„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svartasta sviðsmyndin verður að veruleika

Íslenskt hag­kerfi stefnir hraðri leið í sitt fyrsta sam­drátt­ar­skeið í 10 ár. Fall WOW air gerir það að verkum að svartasta sviðs­myndin sem teiknuð var upp í nýrri hag­spá Arion banka virð­ist ætla að ganga eftir.

Svartasta sviðsmyndin verður að veruleika

Hvert áfallið á fætur öðru rekur á fjörur íslensks efna­hags­lífs um þessar mundir. Vinnu­mark­að­ur­inn er í upp­námi og ef ekki semst fljót­lega skellur á hrina verk­falla í apríl og maí, tap af loðnu­bresti miðað við útflutn­ings­tekjur í fyrra jafn­gildir því að ferða­mönnum fækki um 124 þús­und og fall WOW air í gær er svo þyngsta höggið til þessa. Arion banki kynnti í vik­unni nýja hag­spá og í ljósi þeirrar stöðu sem WOW var í ákvað grein­ing­ar­deild bank­ans að kynna tvær hag­spár, eina þar sem gert er ráð fyrir að WOW lifði af og aðra þar sem WOW hyrfi af mark­aði. Því miður hefur síð­ari val­mögu­leik­inn raun­gerst.

Samkvæmt spánni hafði verið gert ráð fyrir 0,8 pró­senta sam­drætti lands­fram­leiðslu og fækkun ferða­manna um níu pró­sent hefði WOW lifað af. En með falli WOW hljóðar spáin upp á nærri tveggja pró­senta sam­drátt og fækkun ferða­manna um 16 pró­sent. Gera má ráð fyrir að þessi mikla fækkun ferða­manna hafi áhrif á störf víðar en bara hjá WOW og þeirra helstu við­skipta­vinum. Ferða­þjón­usta er vinnu­afls­frek atvinnu­grein og fyrir hverja 110 ferða­menn hefur orðið til eitt nýtt starf. Er það mat bank­ans að störfum geti fækkað um allt að 2.500 á næstu 12 mán­uðum. Mörg ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki standa nú þegar höllum fæti og óvíst hvort þau geti staðið af sér fall WOW ofan í fyr­ir­séðar launa­hækk­anir.

Góðu frétt­irnar eru þær að hag­kerfið er mun betur í stakk búið til að takast á við áfall nú en það var árið 2008. Skulda­staða rík­is­sjóðs, fyr­ir­tækja og heim­ila er almennt góð og erlend staða þjóð­ar­bús­ins „ævin­týra­leg“ eins og Erna Björg Sverr­is­dóttir, sér­fræð­ingur Arion banka, orð­aði það. Þá á Seðla­banki Íslands 750 millj­arða króna í hreinum gjald­eyr­is­forða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins