„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég vissi ekki betur en ég væri bólusettur“

Eiríkur Brynj­ólfs­son var í fríi á Fil­ipps­eyjum þegar hann smit­að­ist af misl­ingum. Óaf­vit­andi um smitið flaug hann heim, kom til lands­ins með vél Icelandair þann 14. febr­úar og fór til Egils­staða með Air Iceland Connect dag­inn eftir. Nokkrir af sam­far­þegum hans smit­uð­ust. Hann seg­ist ekki geta áfellst sjálfan sig enda hafi hann talið sig bólu­settan og veltir fyrir sér hvað hafi mis­farist þegar hann átti með réttu að fá þessar sprautur.

„Ég vissi ekki betur en ég væri bólusettur“

„Ég var í fríi á Fil­ipps­eyjum í tæpan mánuð, fór þangað til þess að hitta nýja fjöl­skyldu, dvaldi einkum í Manila en fór í þónokkrar ferðir út frá borg­inni,“ segir Eiríkur Brynj­ólfs­son en hann veikt­ist af misl­ingum í ferð­inni. Eins og fram kemur í inn­gangi ferð­að­ist Eiríkur heim til Egils­staða með Icelandair og síðan Air Iceland Connect um miðjan síð­asta mánuð og í kjöl­farið smit­uð­ust fleiri ein­stak­lingar af þessum stór­vara­sama sjúk­dómi. Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa brugð­ist við meðal ann­ars með því að auka til muna aðgengi að bólu­setn­ingum og hvetja fólk til þess að kanna hvort það sé bólu­sett eða ekki.

Máttlaus með blússandi hita

Eiríkur segir að hann hafi ekki kennt sér nokk­urs meins þann tíma sem hann dvaldi á Fil­ipps­eyjum og hann hafi því ótví­rætt ekki smit­ast fyrr en rétt áður en hann fór heim.

„Það var ekki fyrr en ég var á leið­inni heim sem ég fór að finna fyrir slapp­leika, en það er mik­il­vægt fyrir fólk að hafa í huga að maður finnur ekki fyrir ein­kennum á meðan maður er smit­beri, en þá byrjar þetta sem svona frekar mein­leys­is­legir vind­verkir. Það var reyndar svona öllu meira en maður á venj­ast, en ég fann að ég var ekk­ert voða­lega hress, án þess þó að vera eitt­hvað óskap­lega veikur. Daginn eftir að ég kom til Íslands var ég þó orð­inn enn slapp­ari en grun­aði ekki annað en að ég hefði náð mér í ein­hverja smá­flensu, enda hafði ég heyrt að það væri ein slík í umferð.“

Mér fannst ég satt best að segja vera alveg að drep­ast.

Eiríkur rifjar upp að það hafi svo ekki verið fyrr en dag­inn eftir að hann kom heim til Egils­staða sem hafi farið að bera aðeins á útbrotum. „Ég tók fyrst eftir þessu á hönd­unum á mér, fann að ég var orð­inn ansi veikur, enda treysti ég mér ekki lengur til þess að fara út úr húsi. Daginn eftir var ég svo orð­inn enn veik­ari og útbrotin farin að fær­ast í auk­ana og þá hætti mér nú aðeins að lít­ast á blik­una. Mér fannst ég satt best að segja vera alveg að drep­ast, var mjög slæmur í mag­anum og staulað­ist á sal­ernið, en lenti svo bölv­uðu basli með að kom­ast aftur til baka inn í rúm. Þannig að ég var orð­inn mjög mátt­laus og með blússandi hita enda mæld­ist ég með fjöru­tíu og eins stigs hita sem er víst ansi mikið fyrir full­orð­inn mann.“

Eiríkur var greindur með misl­inga á sjúkra­hús­inu á Norð­firði og var þá strax lát­inn fara suður í ein­angrun. Eftir að búið var að senda hann heim komu upp fylgi­kvillar og hann boð­aður rak­leiðis suður aftur.

Súrefnisgjöf og einangrun

Eiríkur segir að hann hafi í þessu eymd­ar­lega ástandi haft sam­band við sína fyrr­ver­andi, enda séu þau góðir vinir, og beðið hana um að kaupa inn fyrir sig þar sem hann treysti sér ekki út úr húsi og allt tómt á heim­il­inu eftir langa fjar­veru.

„Þegar hún kom vorum við svo sam­mála um að það væri best að ég færi til læknis sem ég og gerði. Lækn­ir­inn hlust­aði mig og setti mig svo strax í súr­efni, enda var ég far­inn að anda asna­lega, því súr­efn­is­upp­takan var lítil og ég far­inn að líta út eins og lík. Lækn­ir­inn var fyrst viss um að ég væri með lungna­bólgu og sendi mig með sjúkra­bíl á sjúkra­húsið í Nes­kaup­stað en grein­ingin var þá ekki komin á hreint. Þegar komið var í Nes­kaup­stað voru lækn­arnir greini­lega aðeins farnir að átta sig á stöð­unni og þar var ég strax settur í ein­angrun.

Fljót­lega vað þeim ljóst að þetta væru mögu­lega misl­ingar og þá var strax ákveðið að senda mig suður á sjúkra­hús, því ein­angr­un­ar­að­staðan er ekki nægi­lega góð fyrir austan. Þannig að mér var skutlað aftur út í sjúkra­bíl sem brun­aði með mig upp á Egils­staði þar sem mér var komið í sjúkra­flug suður. Þetta var bölvað vesen, maður var búinn að vera á þessu mikla ferða­lagi og þurfti svo að halda áfram að ferð­ast og það alveg fár­veikur,“ segir Eiríkur og hlær nú aðeins við til­hugs­un­ina þar sem þetta er um garð gengið.

Var ekki bólusettur

Eiríkur lá á sjúkra­húsi í Reykja­vík í tæpa viku og hann segir að sjúk­dóms­grein­ingin hafi óneit­an­lega komið honum á óvart.

„Ég bjóst satt best að segja við því að vera bólu­settur fyrir þessu eins og flestir Íslend­ingar. En þegar ég kann­aði þetta kom í ljós að ég var ekki bólu­settur. Ástæðan er sú að þegar ég var lít­ill var pabbi í skóla í Noregi og ég flakk­aði mikið á milli landa, var ýmist hjá honum í Noregi eða mömmu á Íslandi. Við það var eins og þetta hefði mis­farist. En svo veit ég satt best að segja ekki hvort ég var bólu­settur þegar ég var tólf ára eða ekki. Eitthvað virð­ist þetta í hið minnsta hafa verið aðeins laust í reipn­unum á þessum tíma því sumir jafn­aldrar mínir hafa verið bólu­settir við tólf ára ald­ur­inn en ekki allir.“

….þegar ég var lít­ill var pabbi í skóla í Noregi og ég flakk­aði mikið á milli landa, var ýmist hjá honum í Noregi eða mömmu á Íslandi.

Aðspurður um hvernig hann horfi til þess­ara mála í dag segir Eiríkur að það græði eng­inn á því að reyna að finna ein­hvern söku­dólg. „Það kemur engum að gagni. Það er eng­inn betur settur eftir það, heldur verðum við fyrst og fremst að reyna að gera betur.“

Eiríkur segir að sumir þeirra sem standa honum nærri hafi þurft að bregð­ast við og þá einkum þeir sem eiga ung börn. „Það voru nokkrir sem þurftu að fara í sjálf­skip­aða ein­angrun til þess að vera vissir um að vera ekki smit­berar. En málið er líka að þetta er sjúk­dómur sem fæst okkar þekkja í dag og því er fólki eðli­lega brugðið þegar þetta kemur upp.“

Sá allt í móðu

Eins og Eiríkur bendir á þá er ekki til nein lækn­ing við misl­ingum og bólu­setn­ingin því þeim mun mik­il­væg­ari. „Þar sem það er ekki til nein lækn­ing þá fékk ég engin lyf á sjúkra­hús­inu en ég var með vökva í æð vegna þess að lík­am­inn var gjör­sam­lega upp­þorn­aður. Það voru alveg ein­hverjir lítrar sem þurfti að dæla í mig og svo þurfti ég reglu­lega að væta munn­inn því ann­ars lá tungan þarna skrælnuð við góm­inn á mér. Þetta var mjög skrítin reynsla.“

Eftir að Eiríkur hafði dvalið á sjúkra­húsi í tæpa viku og var kom­inn aftur heim til Egils­staða voru veik­indi hans þó enn ekki öll að baki. „Málið er að það er fjöldi eft­irkvilla sem getur fylgt því að fá misl­inga og þeir geta verið alvar­legir. Mér var því sagt að ég yrði að hringja suður ef ég færi að finna fyrir ákveðnum ein­kennum. Þar er einkum verið að horfa til þess að það geta mynd­ast slæmar bólgur í heil­anum.

Það leynir sér ekki að Eiríkur er rólegur að eðl­is­fari og við­ur­kennir að hafa í raun lítið kippt sér upp við misl­inga­smitið. Mynd / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Þegar ég var kom­inn austur var ég enn hálf­slappur eftir öll þessi veik­indi en hélst þó þokka­legur fram á annan dag heima en þá fór ég að sjá allt í móðu. Ég er nær­sýnn, þannig að alla jafna sé ég vel það sem er nálægt mér, en á þessum tíma­punkti var hrein­lega allt í móðu. Það var mjög skrítið að upp­lifa það.

Þannig að ég hringdi og var þá skipað að koma strax suður sem ég og gerði að sjálf­sögðu. En sem betur fer reynd­ist þetta ekki alvar­legt heldur heldur ein­hvers konar skemmd sem getur komið á horn­himn­una í kjöl­far misl­inga. Þannig að ég var sendur aftur heim með augn­dropa og krem og þetta jafn­aði sig á nokkrum dögum.“

Hættan er til staðar

Það leynir sér ekki að Eiríkur er rólegur að eðl­is­fari og við­ur­kennir að hafa í raun lítið kippt sér upp við þetta.

„Nei, ég var nú ósköp rólegur yfir þessu. Var heldur ekki að velta fyrir mér hvað fólk hefur verið að segja á sam­fé­lags­miðlum, það er bara eins og það er. Það verður alltaf til fólk sem er til­búið til þess að kenna öðrum um allt og ekk­ert og það er ekki til neins að vera að fara á hlið­ina yfir þannig umræðu. Mér finnst nær að reyna bara að vera fram­bæri­leg mann­eskja og gera sitt besta.“

Aðspurður seg­ist hann ekki finna fyrir sam­visku­biti yfir því að hafa smitað aðra. „Það er auð­vitað mjög leið­in­legt að heyra um smit­aða ein­stak­linga, sér­stak­lega börn, en ég get ekki áfellst sjálfan mig fyrir það þar sem ég var viss um að ég væri bólu­settur fyrir misl­ingum.“

Hann bendir á að hann hafi áður farið í ferða­lög og þá fengið bólu­setn­ingar fyrir lifr­ar­bólgu og fleiri sjúk­dómum en minn­ist þess ekki að þetta hafi komið til umræðu. „Það getur vel verið að ég hafi verið spurður, sem ég minn­ist ekki, en þá hefði ég örugg­lega sagst vera bólu­settur, því ég stóð í þeirri trú. En þegar maður býr í svona litlu landi og fámennu sam­fé­lagi þá kannski gerir maður ráð fyrir því að við séum öll á sama stað hvað þetta varðar og er ekk­ert að velta þessu fyrir sér. Lifir svona í smá­sjálfs­blekk­ingu með þetta sem er auð­vitað ekki gott.

En svo eru auð­vitað fleiri sjúk­dómar en misl­ingar sem við verðum að hafa í huga. Eins þurfum við að auka vit­und um þessi mál út frá því að hingað sækja sífellt fleiri ferða­menn og það geta auð­vitað borist með þeim sjúk­dómar. Það segir sig sjálft að það hlýtur að auka hætt­una.

En fyrst og fremst finnst mér þó mik­il­vægt að for­eldrar sýni þá ábyrgð að láta bólu­setja börnin sín.

Þessi veik­indi mín eru vissu­lega góð áminn­ing til minnar kyn­slóðar og einnig þeirra sem eldri eru um að fylgj­ast betur með okkur og vera viss um að hafa þessa hluti í lagi. Það eru auð­vitað fleiri en ég sem lifa í þeirri trú að þeir séu bólu­settir en eru það svo í raun ekki. En fyrst og fremst finnst mér þó mik­il­vægt að for­eldrar sýni þá ábyrgð að láta bólu­setja börnin sín því það er eina raun­veru­lega leiðin til þess að stöðva útbreiðslu þess­ara sjúk­dóma.“

Myndir / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetningar

Rebekka vill bætur frá ríkinu vegna bólusetninga: „Ég fæ grátköst, mér líður illa, ég er oft döpur“
Innlentbólusetningar

Rebekka vill bætur frá rík­inu vegna bólu­setn­inga: „Ég fæ grát­köst, mér líður illa, ég er oft döpur“

Rebekka Ósk Sváfn­is­dóttir ætlar í mál við íslenska ríkið og krefj­ast þar bóta eftir bólu­setn­ingar gegn Covid-19. Hún glímir enn við miklar auka­verk­anir eftir spraut­urnar sem birt­ast meðal ann­ars í stór­felldum rösk­unum á tíð­ar­hringnun. Síðan Rebekka var bólu­sett hefur hún verið á stans­lausum blæð­ingum síðan. „Ég sjálf er núna, einu og hálfu ári seinna, á blæð­ingum fimmtán til tutt­ugu daga...
Úr höllinni á heilsugæslustöðvar: „Stefnt er á að nota eingöngu bóluefni frá Pfizer“
Innlent

Úr höll­inni á heilsu­gæslu­stöðvar: „Stefnt er á að nota ein­göngu bólu­efni frá Pfizer“

Í til­kynn­ingu frá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins kemur fram að bólu­setn­ingar vegna COVID-19 hafi nú verið færðar til heilsu­gæslu­stöðva og þar með verið hætt að bólu­setja í Laug­ar­dals­höll. Á heilsu­gæslu­stöðv­unum verður bæði hægt að fá grunn­bólu­setn­ingar ætl­uðum fimm ára og eldri og örv­un­ar­skammta fyrir sextán ára og eldri. Þá er fólk minnt á að fjórir mán­uðir eða meira þurfi að líða frá...
Lyfjastofnun Evrópu varar við síendurteknum örvunarbólusetningum: Gæti haft slæm áhrif
Innlent

Lyfja­stofnun Evrópu varar við síend­ur­teknum örv­un­ar­bólu­setn­ingum: Gæti haft slæm áhrif

Lyfja­stofnun Evrópu (EMA) hefur varað við síend­ur­teknum örv­un­ar­bólu­setn­ingum og segja tíða örv­un­ar­skammta hugs­an­lega geta haft slæm áhrif á ónæm­is­kerfið. Marco Cavaleri, yfir­maður bólu­efna­rann­sókna hjá lyfja­stofn­un­inni EMA, dregur þörf­ina fyrir annan örv­un­ar­skammt, eða fjórða heild­ar­skammt af bólu­efni, í efa og segir engar rann­sóknir styðja þá þörf enn sem komið er. Hann segir enn ekki nóg af upp­lýs­ingum um Omíkron-afbrigðið fyrir hendi....
Bólusetningar barna hefjast í dag – Þetta er gott að vita fyrir foreldra
Innlentbólusetningar

Bólu­setn­ingar barna hefj­ast í dag – Þetta er gott að vita fyrir for­eldra

Bólu­setn­ingar barna hefj­ast í dag en er efnið ætlað börnm á aldr­inum 5 til 11 ára. Börnin mæta með for­ráða­manni og tíma­setn­ing ræðst á fæð­ing­ar­mán­uði en eru systk­ini vel­komin á sama tíma. Fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið fara bólu­setn­ing­arnar fram í Laug­ar­dals­höll milli klukkan 12 og 18 en í dag eru börn í eft­ir­far­andi skólum skráð: Barna­skóla Hjalla­stefn­unnar í Hafn­ar­firði og Reykja­vík, Engi­dals­skóla,...
Lækna-Tómas hraunar yfir Möggu Frikka: „Fallhlífastökk án fallhlífar er dauðans alvara“
Innlentbólusetningar

Lækna-Tómas hraunar yfir Möggu Frikka: „Fall­hlífa­stökk án fall­hlífar er dauð­ans alvara“

Hjarta­skurð­lækn­ir­inn Tómas Guð­bjarts­son á varla orð yfir vit­leys­unni í Margréti Frið­riks­dóttur, bar­áttu­konu gegn sótt­varn­ar­að­gerðum og bólu­setn­ingum hér á landi. Hann segir hana á leið í ein­hvers konar harakiri-leið­angur sem stofni ekki aðeins hennar lífi í hættu heldur margra ann­arra. Skoðun sinni lýsir Tómas í nýlegri færslu á Facebook en til­efni skrif­anna er sú stað­reynd að Margrét hefur skráð sig í...
Margrét Friðriks komin í alþjóðarannsókn óbólusettra: „Hlakka til að sjá niðurstöðuna“
Innlentbólusetningar

Margrét Friðriks komin í alþjóða­rann­sókn óbólu­settra: „Hlakka til að sjá nið­ur­stöð­una“

Bar­áttu­konan Margrét Frið­riks­dóttir hefur skráð sig í alþjóð­lega sam­an­burð­ar­rann­sókn þar sem reynt verður að finna út hvor hóp­ur­inn er betur varður gegn kór­ónu­veirunni, bólu­settir eða óbólu­settir. Varla þarf að taka það fram að Margrét til­heyrir síð­ari sam­an­burð­ar­hópnum enda hefur hún lengi talað gegn bólu­setn­ingum hér á landi gegn veirunni skæðu. Til að berj­ast gegn sótt­varn­ar­að­gerðum og bólu­setn­ing­unum stofn­aði Margrét vef­svæðið...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins