt lággjalda­flug­fé­lag. Fjár­mála­eft­ir­litið krefst þess að síð­unni verði lokað.

Fjár­mála­eft­ir­litið hóf í gær athugun á hluta­fjár­út­boð­inu sem aug­lýst var á síð­unni. Í grein á vef Fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir: „Fjár­mála­eft­ir­litið taldi að fram­an­greind áskrift­ar­söfnun félli undir hug­takið almennt útboð verð­bréfa, sbr. 43. gr. laga um verð­bréfa­við­skipti nr. 108/2007, en með almennu útboði er átt við hvers konar boð til almenn­ings um kaup á verð­bréfum. Áður en farið er í almennt útboð verð­bréfa þarf að gefa út lýs­ingu í sam­ræmi við 1. mgr. 44. gr. laga um verð­bréfa­við­skipti.“

Þá kemur einnig fram að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi sent erindi til for­svars­manna hlut­hafi.com þar sem gerð var krafa um að heima­síð­unni yrði lokað þar sem ekki virt­ust upp­fyllt skil­yrði laga um verð­bréfa­við­skipti, meðal ann­ars varð­andi útgáfu lýs­ingar.

„Í kjöl­far þessa hafa for­svars­menn hlut­hafi.com breytt fyr­ir­komu­lagi áskrift­ar­söfn­un­ar­innar á þann hátt að nú er miðað við skrán­ingu fyrir hluta­skír­teini í einka­hluta­fé­lagi sem fellur ekki undir lög um verð­bréfa­við­skipti,“ segir einnig.

Fjár­mála­eft­ir­litið vekur þá athygli á að almennir fjár­festar njóta ekki sömu verndar vegna kaupa í einka­hluta­fé­lagi og þegar þeir taka þátt í almennu hluta­fjár­út­boði.

Sjá einnig: Fjár­mögn­un­ar­síða fyrir nýtt flug­fé­lag farin í loftið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins