„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vaxandi áhyggjur af hatursorðræðu í Evrópu

Í skýrslu grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra um hryðju­verkaógn segir að Evr­ópu­lög­reglan hafi í vax­andi mæli greint upp­gang hat­urs­orð­ræðu, sam­bæri­legu við það sem alrík­is­lög­reglan FBI segir í sinni skýrslu. Sam­fé­lags­miðl­arnir eru þar mið­punkt­ur­inn í því að dreifa áróðr­inum.

Vaxandi áhyggjur af hatursorðræðu í Evrópu

„Evr­ópu­lög­reglan sér fram á að umræður á sam­fé­lags­miðlum muni í vax­andi mæli ein­kenn­ast af gíf­ur­yrðum og hat­urs­orð­ræðu. Vakin er athygli á að í sumum aðild­ar­ríkjum ESB hafi þess orðið vart að borg­arar hafi myndað eft­ir­lits­hópa sem fara um götur og hverfi. Stjórn­völd í Finn­landi hafi upp­lýst að í sumum bæjum haldi „Finnska and­spyrnu­hreyf­ingin“ uppi slíku eft­ir­liti og segja hana vera hluta af „Norrænu and­spyrnu­hreyf­ing­unni“ en svo nefn­ast sam­tök skand­in­av­ískra þjóð­ern­issós­í­alista sem starf­ræki deildir í Svíþjóð, Noregi og Danmörku.

„ Evr­ópu­lög­reglan vekur athygli á þeim mögu­leika að tölvu­tækni kunni að gegna mik­il­vægu hlut­verki í hryðju­verka­árásum fram­tíð­ar­innar. “

Evr­ópu­lög­reglan segir að ógnin geti lýst sér í ofbeld­is­verkum ein­stak­linga og hópa og nefnir að í fram­tíð­inni kunni lík­ams­árásum, íkveikjum og alvar­legri verkn­uðum, þ.m.t. morðum að fjölga. Enn fremur kunni ein­stak­lingar, stjórn­mála­flokkar, fjöl­miðlar og mann­rétt­inda­sam­tök sem and­mæla mál­flutn­ingi öfga­hópa að verða fórn­ar­lömb hat­ursá­róð­urs og hvatn­ingar til ofbeld­is­verka. Nokkur nýleg dæmi þess sem Evr­ópu­lög­reglan gerir að umtals­efni í skýrslu sinni eru þekkt. Í jan­úar 2017 gekkst þýska lög­reglan fyrir viða­miklum aðgerðum í nokkrum sam­bands­löndum sem beindust gegn hægri-öfga­sam­tökum sem kalla sig „Reichsbürger“. Að sögn lög­regl­unnar höfðu sam­tökin skipu­lagt árásir gegn gyð­ingum, hæl­is­leit­endum og lög­reglu. Kveikt hefur verið í dval­ar­stöðum hæl­is­leit­enda í nokkrum ríkjum ESB,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni.

Í henni segir jafn­framt að sam­vinna lög­reglu milli landa sé lyk­il­at­riði í þeirri vinnu að greina ógnir vegna hat­urs­glæpa og hryðju­verkaógnar. Þar megi gera betur.

Árásin á Nýja-Sjálandi – frið­sælu litlu landi sem var ólík­legur vett­vangur hryðju­verka­árásar – er dæmi um það, að ekk­ert land getur litið svo á að það sé laust við hryðju­verkaógn í nútíma­sam­fé­lagi. Sam­fé­lags­miðl­arnir hafa leitt til þess að auð­velt er að finna þá sem veikir eru fyrir því að falla fyrir hat­ursá­róðri og ráð­ast gegn sak­lausum borg­urum.

„Hvað mögu­legar fram­tíðarógnir varðar kann nýt­ing tölvu­tækni að vera sér­stakur hvati fyrir hryðju­verka­sam­tök þar sem hún getur gefið færi á atlögu úr fjar­lægð og þar með minnkað áhættu. Evr­ópu­lög­reglan vekur athygli á þeim mögu­leika að tölvu­tækni kunni að gegna mik­il­vægu hlut­verki í hryðju­verka­árásum fram­tíð­ar­innar. Í skýrslu grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra frá mars­mán­uði 2016 er ítar­lega fjallað um net- og tölvu­glæpi, helstu ógnir á því sviði og mik­il­væga inn­viði. Tækni­þróun vekur upp ýmsar spurn­ingar og jafn­vel áskor­anir á sviði örygg­is­mála. Drónar og önnur sjálf- eða fjar­stýrð tæki skapa mögu­leika á nýjum teg­undum árása. Þetta á t.a.m. við um sjálf­stýrðar/-keyr­andi bif­reiðar og telja sér­fræð­ingar sumir hverjir að vest­ræn sam­fé­lög þurfi að vera undir það búin að hryðju­verka­menn færi sér þessa nýju tækni í nyt,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni.

Mynd: Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, hefur tek­ist á við myrkasta tíma í sögu lands­ins með því að reyna að setja sig í spor fórn­ar­lamba mann­skæð­ustu skotárásar sem átt hefur sér stað þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins