„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lenti á svörtum lista í Bandaríkjunum

Jón Arnór Stef­áns­son sog­að­ist óvart inn í eitt umfangs­mesta svindl­mál sem komið hefur upp í banda­rískum fram­halds­skóla­körfu­bolta. Það end­aði með því að Jón Arnór, þá 19 ára gam­all, missti land­vist­ar­leyfi sitt í Banda­ríkj­unum og var honum bannað að ferð­ast þangað næstu árin á eftir.

Lenti á svörtum lista í Bandaríkjunum
„Hérna finnst mér fólk alltaf þurfa að vera að sanna eitt­hvað

Þetta kemur fram í við­tali sem Mannlíf tók við þá Jón Arnór og Hlyn Bær­ings­son. Allt við­talið má lesa hér en við grípum niður í frá­sögn Jóns Arnórs af ævin­týr­inu í Ameríku.

Sautján ára gam­all hélt Jón Arnór til Kali­forníu þar sem hann lék með fram­halds­skóla­liði Artesia sam­hliða námi. Það ævin­týri hlaut óvæntan endi af ástæðum sem voru Jóni óvið­kom­andi en höfðu þó áhrif á hans fram­tíð­arplön. „Þetta sner­ist um land­vist­ar­leyfið mitt. Það var þannig að í umsókn­inni var ég skráður í annan skóla en ég gekk í. Þetta var víst eitt­hvað sem var alltaf gert. Ég fékk bara papp­íra senda til mín sem ég fyllti út með for­eldrum mínum, fór með þá í sendi­ráðið og fékk þetta leyfi. Svo pældi ég ekk­ert meira í því.“

Þetta var hins vegar hluti af stærra og veiga­meira svindli í kringum rekstur liðs­ins sem komst upp og upp­hófst veiga­mikil rann­sókn. „Þetta varð stór­mál. Þannig að eftir þessi tvö ár þar varð ég að yfir­gefa landið, flýja nán­ast. Ég fór á ein­hvern lista hjá banda­rískum yfir­völdum í ein­hvern tíma sem var algjör­lega galið og um tíma gat ég ekki ferð­ast til Banda­ríkj­anna. Það leyst­ist allt upp þar, þjálf­ar­inn lét sig hverfa og ég veit ekk­ert hvað varð um hann. Skóla­stjór­inn var rek­inn og yfir­maður íþrótta­deild­ar­innar líka,“ útskýrir Jón Arnór.

„Hvarf hann bara? Er ekki búið að finna hann?“ spyr Hlynur sem hefur gaman af frá­sögn Jóns Arnórs. „Ég held að hann hafi dúkkað upp ein­hvers staðar, ég veit ekki hvar. En þetta var á öllum stærstu sjón­varps­stöð­unum, ESPN, USA Today og fleirum sem var algjör­lega sturlað. En þetta breytti svo­lítið plön­unum mínum á þessum tíma því ég hafði það alltaf sem mark­mið að kom­ast í banda­rískan háskóla en ég þurfti að fara heim,“ segir Jón Arnór sem með hjálp góðra manna tókst að koma sér af svarta list­anum alræmda. Bless­un­ar­lega því um fjórum árum síðar skrif­aði hann undir samn­ing við Dallas Mavericks í NBA-deild­inni eftir gott tíma­bil í þýsku úrvals­deild­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins