„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hefur lifað í samfelldum ótta undanfarna 17 mánuði“

Jane Lumeah, móðir Nöru Walker, segir að fang­els­is­vistin á Íslandi hafi vissu­lega tekið á dóttur sína en að sama skapi hafi hún fengið tæki­færi til að upp­götva sjálfa sig.

„Hefur lifað í samfelldum ótta undanfarna 17 mánuði“
Daníel Wirkner

Nara Walker, áströlsk kona sem var dæmd í 18 mán­aða fang­elsi hér­lendis fyrir að bíta hluta tung­unnar úr eig­in­manni sínum, ætlar að freista þess að fá málið tekið upp hjá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Hún gæti átt yfir höfði sér brott­vísun eftir að afplánun lýkur. Þetta segir Jane Lumeah, móðir Nöru, en Fang­els­is­mála­stofnun hafn­aði beiðni Mannlífs um að ræða við Nöru og var vísað til hags­muna brota­þola, það er eig­in­manns hennar, við þá ákvörðun og þess hversu stór hluti refs­ing­ar­innar er skil­orðs­bund­inn.

Jane segir að fang­els­is­vistin hafi vissu­lega tekið á Nöru en að sama skapi hafi hún fengið tæki­færi til að upp­götva sjálfa sig. „Hún hefur sagt að fang­elsið sé í raun örugg­ara en hjóna­band hennar. Hún hefur nýtt tím­ann vel, hún hefur skrifað, æft og málað. Hún fær að hringja í mig á Skype einu sinni í viku. Það er eins og veisla fyrir mér. Þegar við tölum saman sé ég að hún er að reyna að gera það besta úr stöð­unni en ég sé líka að þetta er henni erfitt, að vera aðskilin frá vinum sínum, ein­angruð, ófrjáls.“

Jane segir að til að bæta enn á óviss­una hafi Nöru borist bréf þar sem henni var til­kynnt að hafið sé ferli um mögu­lega brott­vísun úr landi eftir að afplánun lýkur. Slík nið­ur­staða gæti þýtt miklar hömlur á ferða­frelsi hennar í Evrópu, segir Jane sem býst þó við að Nara snúi aftur til Ástralíu eftir að hún hefur setið af sér dóm­inn. „Hún þarf tíma með fjöl­skyldu sinni til að jafna sig. Hún hefur lifað í sam­felldum ótta und­an­farna 17 mán­uði. Hún hefur þurft að glíma við aukin ein­kenni áfallastreiturösk­unar, ára­langt ofbeldi og nú síð­ast rétt­ar­höldin sem virð­ast fram­leng­ing á mis­notk­un­inni.“

„Hún þarf tíma með fjöl­skyldu sinni til að jafna sig. Hún hefur lifað í sam­felldum ótta und­an­farna 17 mán­uði.“

Jane býst þó ekki við að hún verði heima lengi. Eitt af fyrstu verkum Nöru verði að fara með málið skrefi lengra, til Strass­borgar. „Hún ætlar með málið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Hún vill gera það, ekki bara sín vegna heldur einnig fyrir þær konur sem hafa þurft að ganga í gegnum sömu reynslu. Hún vill að lögin veiti konum sem hafa þurft að sæta heim­il­is­of­beldi meiri vernd.“

Lestu lengra við­tal við Jane hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nara walker

Hún sagði mér að fangelsið væri öruggara en hjónabandið
Innlentnara walker

Hún sagði mér að fang­elsið væri örugg­ara en hjóna­bandið

Móðir Nöru Walker, sem var dæmd í 18 mán­aða fang­elsi hér­lendis fyrir að bíta hluta tung­unnar úr þáver­andi eig­in­manni sínum, seg­ist hafa verið lömuð af ótta þegar hún fékk fréttir af því að dóttir hennar sæti í fang­elsi hinu meg­inn á hnett­inum. Þrátt fyrir að vera ósátt við þá með­ferð sem Nara fékk frammi fyrir íslenskum dóm­stólum er hún mjög hrifin af Íslandi og íslenskri þjóð.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins