„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Pálmatré rjúka út í blómaverslunum

Vin­sældir potta­blóma hafa auk­ist á und­an­förnum árum og bóhemískur stíll svo­lítið að koma í stað­inn fyrir ster­íla svart­hvíta inn­an­hússtísku. Lára Jóns­dóttir, garð­yrkju­fræð­ingur í Blóma­vali Skútu­vogi, segir að í ljósi umræð­unnar séu pálmar til dæmis vin­sælir um þessar mundir og geti dafnað vel í heima­húsum.

Pálmatré rjúka út í blómaverslunum
|||

„Pálm­arnir eru fáan­legir hjá okkur í nokkrum teg­undum og heita gullpálmi, para­dísar­pálmi (Kentia), þráð­pálmi og veifupálmi. Pálmar geta vel dafnað í heima­húsum og þegar vel tekst til þurfa þeir gott pláss. Svo vöxtur sé þokka­legur þarf góða birtu og reglu­lega vökvun,“ segir Lára og bætir við að áhugi á potta­plöntum til híbýla­prýði hafi auk­ist mikið á síð­ustu tveimur til þremur árum. Vin­sælda­list­inn sé nokkuð breyti­legur.

Lára Jóns­dóttir, garð­yrkju­fræð­ingur í Blóma­vali Skútu­vogi.

„Sam­fé­lags­miðlar gefa fólki hug­myndir að notkun og upp­still­ingum og vegna umfjöll­unar um plöntur sem hreinsa and­rúms­loftið hefur tölu­vert verið spurt um þær. Einnig fæ ég oft spurn­ingar um hvort þessi eða hin plantan sé eitruð fyrir hunda og ketti sem og hvort börnum stafi hætta af ein­hverri plöntu á heim­il­inu,“ segir Lára.

„Sam­fé­lags­miðlar gefa fólki hug­myndir að notkun og upp­still­ingum og vegna umfjöll­unar um plöntur sem hreinsa and­rúms­loftið hefur tölu­vert verið spurt um þær.“

Auk pálmanna eru vin­sæl­ustu plönt­urnar til dæmis frið­ar­lilja, indjána­fjöður, veð­hlaup­ari, flamingóblóm, mána­gull og klif­ur­hjarta. „Drekatré eru til í ýmsum gerðum og eru dug­legar plöntur og bonsai vekur alltaf for­vitni. Kínversk pen­inga­planta hefur einnig notið vin­sælda upp á síðkastið sem og rif­blaðka og orkídea sem er sér­stak­lega blóm­sæl. Gjarnan er spurt um hengi­plöntur og oft verið að leita að plöntum sem eiga að fara í litla potta sem hanga til skrauts inni í stofu, ekki alltaf í heppi­leg­ustu birtu­skil­yrðum,“ segir Lára.

Í Hagnýtu potta­plöntu­bók­inni sem Magnea J. Matth­í­as­dóttir þýddi og Vaka Helga­fell gefur út eru ítar­legar útskýr­ingar á ræktun potta­plantna.

Ráð fyrir blóma­rækt­endur
Í Hagnýtu potta­plöntu­bók­inni sem Magnea J. Matth­í­as­dóttir þýddi og Vaka Helga­fell gefur út eru ítar­legar útskýr­ingar á ræktun potta­plantna og fjallað sér­stak­lega um 175 teg­undir. Ráð eru gefin um umhirðu, birtu- og raka­stig og nær­ingu auk þess sem í bók­inni eru ýmsar hug­myndir að upp­still­ingu plantn­anna, hvernig útbúa má skil­rúm með klif­ur­plöntum, blóma­hengi og blómakrans úr þykk­blöð­ungum, svo fátt eitt sé nefnt. Þar sem áhug­inn fyrir pálmatrjám hefur stór­lega vaxið að und­an­förnu er ekki úr vegi að fá nán­ari upp­lýs­ingar um kentíupálma úr þess­ari fróð­legu bók.

Kentíupálmi er auð­veldur í ræktun og því ákjós­an­legur fyrir byrj­endur.

KENTÍUPÁLMI
Howea for­ster­i­ana
HITASTIG 13-24°C.
BIRTA Dálítill skuggi.
RAKASTIG Hóflegt.
UMHIRÐA Fremur auð­veld.
HÆÐ OG UMFANG Allt að 3 × 2 m.
Kentíupálm­inn hentar vel í skugg­sælum her­bergjum og hefur háa stilka með dökk­grænum, gljá­andi blöðum sem breiða glæsi­lega úr sér og gera hann að áber­andi mið­punkti í plöntu­safni. Hann er auð­veldur í ræktun og því ákjós­an­legur kostur fyrir byrj­endur.
VÖKVUN
Vökvið þegar efsta lag mold­ar­innar er orðið dálítið þurrt á vorin og haustin; vökvið heldur minna á vet­urna, rétt nóg til að halda mold­inni eilítið rakri. Látið plönt­una standa á bakka með rökum stein­völum eða úðið blöðin á nokk­urra daga fresti.
NÆRING
Notið fljót­andi alhliða áburð á tveggja vikna fresti frá vori fram á haust.
GRÓÐURSETNING OG UMHIRÐA
Gróð­ur­setjið í 20-30 cm potti með 3:1 blöndu af potta­mold og korn­óttum sandi. Látið plönt­una standa í óbeinu sól­ar­ljósi þar sem eng­inn drag­súgur er. End­ur­nýið efsta lag mold­ar­innar árlega á vorin en umpottið ein­göngu ef mjög þröngt er orðið um rætur plönt­unnar.

(Úr Hagnýtu potta­plöntu­bók­inni, Vaka Helga­fell 2019, bls. 132).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins