„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óvissa umlykur helstu atvinnugreinar

Íslenskt efna­hags­líf stendur frammi fyrir ein­hverjum mestu áskor­unum síðan á árunum eftir hrun.

Óvissa umlykur helstu atvinnugreinar
Flug­fé­lögin

Nagandi óvissa í flug­rekstri
Framtíð WOW air hefur hangið á blá­þræði í allan vetur. Samn­inga­við­ræður um yfir­töku Indigo Partners hafa staðið yfir í mán­uði en gangi þær ekki upp og eng­inn kemur félag­inu til bjargar er ein­ungis tíma­spurs­mál hvenær WOW leggur upp laupana. Félagið flutti 160 þús­und far­þega í fyrra en ljóst er að þeir verða færri í ár vegna minnk­andi umsvifa félags­ins. Icelandair skil­aði sömu­leiðis miklu tapi í fyrra og til að bæta gráu ofan á svart neydd­ist félagið til að kyrr­setja þrjár Boeing 737 MAX-vélar sem áttu að spila stórt hlut­verk í leiða­kerfi félags­ins í fram­tíð­inni.

Þrengir að ferða­þjón­ust­unni
Minna sæta­fram­boð til lands­ins er ávísun á enn frek­ari fækkun ferða­manna en nú er í kort­unum. Í jan­úar komu 5,8 pró­sent færri ferða­menn til lands­ins en á sama tíma í fyrra og nýt­ing hót­el­her­bergja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 7 pró­sentu­stigum minni. Fréttir af versn­andi afkomu fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu hafa verið tíðar að und­an­förnu, hvort sem um ræðir hótel, bíla­leigur eða hóp­ferða­fyr­ir­tæki. Þar spilar sterkt gengi krón­unnar hlut­verk en hún hefur, þrátt fyrir allt mót­lætið í atvinnu­líf­inu, verið að styrkj­ast fremur en hitt.

Verk­falls­hrina að hefj­ast
Flest af stóru verka­lýðs­fé­lögum lands­ins hafa slitið kjara­við­ræðum og bætt­ust iðn­að­ar­menn og Starfs­greina­sam­bandið í hóp­inn um helg­ina. VR og Efling hafa boðað verk­falls­hr­inu næstu vikur og hafa þau kosið að beina spjótum sínum að ferða­þjón­ust­unni fyrst um sinn. Hafa félögin boðað tíma­bundin verk­föll í mars og apríl og svo ótíma­bundna vinnu­stöðvun frá 1. maí verði ekki samið fyrir þann tíma. Ekkert þok­ast í við­ræðum á milli deilu­að­ila og átökin hafa farið harðn­andi ef eitt­hvað er.

Loðnan hverfur
Eins og vand­ræðin í þjóð­ar­bú­inu hafi ekki verið næg fyrir tók loðnan, einn mik­il­væg­asti nytja­fiskur þjóð­ar­innar, upp á því að láta sig hverfa þannig að Haf­rann­sókn­ar­stofnun sér ekki til­efni til að gefa út loðnu­kvóta í ár. Útflutn­ings­verð­mæti loðnu í fyrra námu 17,8 millj­örðum króna sem jafn­gildir 0,6 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Afla­brest­ur­inn mun koma sér­stak­lega illa við bæj­ar­fé­lög á lands­byggð­inni, einkum á Aust­fjörðum og í Vest­manna­eyjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Fjármálastjóri Play sakaður um spillingu – Situr í stjórn sem „dæli fé inn í félagið“
Innlentflugfélög

Fjár­mála­stjóri Play sak­aður um spill­ingu – Situr í stjórn sem „dæli fé inn í félagið“

Þóra Egg­erts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Play, situr í stjórn eins af stærstu hlut­höfum flug­fé­lags­ins, líf­eyr­is­sjóðs­ins Birtu. Sjóð­ur­inn sker sig úr hvað varðar íslenska líf­eyr­is­sjóði þegar kemur að því að fjár­festa í Play og hefur stjórnin nú þegar sam­þykkt að leggja meira fé til félags­ins. Samkvæmt Sam­stöð­inni er Birta einn af stærstu hlut­höf­unum í Play með 8,5 pró­senta eign­ar­hlut, sem kost­aði sjóð­inn...
Innlentflugfélög

Aðal­eig­andi Icelandair í skattapara­dís: „Auðvitað til að greiða sem minnst í sam­eig­in­lega sjóði“

Aðal­eig­andi íslenska flug­fé­lags­ins Icelandair geymir hlut sinn í félag­inu í skattapara­dís sem notuð er af alþjóð­legum félögum til að kom­ast hjá skatt­greiðslum. Um er að ræða banda­ríska hrægamma­sjóð­inn Bain Capital sem með 17 pró­senta eign­ar­hlut sínum er langstærsti hlut­hafi Icelandair. Hlutinn geymir sjóð­ur­inn í írska félag­inu Blue Issuer en Írland er þekkt skattapara­dís. Gylfi Magn­ús­son, for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans og fyrr­ver­andi...
Birgir harmar upplifun farþega af óboðlegu hóteli: „Þetta er bara viðbjóðslegt“
Innlentflugfélög

Birgir harmar upp­lifun far­þega af óboð­legu hót­eli: „Þetta er bara við­bjóðs­legt“

For­stjóri flug­fé­lags­ins Play harmar upp­lifun far­þega sem sendir voru á hótel sem upp­fyllti væg­ast sagt ekki kröfur, þegar þeir voru stranda­glópar í París eftir að flug­ferð félags­ins var aflýst. Vísir greinir frá þessu. Birgir Jónsson, for­stjóri Play, er sam­mála því að hót­elið sem far­þeg­unum var boðið upp á í París hafi verið óvið­un­andi. „Ég er bara sam­mála þessu fólki sem...
Birgir boðar hækkun á verði flugmiða: „Það er óumflýjanlegt“
Innlentflugfélög

Birgir boðar hækkun á verði flug­miða: „Það er óum­flýj­an­legt“

Birgir Jónsson, for­stjóri Play, segir óum­flýj­an­legt að hækkun á olíu­verði í heim­inum í dag muni valda hækkun á verði flug­miða. Þetta segir hann í við­tali við RÚV. Hann segir standa til að lág­marka rekstr­ar­kostnað flug­fé­lags­ins til þess að mæta auknum kostn­aði. „Það er alveg ljóst að ef heims­mark­aðs­verð á elds­neyti hækkar um tugi pró­senta mun það skila sér í hærra...
Fleiri flugfélög til Íslands – verða 25 talsins í sumar
Innlent

Fleiri flug­fé­lög til Íslands – verða 25 tals­ins í sumar

Alls fljúga fimmtán flug­fé­lög til Íslands í ár en það eru einu fleiri en árið 2019, fyrir heims­far­ald­ur­inn. Þá er búist við miklum fjölda ferða­manna hingað til lands eða allt að 1,2 milljón manns. Bendir hvort tveggja til um kröft­uga við­spyrnu í ferða­þjón­ustu hér á landi og segir Guð­mundur Daði Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta og þró­unar hjá Isavia spána vera gleði­fréttir....
Niceair hefur flug frá Akureyri til Evrópu í sumar
Innlentflugfélög

Niceair hefur flug frá Akureyri til Evrópu í sumar

Nýtt flug­fé­lag sem ber nafnið Niceair hefur starf­semi í sumar. Flug­fé­lagið mun hefja milli­anda­flug frá Akureyri næsta sumar og verður í upp­hafi með eina Airbus 319 flug­vél sem tekur 150 far­þega. Þor­valdur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fra­kvæmda­stjóri og flug­maður flug­fé­lags­ins sagði í við­tali við Frétta­blaðið að mikil þörf væri á milli­landa­flugi fyrir Norður- og Aust­ur­land. Áætlað er að fyrsta flugið verði 2.júní...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins