„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Eitthvað er ekki eins og það á að vera“

Lögmenn eru sumir hverjir enn æfir vegna aðkomu Sveins Andra Sveins­sonar að þrota­búi flug­fé­lags­ins WOW air. Heim­ilda­maður Mannlífs, lög­maður til margra ára, furðar sig á því að dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur en ekki hér­aðs­dóm­ari skuli hafa skipað Svein Andra skipta­stjóra.

„Eitthvað er ekki eins og það á að vera“
Sveinn Andri Sveins­son.

Ákvörðun Símonar Sig­valda­sonar, dóm­stjóra Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að úthluta þrota­búi WOW air til Sveins Andra Sveins­sonar hefur valdið titr­ingi innan lög­manna­stétt­ar­innar. Hver lög­mað­ur­inn á fætur öðrum hefur komið fram í fjöl­miðlum og gagn­rýnt skip­an­ina. Þung orð hafa fallið um ógagn­sæi og spill­ingu innan Hér­aðs­dóms Reykja­víkur. Heim­ilda­maður Mannlífs segir óvenju­legt að dóm­stjóri skuli hafa úthlutað þrota­bú­inu. Reglan sé sú að hér­aðs­dóm­ari beri ábyrgð á mála­flokknum, en sterk tengsl séu á milli hans og Sveins Andra.

Heim­ilda­maður Mannlífs er lög­maður sem hefur langa reynslu af gjald­þrota­málum og hann bendir á að eng­inn virð­ist hafa spurt að því hvers vegna dóm­stjóri, Símon Sig­valda­son, hafi und­ir­ritað úrskurð­inn og úthlutað þrota­bú­inu. „Það er mjög sér­stakt að dóms­stjóri hafi skrifað undir gjald­þrota­úr­skurð, það hefur held ég bara aldrei gerst áður. Venju­lega reglan er sú að hér­aðs­dóm­ari sem ber ábyrgð á mála­flokknum sem sér um þessi gjald­þrota­mál eða aðstoð­ar­menn í umboði hans,“ segir lög­mað­ur­inn sem kýs að láta ekki nafn síns getið.

„Það er auð­vitað bara í gegnum vin hans. Þetta eru hans tengsl.“

Hér­aðs­dóm­ar­inn sem ber ábyrgð á mála­flokki gjald­þrota­mála er Lár­entsínus Krist­jáns­son, fyrrum hæsta­rétt­ar­lög­maður en hann var skip­aður í emb­ættið árið 2015. Heim­ilda­maður Mannlífs segir að sterk tengsl séu á milli hans og Sveins Andra. „Tengslin eru nokkuð vel kunn, í það minnsta mörgum lög­mönnum og nokkrum dóm­urum. Þeir eru vinir til margra ára og voru sam­starfs­menn í gegnum Lög­fræði­stofu Reykja­víkur og þekkt­ust áður í gegnum SUS og háskólapóli­tík. Lár­entsínus ræður þessum mála­flokki og ber ábyrgð á honum, þannig að það skal engan undra að Sveinn Andri Sveins­son er far­inn að fá mjög reglu­lega mál í gegnum þrotabú. Það er auð­vitað bara í gegnum vin hans. Þetta eru hans tengsl.“

Farið eftir reglum

Mannlíf bar þetta undir þá Lár­ent­ínus Krist­jáns­son hér­aðs­dóm­ara og Símon Sig­vald­as­son dóm­stjóra og sendi sá síð­ar­nefndi blaða­manni eft­ir­far­andi skrif­legt svar: „Lög­lærðir aðstoð­ar­menn dóm­ara sjá um upp­kvaðn­ingar gjald­þrota­úr­skurða í öllum málum hér hjá okkur. Það var einnig svo í þessu til­viki. Fyr­ir­svars­menn Wow air snéru sér beint til mín á mánu­dags­morgn­inum síð­asta til að unnt yrði að koma mál­inu strax í réttan far­veg til að úrskurður yrði kveð­inn upp svo fljótt sem verða mætti. Gríð­ar­legir hags­munir voru í húfi og mik­il­vægt að málið gengi greið­lega fyrir sig. Ég ákvað í fram­hald­inu hverjir yrðu skip­aðir skipta­stjórar og fór aðstoð­ar­mað­ur­inn eftir því,“ segir m.a. í skrif­legu svari Símonar, sem getur þess að þrota­búum sé úthlutað eftir lista sem liggi fyrir. Á honum séu lög­menn sem áhuga hafa á því að taka að sér skipta­stjórn, bæði reynslu­miklir lög­menn sem starfað hafa að skipta­stjórn í mörg ár, sem og yngri og nýút­skrif­aða lög­menn, sem tak­mark­aða reynslu hafa af þessum störfum. Þrota­búum sé úthlutað í réttri röð eftir list­anum. Þegar um allra stærstu búin er að ræða sé þeim úthlutað sér­stak­lega. Þar sé farið eftir við­miðum, sem stuðst hefur verið við í mörg ár, um að lög­menn hafi víð­tæka og far­sæla reynslu af skiptum stórra og flók­inna búa og hafi yfir að ráða starf­semi sem ræður við slíkt starf.

„Ég kem ekki að þessum málum nema þegar um allra stærstu búin er að ræða, og þau eru til­tölu­lega sjald­gæf. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem það ger­ist. Ekkert slíkt bú kom inn á árinu 2018, en ég kom til starfa sem dóm­stjóri í lok árs 2017,“ segir jafn­framt í svari Símonar.

Vilja Svein Andra burt

Greint var frá því í nýjasta tölu­blaði Mannlífs að Arion banki hafi óskað eftir því að Sveinn Andri Sveins­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og nýskip­aður skipta­stjóri þrota­bús WOW air, yrði settur af vegna van­hæfis, en bank­inn er stór kröfu­hafi í búið. Þetta stað­festi Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka í sam­tali við Mannlíf. Hann stað­festi einnig að þetta tengd­ist ágrein­ingi bank­ans við bústjóra þrota­bús tölvu­fyr­ir­tæk­is­ins Data Cell þar sem Arion er stærsti kröfu­haf­inn. Sveinn Andri er skipta­stjóri í því búi.

Fyrr­nefndur Símon Sig­valda­son, dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, segir hins vegar að Sveinn Andri muni verða áfram skipta­stjóri yfir búinu. Þetta kemur fram í dag í skrif­legu svari Símonar við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV um málið. Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Vísis segir svo Símon að krefj­ist bank­inn form­lega úrskurðar, sem ekki hafi komi til hingað til, verði erindið að sér­stöku máli. Málið fari síðan í venju­legan far­veg sem endi með úrskurði.

Skrítin skipan í ljósi fyrri embættisgjörða

Eins og áður hefur komið fram í fjöl­miðlum hefur ákvörðun Símonar Sig­valda­sonar, dóm­stjóra Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, að úthluta þrota­búi WOW air til Sveins Andra reitt marga lög­menn til reiði. Lög­menn­irnir Kristrún Elsa Harð­ar­dóttir og Saga Ýrr Jóns­dóttir sögðu í Frétta­blað­inu að skipan hans væri skrítin í ljósi þess að hann væri umdeildur vegna fyrri emb­ætt­is­gjörða sem skipta­stjóri yfir öðrum stórum búum. Þar vísa þær til þess að fjögur félög kærðu hann nýlega, m.a. Mjólk­ur­sam­salan og Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands, vegna þrota­bús EK1923.

Lög­mað­ur­inn Þórður Már Jónsson gengur lengra í færslu á Facebook og sakar Hér­aðs­dóm um að úthluta Sveini bestu bit­unum eftir henti­semi. „Ég veit ekki hvað maður á að halda um þetta, en ein­hverjir eru farnir að nefna orðið spill­ing. Ég veit ekki hvað ég á að halda per­sónu­lega, en það er ljóst að eitt­hvað er ekki eins og það á að vera. Bara alls ekki …,“ segir Þórður m.a. í færsl­unni. Símon Sig­valda­son hefur hins vegar vísað ásök­unum Þórðar á bug í sam­tali við Vísi og sór jafn­framt af sér nokkur tengsl við Svein Andra sem gæfi honum til­efni til þess að hygla honum sér­stak­lega.

Mynd / Kristinn Magn­ús­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins