„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hvernig á að meta manneskjur

Und­an­farið hefur verið um fátt meira talað en kjara­bar­átt­una og yfir­vof­andi verk­föll. Líkt og venju­lega vara full­trúar vinnu­veit­enda ein­dregið við launa­hækk­unum og segja hrun heilla atvinnu­greina yfir­vof­andi verði af þeim. Verka­lýðs­for­ystan stendur keik á móti og bendir á að engin sann­girni sé í að stór hópur fólks geti ekki lifað af launum sínum. Og báðir hafa rétt fyrir sér.

Hvernig á að meta manneskjur
Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint

Hér eru fyr­ir­tæki er ekki þola miklar hækk­anir, einkum vegna þess að í hvert sinn sem reynt hefur verið að ná fram hækk­unum til handa þeim lægst laun­uðu magn­ast óánægju­raddir upp allan launa­stig­ann. Rama­kveinið, menntun borgar sig ekki og mín stétt hefur dreg­ist veru­lega aftur úr öðrum sam­bæri­legum er allt of kunn­ug­legt stef. Launa­bar­átta und­an­far­inna ára­tuga hefur nefni­lega að stórum hluta gengið út á að troða öðrum nægi­lega langt niður fyrir sig fremur en að bæta eigin stöðu. Og þetta er ein ástæða þess að illa hefur gengið að skapa verka­fólki mann­sæm­andi kjör. Fyr­ir­tækin hafa ein­fald­lega ekki efni á að taka á sig góða hækkun á launum hinna lægst­laun­uðu og í ofaná­lag bæta sömu pró­sentu­tölu ofan á laun ann­arra starfs­manna.

Menntun er metin til launa þótt vissu­lega megi til sanns vegar færa að sumar mennta­stéttir njóti fárán­legra for­rétt­inda. Á hinn bóg­inn er bæði ósann­gjarnt og órétt­látt að setja dæmið upp þannig að til­tek­inn ára­fjöldi í háskóla eigi að nægja einn og sér til að tryggja ákveðið há laun. Það er mennta­hroki, lít­ils­virð­ing gagn­vart þeim sem vinna erf­ið­ustu störfin. Menntun er og á að vera einn þáttur í mati á verð­mæti starfs­krafts en ekki endi­lega ráð­andi þáttur. Margt annað verður að koma til. Hverjar eru starfs­að­stæður? Lág­launa­fólk leggur oft heilsu sína og jafn­vel líf að veði í sínu vinnu­um­hverfi. Ber ekki að meta það til launa? Ótal­margir búa að mik­illi reynslu er nýt­ist þeim í starfi og hæfni sem bæði er með­fædd en einnig oft þjálfuð upp í gegnum þátt­töku þeirra í alls konar verk­efnum. Á það ekki að vega þungt líka?

Ísland hefur jafnan stært sig af lít­illi stétta­skipt­ingu og að hér sé gott flæði milli stétta, þ.e. að menn geti auð­veld­lega bætt stöðu sína með menntun, dugn­aði eða útsjón­ar­semi. Núver­andi verka­lýðs­for­ysta hefur bent á að einmitt þetta er orðið næsta ómögu­legt þeim verst settu í íslensku sam­fé­lagi. Viljum við það? Ef ekki, ber okkur núna að taka á málum þannig að veru­leg kjara­bót náist fyrir verka­fólk og hinir verða bara að bíta í það súra að hugs­an­lega geti skúr­inga­kerl­ing leyft sér þann lúxus að fara út að borða og sitja á næsta borði við þá. Ef ekki er sam­staða um að allir hafi hér jöfn tæki­færi til að öðl­ast lífs­gæði verður þess ekki langt að bíða að stétta­mun­ur­inn verði óbrú­an­legur með þeirri tor­tryggni og tog­streitu sem hann skapar. Flestir hafa með­fædda rétt­læt­is­til­finn­ingu og dóm­greind og hún segir okkur að ekk­ert sé eðli­legt við það að einn hafi meira en hann mun nokkru sinni þarfn­ast meðan annar líður skort.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins