„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hlutur ríkisins í fyrirtækjum vel yfir 1.000 milljörðum: Vilja flokkarnir selja?

Eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins hefur átt sér stað mikil umbreyt­ing á íslenska hag­kerf­inu. Eitt af því sem gerst hefur er að eignir íslenska rík­is­ins – þar með talið eign­ar­hlutir í fyr­ir­tækjum – hafa marg­fald­ast. Fylgja þessu ein­hver vanda­mál? Hvaða stefnu hafa stjórn­mála­flokk­arnir?

Hlutur ríkisins í fyrirtækjum vel yfir 1.000 milljörðum: Vilja flokkarnir selja?

Sé horft til stefnu stjórn­mála­flokk­anna, þá er ekki mik­ill áhugi hjá þeim á því að selja eignir í þessum fyrr­nefndu rík­is­fyr­ir­tækjum, þá helst hjá Sjálf­stæð­is­flokknum og Viðreisn. Aðrir flokkar hafa ekki haft það að stefnu að selja eign­ar­hluti í þessum fyrr­nefndu fyr­ir­tækjum, hvorki bönk­unum né öðrum.

Hins vegar er það engu að síður á stefnu­skrá rík­is­stjórn­ar­innar, sam­kvæmt stjórn­ar­sátt­mála, að minnka eign­ar­hluti rík­is­sjóðs í bönk­unum.

Horft hefur verið til þess að selja Íslands­banka að öllu leyti og að ríkið geti haldið eftir 30 til 40 pró­senta eign­ar­hlut í Lands­bank­anum en sölu­ferli er ekki komið af stað og ólík­legt að það ger­ist á þessu kjör­tíma­bili úr þessu.

Þó geta hlut­irnir hreyfst hratt ef það finnst ein­hver áhuga­samur kaup­andi, eins og t.d. einn stóru bank­anna á Norð­ur­lönd­unum.

Í Evrópu hafa bankar ekki mikið verið að kaupa aðra banka og stækka þannig þessi miss­erin og hingað til hefur ekki verið auð­velt að fá erlenda fjár­festa að íslenska banka­kerf­inu.

Þrátt fyrir að tví­hliða skrán­ing Arion banka, á Íslandi og í Svíþjóð, hafi heppn­ast að mörgu leyti vel þá er samt ljóst af þeirri reynslu að und­ir­búa þarf vel sölu á bönk­unum ef það á að gera það í gegnum skrán­ingu á markað, og það er ekki heldur auð­velt að selja of mikið í einu með þeim hætti þar sem hætta er á því að það bitni á verð­inu. Mark­aðsvirði Arion banka hefur frá skrán­ingu verið tölu­vert fyrir neðan eigið fé, svo dæmi sé tekið, en það er nú um 150 millj­arðar en eigið fé var í árs­lok 200,9 millj­arðar króna.

Póli­tískt er því ekki mik­ill áhugi á því að losa um eign­ar­hluti rík­is­ins í þessum fyrr­nefndu fyr­ir­tækjum, jafn­vel þó að áhugi sé á því innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Við­reisnar en áhug­inn er þó helst bund­inn við bank­anna.

Til þess að það geti orðið að veru­leika þarf sam­þykki ann­arra flokka til og eins og mál standa nú er sala á eignum ekki á for­gangs­lista Mið­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins