„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brjóstamjólk vinsæl meðal vöðvabúnta

Finna má fjölda sölu­síðna á Netinu þar sem brjósta­mjólk gengur kaupum og sölum. Flestar eru síð­urnar settar upp í þeim til­gangi að mæður sem eiga erfitt með að gefa brjóst geti keypt brjósta­mjólk af mæðrum sem fram­leiða mikla mjólk. Nú hefur hins vegar færst í auk­ana að fólk og þá einkum og sér í lagi karl­menn sem stunda vaxt­ar­rækt og kraft­lyft­ingar falist eftir því að kaupa brjósta­mjólk í þeim til­gangi að byggja hraðar upp vöðvamassa.

Brjóstamjólk vinsæl meðal vöðvabúnta
mjólk

Hall­fríður Kristín Jóns­dóttir, ljós­móðir og IBLCE-brjósta­gjaf­ar­ráð­gjafi, segir í sam­tali við Mannlíf að hún hafi heyrt af því að kraft­lyft­inga­fólk á Íslandi sé farið að kaupa brjósta­mjólk af nýbök­uðum mæðrum. „Þetta snýst, held ég, aðal­lega um að fá hreina fæðu og hrein prótein og þau ger­ast ekki hreinni en þetta,“ segir hún. „Það er ekki búið að ger­ilsneyða mjólk­ina eða vinna hana á nokkurn hátt. Þú ert með hreina afurð.“

Hún tekur fram að hún viti ekki hvort brjósta­mjólk hafi fyrr­nefnd til­ætluð áhrif fyrir kraft­lyft­inga­fólk sem sæk­ist eftir því að byggja upp vöðvamassa en fyrir nýbura sé hún svo sann­ar­lega hrein ofur­fæða. „Brjósta­mjólkin er nátt­úr­lega sér­hönnuð fyrir mann­eskjur sem er lík­lega hennar stærsti kostur. Hún er prótein­rík og inni­heldur alla þessa ónæm­is­þætti sem þú færð ekki í annarri mjólk sem búið er að ger­ilsneyða.“

Hall­fríður getur þess að brodd­mjólk sé enn nær­ing­ar­rík­ari, en það er sú mjólk sem kemur fyrst eftir að kona byrjar að mjólka. Brodd­mjólkin sé auð­veld í melt­ingu og fitu­snauð en rík af sykrum, prótínum og mótefnum eins og hvít­frumum, sem verja börn gegn mörgum skað­legum fyr­ir­bærum. Hún seg­ist þó ekki vita til þess að íslenskir kraft­lyft­ing­ar­menn hafi sótt sér­stak­lega í brodd­inn.

Evert Víglunds­son, yfir­þjálf­ari og eig­andi Crossfit Reykja­vík, sem vakti athygli í Biggest Loser, seg­ist hafa heyrt af mál­inu þótt hann hafi ekki sjálfur þjálfað mann­eskju sem noti brjósta­mjólk sem fæðu­bót­ar­efni. Einnig viti hann til þess að íslenskt vaxt­ar­rækt­ar­fólk sé farið að not­ast við brodd­mjólk úr kúm, enda sé kúa­mjólk mun prótein­rík­ari en brjósta-mjólk.

Aðrir lík­ams­rækt­ar­þjálf­arar sem Mannlíf setti sig í sam­band við vegna máls­ins, höfðu allir heyrt af þessu og sömu­leiðis af sölu­síð­unum á Netinu. Einn bendir á að í Japan sé brjósta­mjólk t.a.m. mjög vin­sæl neyslu­vara. Meira að segja sé hægt að kaupa hana í næstu verslun.

 Byggir upp ónæm­is­kerfið

Svo virð­ist þó vera sem fleira fólk en ung­börn og vaxt­ar­ræktar- og kraft­lyft­inga­fólk sé nú farið að neyta brjósta­mjólkur, því Hall­fríður segir dæmi þess að konur gefi krabba­meins­sjúk­lingum slíka mjólk. „Ég man eftir konu sem gaf frænda sínum, sem var mjög veikur af krabba­meini, brjósta­mjólk. Krabba­meinslyfin brjóta nátt­úr­lega niður allt ónæm­is­kerfið en brjósta­mjólkin inni­heldur efni sem styrkja ónæm­is­kerfið.“ Hún segir að vegna þess hversu hita­ein­inga­rík mjólkin er sé hún líka góð fyrir sjúk­linga með litla mat­ar­lyst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins