„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bíða átekta fram yfir sumarleyfi

Staða þeirra fjölda ein­stak­linga sem misstu vinn­una í fjölda­upp­sögnum mars­mán­aðar skýrist vænt­an­lega ekki að fullu fyrr en að loknum sum­ar­leyfum. Nýund­ir­rit­aðir kjara­samn­ingar vekja upp vonir um að nið­ur­sveiflan í efna­hags­líf­inu verði ekki lang­vinn og að vinnu­mark­að­ur­inn rétti úr sér fyrr en ella.

Bíða átekta fram yfir sumarleyfi

„Við höfum verið að aðstoða fólk við að skipu­leggja sig í atvinnu­leit­inni. Það er nokkuð um laus störf þótt það hafi heldur verið að kólna að und­an­förnu en við erum líka að leið­beina fólki um nám og atvinnu­mögu­leika erlendis,“ segir Karl Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur á Vinnu­mála­stofnun. Þangað hefur fjöldi fólks leitað eftir upp­sagna­hrin­una í lok mars og fékk stofn­unin 80 millj­óna króna auka­fram­lag úr rík­is­sjóði til að bregð­ast við stór­auknu atvinnu­leysi.

Eftir banka­hrunið héldu fjöl­margir Íslend­ingar til Norð­ur­landa í leit að vinnu en ólík­legt er að það sama verði uppi á ten­ingnum núna. „Það getur hentað mörgum að fara þangað tíma­bundið og þar er alltaf eitt­hvað að finna. Það var mik­ill upp­gangur í Noregi á sama tíma og hrunið varð hér en þetta er ekki jafn­klippt og skorið núna. Það er sam­keppni um sama fólkið víða – verk­fræð­inga, heil­brigð­is­starfs­fólk og tölvu­mennt­aða – en þetta eru ekki hóp­arnir sem eru að missa vinn­una núna,“ segir Karl.

Fara af stað eftir sumarfrí

Fjöldi fólks hefur sömu­leiðis leitað á náðir ráðn­ing­ar­fyr­ir­tækja og var Hag­vangur eitt þeirra fyr­ir­tækja sem opn­uðu dyr sínar fyrir starfs­fólki WOW. „Við buðum upp á opið hús og það var fullur salur þar sem okkar fólk miðl­aði reynslu sinni og þekk­ingu. Það var almennt gott hljóð í fólki,“ segir Katrín S. Óla­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Hagvangs, sem er bjart­sýn fyrir hönd þeirra sem mættu. „Þetta er flest mjög vel menntað fólk og getur gengið í þau störf sem það hefur menntað sig til. Svo er spurn­ing með aðra sem hafa ekki að ein­hverju sér­stöku að hverfa en það er alltaf eft­ir­spurn eftir fólki í mennta- og heil­brigð­is­kerf­inu.“

Þrátt fyrir skyndi­legan atvinnu­missi sagð­ist Katrín samt skynja að fólk sé rólegt yfir stöð­unni. Þar spili tíma­setn­ingin inn í. „Það er stutt í páska­frí og sum­ar­frí mjög fljót­lega eftir það, á meðan margir eru á launum á upp­sagn­ar­fresti. Það eru auð­vitað alltaf ein­hverjir sem vilja ekki vera án vinnu í einn dag en svo eru aðrir sem vilja taka sér langt sum­ar­frí og byrja af krafti þegar líða fer að ágúst. Þetta er sá tónn sem maður heyrir þannig að ég tel að áhrifin komi ekki að fullu í ljós fyrr en að loknum sum­ar­leyfum.“

Kjarasamningar gefa góð fyrirheit

Hag­kerfið hefur tekið að snögg­kólna á und­an­förnum mán­uðum og í ár stefnir í sam­drátt lands­fram­leiðslu í fyrsta skipti frá árinu 2011. Katrín seg­ist vissu­lega hafa fundið fyrir því. „Það er alltaf eitt­hvað um laus störf en heilt yfir hefur það verið minna en við erum vön. Frá því kjara­við­ræð­urnar fóru af stað í haust hafa fyr­ir­tæki haldið að sér höndum og svo kom stór skellur núna í mars og það setur strik í reikn­ing­inn.“

Katrín segir hins vegar að und­ir­ritun kjara­samn­inga í síð­ustu viku veki upp vonir um að bjart­ara sé fram undan. „Við skynjum það að þau sem reka fyr­ir­tæki eru bjart­sýn vegna þess að kjar­samn­ingar leggj­ast ekki með ofur­þunga á fyr­ir­tækin. Samn­ing­arnir taka til lægstu launa og það eru allir sáttir við það. Háar hækk­anir yfir lín­una hefðu þýtt að margir hefðu haldið áfram að sér höndum. Þannig að ég hef trú á því að þetta leys­ist á far­sælli hátt en margir áttu von á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Sósíalistar vilja skera niður ofurlaun ráðamanna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“
Innlent

Sós­í­alistar vilja skera niður ofur­laun ráða­manna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn stingur upp á að ríkið hag­ræði með því að skera niður „ofur­laun og sporslur“ til ráða­manna. Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands var að senda frá sér ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir að ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að ráð­ast í sé að „skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en...
Ragnar skýtur fast á bankana: „Þetta er allt að koma segir fjármálaráðherra!!“
Innlent

Ragnar skýtur fast á bank­ana: „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!!“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son skýtur föstum skotum á fjár­mála­ráð­herra og bank­ana í ljósi vaxta­hækk­ana Arion banka. Verka­lýðs­for­ing­inn Ragnar Þór Ing­ólfs­son er ekki ánægður með Arion banka frekar en margir aðrir eftir að bank­inn til­kynnti um 15 pró­sent vaxta­hækkun. „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!! Bank­arnir eru í óða önn að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, í að ná niður...
Stéttarfélög boða til mótmæla á Austurvelli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu“
Innlent

Stétt­ar­fé­lög boða til mót­mæla á Aust­ur­velli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efna­hags­á­stand­inu“

Nokkur stétt­ar­fé­lög hafa boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun, þriðju­dag­inn 10. sept­em­ber klukkan 16:00. Alþýðu­sam­band Íslands, BSRB og Kenn­ara­sam­band Íslands boða til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun en ætl­unin er að mót­mæla skeyt­inga­leysi stjórn­valda gagn­vart hárri verð­bólgu og vöxtum. „Þrálát verð­bólga og háir vextir hafa haft alvar­legar afleið­ingar á fjölda heim­ila lands­ins vegna síhækk­andi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næð­is­kostn­aðar....
Björn lætur ráðherra heyra það: „Heimskulegustu ummæli ársins 2024“
Menning

Björn lætur ráð­herra heyra það: „Heimsku­leg­ustu ummæli árs­ins 2024“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrrum rit­stjóri frá Grinda­vík segir ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjár­mála­ráð­herra sem hann lét falla á dög­unum, örugg­lega flokk­ast með „heimsku­leg­ustu ummælum árs­ins 2024“. Ummæli Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kast­ljósi á dög­unum, féll væg­ast sagt í kramið hjá mörgum Íslend­ingum en þar sagði hann það vera í erfða­efni Íslend­inga að sætta sig við...
Segir ríkisvaldið líta á almenning sem blóðmerar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auðvaldsins“
InnlentEfnahagsmál

Segir rík­is­valdið líta á almenn­ing sem blóð­merar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auð­valds­ins“

Gunnar Smári Egilsson segir að rík­is­valdið líti á almenn­ing sem blóð­merar. Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson er síður en svo sáttur við óbreytta stýri­vexti Seðla­bank­ans sem til­kynntir voru í morgun. Segir hann í harð­orðri Facebook-færslu að í fram­tíð­inni verði hugs­an­lega settir upp „gam­anóp­eru“um fundi pen­inga­nefnd Seðla­bank­ans en þangað til sé þetta ekki fyndið. „Kannski verða þessi fundir settir upp sem gam­anóp­erur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins