„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Viðbótarkostnaður vegna rangrar klæðningar

Verklok vegna við­bygg­ingar Kletta­skóla tefj­ast fram á sumar.

Viðbótarkostnaður vegna rangrar klæðningar
Sum börn eru ekki hrifin af sund­kennslu – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Á vor­dögum á síð­asta ári var ný sund­laug tekin í notkun í Kletta­skóla (áður Öskju­hlíð­ar­skóla). Skömmu síðar fóru loft­plötur að falla niður í laug­ina. Atvikin gerð­ust á kvöldin og um helgar og voru rakin til galla í loft­ræsti­kerfi sem slökkti á sér. Við það steig mik­ill raki til lofts sem loft­plöt­urnar drukku í sig. Við nán­ari athugun kom í ljós að plöt­urnar sem not­aðar voru stóð­ust ekki kröfur og hefur þeim nú verið skipt út. Þeim við­gerðum lauk í síð­asta mán­uði.

Aðspurður um hvers vegna úrbætur á lofti sund­laug­ar­innar hafi tekið svo langan tíma svarar Bjarni Brynj­ólfs­son, upp­lýs­inga­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, skrif­lega til Mannlífs að upp­haf­lega hafi verið talið að vanda­málið staf­aði ein­göngu af bilun í loft­ræsti­kerfi sem átti það til að stöðvast.

Síðan versn­aði ástandið eftir því sem loft­ræsti­kerfið datt oftar út. Það má e.t.v. segja að það hafi verið lán í óláni að loft­ræsti­kerfið bil­aði því ann­ars hefði ekki komið í ljós svona fljót­lega að loft­klæðn­ingin var óhentug fyrir rýmið.

„Því var reynt að lag­færa það fyrst en það reynd­ist vera snúið. Síðan kom í ljós að klæðn­ing í lofti (loft­plötur) hent­aði ein­fald­lega ekki í sund­laug­ar­rými þar sem plöt­urnar voru of raka­drægar. Það fór að bera á vanda­mál­inu fljót­lega eftir að sund­laugin var tekin í notkun í byrjun apríl á síð­asta ári. Síðan versn­aði ástandið eftir því sem loft­ræsti­kerfið datt oftar út. Það má e.t.v. segja að það hafi verið lán í óláni að loft­ræsti­kerfið bil­aði því ann­ars hefði ekki komið í ljós svona fljót­lega að loft­klæðn­ingin var óhentug fyrir rýmið. Skipt var um klæðn­ingu nú í febr­úar og loft­ræsti­kerfið lagað,“ segir hann. Verk­tak­inn Ístak og sölu­að­ili loft­platn­anna taka ábyrgð á gall­anum og greiða kostn­að­inn við við­gerð­irnar.

Kostn­aður liggur ekki fyrir
Sund­laugin er þjálf­unar- og kennslu­laug og er hluti af fram­kvæmdum við þriðja áfanga skól­ans. Kletta­skóli hét áður Öskju­hlíð­ar­skóli og er sér­skóli á grunn­skóla­stigi sem þjónar öllu land­inu. Hann var byggður í tveimur áföngum árin 1974 og 1985 en fram­kvæmdir við nýju við­bygg­ing­una hófust á vor­mán­uðum 2015. Samhliða þeim hafa verið gerðar umfangs­miklar end­ur­bætur á gamla skól­anum. Með nýju við­bygg­ing­unni má gera ráð fyrir umtals­verðum breyt­ingum á starf­semi skól­ans þar sem áhersla er lögð á bætt aðgengi og þjón­ustu við fatl­aða nem­endur en í skól­anum er aðstaða fyrir 80-100 nem­endur.

Í nýju við­bygg­ing­unni norð­vestan við núver­andi skóla eru einnig hátíðar- og mat­salur, íþrótta­salur og félags­mið­stöð. Þá er leik­svæði á lóð end­ur­gert með það fyrir augum að það henti fötl­uðum nem­endum. Um er að ræða ald­urs­skipt leik­svæði með láréttum flötum í mis­mun­andi hæð og góðum teng­ingum á milli. Fram­kvæmdum er enn ekki lokið en áætluð verk­lok voru í ágúst á síð­asta ári og heild­ar­kostn­aður var áætl­aður 2.600 millj­ónir kr.

Það geta alltaf komið upp við­bót­ar­fram­kvæmdir eða eitt­hvað óvænt þar sem verið er að gera upp.

Bjarni segir að heild­ar­kostn­aður við fram­kvæmd­irnar liggi ekki fyrir að svo stöddu enda sé frá­gangi ekki lokið og kostn­aður muni því ekki end­an­lega koma í ljós fyrr en í sumar. Hann seg­ist ekki geta sagt til um það hvort um fram­úr­keyrslu sé að ræða „enda liggja töl­urnar ekki fyrir vegna þess að verk­inu er ekki lokið. Það geta alltaf komið upp við­bót­ar­fram­kvæmdir eða eitt­hvað óvænt þar sem verið er að gera upp. Og þá er gerð grein fyrir því og ein­fald­lega bætt við fjár­magni til að dekka það með sam­þykktum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meirihlutanum: „Borgarstjórnin er ekki sérlega vel mönnuð“
InnlentReykjavíkurborg

Egill hefur litla trú á nýja meiri­hlut­anum: „Borg­ar­stjórnin er ekki sér­lega vel mönnuð“

Egill Helgason hefur litla trú á nýjum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum sem kynnt verður í dag. Fjöl­miðla­mað­ur­inn víð­lesni, Egill Helgason skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann óskar nýjum meiri­hluta í borg­inni vel­farn­aðar en seg­ist um leið ekki hafa mikla trú á henni. Segir hann að borg­ar­stjórnin sé ein­fald­lega ekki vel mönnum og að hæfi­leika­fólk lað­ist ekki að setu í borg­inni. Spáir hann...
Kryddpíurnar í borginni byrjaðar að skrifa sáttmála: „Þetta eru auðvitað bara lykiláhersluatriði“
Innlent

Kryddp­í­urnar í borg­inni byrj­aðar að skrifa sátt­mála: „Þetta eru auð­vitað bara lyk­ilá­herslu­at­riði“

Oddviti Pírata í Reykja­vík­ur­borg, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, segir að meiri­hluta­við­ræður gangi vel á milli þeirra fimm stjór­mála­flokka sem rætt hafa saman und­an­farið en þær hafa haldið áfram í dag. Dóra segir að fundað hafi verið til 18 í dag en haldið verður áfram á morgun. Segist hún í sam­tali við RÚV vona að það dragi til tíð­inda á allra næstu...
Árshátíð borgarstjórnar kostaði Reykvíkinga tæpar tvær milljónir króna
InnlentReykjavíkurborg

Árshátíð borg­ar­stjórnar kost­aði Reyk­vík­inga tæpar tvær millj­ónir króna

Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn kost­aði borg­ar­búa rúm­lega 1,8 millj­ónir króna. Árshátíð borg­ar­stjórnar Reykja­víkur var haldin með pompi og prakt á Kjar­vals­stöðum þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá borg­inni voru 91 gestur á hátíð­inni. Borgaði hver um sig 9.500 krónur í aðgangs­eyri, jafnt makar sem aðrir gestir. Eft­ir­stand­andi kostn­aður vegna hátíð­ar­innar hljóð­aði upp á 1.806.301 króna...
Sanna útilokar ekki borgarstjórastólinn: „Bara eitt skref í einu“
Innlent

Sanna úti­lokar ekki borg­ar­stjóra­stól­inn: „Bara eitt skref í einu“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir seg­ist taka eitt skref í einu en úti­loki ekki borg­ar­stjóra­stól­inn. Nú þegar Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri kom öllum að óvörum og sleit meiri­hluta­sam­starfi sínu í borg­ar­stjórn, eru ýmsar þreif­ingar í gangi meðal flokk­anna í borg­inni. Nokkuð ólík­legt verður að telj­ast að Fram­sókn­ar­flokkur Einars verði í næsta meiri­hluta, eftir að Inga Sæland lýsti því yfir að Flokkur fólks­ins hefði...
Glittir í aðgerðaráætlun varðandi heimilisleysi: „Borgin er í mikilli skuld í þessum málaflokki“
InnlentReykjavíkurborg

Glittir í aðgerð­ar­á­ætlun varð­andi heim­il­is­leysi: „Borgin er í mik­illi skuld í þessum mála­flokki“

Stefán Pálsson segir Reykja­vík­ur­borg í mik­illi skuld við heim­il­is­lausa en nú glitti í betri tíð í þeim mála­flokki. Sagn­fræð­ing­ur­inn og vara­borg­ar­full­trú­inn Stefán Pálsson segir að borg­ar­stjórn Reykja­víkur sé við það að sam­þykkja aðgerð­ar­á­ætlun í mál­efnum heim­il­is­lausra. Segir hann borg­ina vera í milli skuld við mála­flokk­inn en að gangi áætl­unin eftir verði staðan miklu betri í náinni fram­tíð. „Í borg­ar­stjórn erum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins