„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Icelandair glímir við annars háttar vanda en WOW

Icelandair hefur gengið í gegnum tölu­verða erf­ið­leika að und­an­förnu og tap félags­ins á síð­ustu þremur mán­uðum síð­asta árs upp á 6,8 millj­arða króna gefur vís­bend­ingu um harða sam­keppni í flug­iðn­aði í heim­inum um þessar mundir.

Icelandair glímir við annars háttar vanda en WOW

Slök afkoma Icelandair gerði það að verkum að það virkj­uð­ust ákvæði gagn­vart eig­endum skulda­bréfa­flokka félags­ins sem ekki tókst að end­ur­semja við. Því fékk Icelandair um tíu millj­arða króna að láni frá rík­is­bank­anum Lands­bank­anum í byrjun árs 2019 til að gera upp við þá. Í raun var Lands­bank­inn að taka yfir þann hluta fjár­mögn­unar Icelandair vegna þess að skulda­bréfa­eig­end­urnir vildu ekki halda á henni lengur.

Und­an­farnir mán­uðir hafa líka leitt af sér aðrar ófyr­ir­séðar áskor­anir og bann við notkun á 737 Max 8-vélum Boeing, eftir hörmu­leg flug­slys í Indónesíu og Eþíópíu sem urðu sam­tals 346 að bana, öllum um borð í báðum vélum, hefur haft nei­kvæð áhrif á starf­sem­ina. Í til­kynn­ingum frá Icelandair hefur þó komið fram að félagið geti til skamms tíma leyst þann vanda sem fylgir því að þurfa að taka þrjár vélar af fyrr­nefndri gerð úr umferð, en til lengri tíma þarf að finna var­an­lega lausn á mál­unum, ef bannið við notkun á vél­unum dregst á lang­inn.

Icelandair er þó í sterkri fjár­hags­stöðu þegar kemur að eigið fé. Í lok árs í fyrra nam eigið fé 55 millj­örðum króna, en skuld­irnar voru 992 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 110 millj­örðum króna. Búast má við því að næstu mán­uðir verði krefj­andi fyrir íslensku flug­fé­lögin. Þrátt fyrir að á þriðja tug flug­fé­laga fljúgi til Íslands og tengi landið við um 100 áfanga­staði þá eru Icelandair og WOW air mik­il­væg­ustu flug­fé­lögin þegar kemur að íslenskri ferða­þjón­ustu.

Öll greinin birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins