„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Edda Björgvins um Margréti Müller: „Þessi vonda kerling níddist á öllum börnunum“

Leik­konan Edda Björg­vins­dóttir bæt­ist í hóp þeirra sem stíga fram og minn­ast ofbeld­is­ins í Landa­kots­skóla.

„Ég marg reyndi að klaga í fræðslu­yf­ir­völd þegar Róbert var þarna og þessi vonda kerl­ing nídd­ist á öllum börn­unum í bekknum hans,“ skrifar hin ást­sæla leik­kona Edda Björg­vins­dóttir á Facebook, en Róbert er yngri sonur hennar og Gísla Rúnars Jóns­sonar leik­ara.

Skrif Eddu eru ummæli við Facebook-færslu söngv­ar­ans Krumma Björg­vins­sonar, frænda Eddu þar sem hann lýsir því hvernig Séra Ágústus George, fyrr­ver­andi skóla­stjóri Landa­kots­skóla og kenn­ar­inn Margrét Müller beittu hann ofbeldi í æsku, en í marga ára­tugi beittu þau skötu­hjú börn við skól­ann and­legu og lík­am­legu ofbeldi sem og kyn­ferð­is­of­beldi sem upp­götv­að­ist ekki fyrr en nokkrir þolend­anna stigu fram í Frétta­tím­anum árið 2011 og lýstu þar voða­verk­unum. Kaþólska kirkjan setti í kjöl­farið á lagg­irnar rann­sókn­ar­nefnd til að rann­saka ódæðiðs­verkin og þann 2. nóv­em­ber árið 2012 gaf hún út skýrslu um glæp­ina. Þremur árum síðar, eða árið 2015 sam­þykkti Alþingi að greiða út sann­girn­is­bætur til þolenda.

„Ég hef aldrei fyrr kynnst fólki sem mér finnst vera hrein­lega ill­gjarnt eins og þessi tvö sem blóðug slóðin liggur eftir!“

Nú stendur fyrir dyrum að gera nýja heim­ilda­þætti um málið og eru þeir til­efni skrifa Krumma, sem hafa vakið mikla athygli og skrifa Eddu frænku hans. Segir leik­konan í fyrr­nefndum ummælum að hún hafi tekið son þeirra Gísla úr Landa­kots­skól á miðjum vetri og hún vor­kenni enn öllum þeim börnum sem Margrét hélt áfram að pína. „Ég hef aldrei fyrr kynnst fólki sem mér finnst vera hrein­lega ill­gjarnt eins og þessi tvö sem blóðug slóðin liggur eftir!“ skrifar Edda og vandar skóla­stjór­anum fyrr­ver­andi þannig ekki kveðj­urnar.

Við Krumma segir hún: „Elsku hjart­ans Krummi frændi hvað þetta hefur verið ömur­legt og hræði­leg lífs­reynsla.“

„Jeminn hvað er glaður að Róbert var ekki þarna mikið lengur. Takk elsku frænka mín ❤️,“ svarar söngv­ar­inn frænku sinni.

Sjá einnig: Vera Ill­uga­dóttir lagði fæð á séra George sem barn

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins