„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þetta er ömurlegt og á ekki að þurfa að gerast

Elín Richter, Sindri Bjarka­son og Amíra Snærós Jabali og skóla­systk­ini þeirra berj­ast fyrir því að skóla­systir þeirra, Zainab Safari og fjöl­skyldu hennar, verði ekki vísað úr landi.

Þetta er ömurlegt og á ekki að þurfa að gerast
Aldís Páls­dóttir

Elín segir að mark­miðið með aðgerðum sé ein­falt. „Við viljum bara halda þeim á Íslandi, til þess að þeim líði vel og að þau séu örugg.“ Sindri bendir á að fyrir þeim sé þetta einmitt hlut­verk réttinda­ráðs­ins. í Haga­skóla, sem hann og Elín eiga sæti í „Þar er mark­miðið að stuðla að rétt­indum barna og reyna að sjá til þess að íslensk stjórn­völd starfi eftir Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ísland er aðili að þessum sátt­mála og á þar af leið­andi að fara alltaf eftir honum.“

Amíra Snærós var ein af þeim sem kom að und­ir­skrifta­söfn­un­unni og hún segir að þau hafi mikið hugsað um hvernig mætti ná til stjórn­valda og fá þau til þess að taka mark á því sem þau voru að koma á fram­færi. „Við ákváðum að gera þetta svona form­lega en ekki bara á Facebook til þess að það leyndi sér ekki að okkur er alvara og við söfn­uðum 6200 und­ir­skriftum.“ Aðspurð um hvað þeim hafi fund­ist um að það hafi borist athuga­semdir við þetta frá ein­hverjum for­eldrum þá stendur ekki á svari: „Við vorum fyrst og fremst von­svikin. Und­ar­legt að ein­hverjum finn­ist að við megum ekki hafa okkar skoðun og leggja ein­hverjum lið sem skiptir okkur máli. Það var ekki heldur þannig, eins og ein­hverjir hafa haldið fram, að for­eldrar okkar stýrðu okkur í þessu. Það var alls ekki þannig. Við erum alveg með okkar skoð­anir og getum komið þeim á fram­færi sjálf.”

„Ég held að við getum í fyrsta lagi tekið á móti miklu fleirum en við gerum núna. Það er eitt að taka ekki við flótta­mönnum en annað að senda þá úr landi eftir að þeir hafa dvalið hér í nokkurn tíma og þá jafn­vel gengið hér í skóla og eign­ast eitt­hvað líf eins og Zainab.“

En hvað getið þið gert fleira til þess að leggja ykkar af mörkum? „Hvað getum við gert? Hvað getum við ekki gert?“ svara þau nán­ast einum rómi og það leynir sér ekki að þau hafa langt frá því lagt árar í bát í bar­átt­unni fyrir Zainab.

Aðspurð um hvort þau telji að það sé hlustað á það sem þau hafi fram að færa segja þau að það sé vissu­lega tekið eftir þeim ef eitt­hvað er að marka fjöl­miðla, en eins og Sindri segir „á svo eftir að koma í ljós hvort það er hlustað af þeim sem ráða.“ Elín tekur undir þetta og minnir á að það sé dap­ur­legt að hugsa til þess að Zainab verði kannski send í burtu með skömmum fyr­ir­vara og sé þá allt í einu komin á göt­una í Grikk­landi. „Það er ömur­legt og á ekki að þurfa að ger­ast.“

Við þetta berst talið að því að sumir hafi haft á orði að Íslend­ingar geti ein­fald­lega ekki tekið við öllum sem hingað leita og þess vegna séu hæl­is­leit­endur sendir aftur burt. Að Íslend­ingar geti ein­fald­lega ekki tekið að sér að bjarga öllum en um það hefur Sindri sitt­hvað að segja. „Ég held að við getum í fyrsta lagi tekið á móti miklu fleirum en við gerum núna. Það er eitt að taka ekki við flótta­mönnum en annað að senda þá úr landi eftir að þeir hafa dvalið hér í nokkurn tíma og þá jafn­vel gengið hér í skóla og eign­ast eitt­hvað líf eins og Zainab.“

Skóla­systur hans taka undir þetta og minna á að þetta hljóti að horfa öðru­vísi við þegar um börn er að ræða. Þau eru líka öll sam­mála um það að stjórn­völd þurfi að standa sig miklu betur. „Við þurfum að koma betur fram við þá sem vilja, nei, ég meina neyð­ast, til þess að koma til Íslands og vilja eiga hér frið­sam­legt líf. Við þurfum líka að leyfa fólki að vinna og bæta þannig sinn eigin hag og okkar sem sam­fé­lags. Það er gott fyrir alla.“

Mynda­texti: Vin­kon­urnar og skóla­syst­urnar Zainab Safari og Elín Sara Richter.
Ljós­mynd­ari: Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins