„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Erfitt að segja deyjandi manneskju hvernig hún á að kveðja

Gunnar Ármanns­son missti eig­in­konu sína úr krabba­meini fyrir fimm árum og hefur sjálfur í fjórtán ár glímt við ólækn­andi blóð­krabba­mein sem tók að áger­ast á síð­asta ári. Hann hefur ein­sett sér að ræða hlut­ina opin­skátt þótt það geti verið erfitt.

Erfitt að segja deyjandi manneskju hvernig hún á að kveðja

„Þegar minn sjúk­dómur fór af stað þá völdum við að tala mikið um þetta en svo kom í ljós eftir ein­hverjar vikur að ég væri ekki að fara alveg á næst­unni, gæti átt eftir mán­uði eða ár, eins og svo kom í ljós. Með­vit­aður um þá óvissu hvernig þetta mundi þró­ast valdi ég að vera ekki alltaf að tala um þetta. En í hennar til­viki var engin óvissa. Það lá bara fyrir að hún væri að kveðja smám saman. Og það sem reynd­ist svo óhemju erfitt var að sjá mann­eskj­una deyja smátt og smátt, ef svo má segja. Geta hennar minnk­aði og heim­ur­inn dróst saman,“ segir Gunnar.

„Ég ímynd­aði mér að ég hefði viljað bregð­ast öðru­vísi við, að ég hefði viljað tala um þetta við mína nán­ustu og þá ekki síður að hún hefði getað rætt þetta við sína nán­ustu. En það er svo erfitt að ætla að fara að segja mann­eskju sem er að kveðja þessa jarð­vist hvernig hún eigi að gera það. Hún verður að ráða því sjálf.

Þetta er ólækn­andi sjúk­dómur og ég vil að mínir nán­ustu geti rætt þetta.

En þessi reynsla sann­færði mig um að það sé skyn­sam­legt að ræða þetta. Ef ekki við maka sem mögu­lega vill ekki ræða þetta, þá vini eða aðra sem geta veitt stuðn­ing og ráð. Ég gerði það ekki og þess vegna hef ég ákveðið núna, þegar minn sjúk­dómur er far­inn af stað aftur, að ræða það opin­skátt og feimn­is­laust. Þetta er ólækn­andi sjúk­dómur og ég vil að mínir nán­ustu geti rætt þetta. Ég vil ekki að það sé verið að fara í kringum þetta eða vand­ræð­ast með þetta. Ég vil að þetta sé rætt feimn­is­laust.“

Í nýjasta tölu­blaði Mannlífs, sem kemur út í fyrra­málið, ræða Gunnar, Anna Ing­ólfs­dóttir og Arnar Sveinn Geirsson opin­skátt um hvernig það er að missa ein­hvern nákom­inn sér. Með því að stíga fram vilja þau opna umræð­una um þessi mál.

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins