„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hafa efni á verkföllum

Félags­menn stétt­ar­fé­laga greiða reglu­lega í svo­kall­aða vinnu­deilu­sjóði sem ætlað er að koma til móts við laun­þega í vinnu­stöðv­unum eða verk­bönnum. Þessir sjóðir standa almennt vel og eru á annan tug millj­arða króna í sjóðum þeirra félaga sem eiga aðild að Alþýðu­sam­bandi Íslands.

Hafa efni á verkföllum
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Þannig eru um 3,6 millj­arðar króna í verk­falls­sjóði VR sem fer stækk­andi að því er Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur sagt í fjöl­miðlum. Þá geti félagið hæg­lega fært til fjár­magn í sjóð­inn ef svo ber undir þar sem félagið eigi um 12 millj­arða í sjóðum og eignum. „Ef við förum hins vegar í ein­hvers konar verk­falls­skærur með öðrum stétt­ar­fé­lögum eða t.d. á ASÍ-grunni, þá munu fjár­magnstekjur þess­ara sjóða duga til þess að halda því úti í mjög langan tíma. Þar erum við að tala um mun smærri hópa, sem gætu þá verið í ein­hvers konar átökum eða aðgerðum en væru á fullum launum. En ef við förum í alls­herj­ar­verk­fall þá dugar þetta nátt­úr­lega skammt,“ sagði Ragnar Þór í við­tali við mbl.is í des­em­ber.

„Við getum farið í verk­fall. Það leikur eng­inn vafi á því,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar.

Hjá Eflingu eru um 2,7 millj­arðar í verk­falls­sjóði og ljóst að á þeim bænum eru félags­menn til­búnir í verk­fall því í nýrri könnun Gallup kom fram að 80 pró­sent félags­manna Eflingar styðja verk­falls­að­gerðir ef til þeirra kemur. „Við getum farið í verk­fall. Það leikur eng­inn vafi á því,“ sagði Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í við­tali við RÚV í vik­unni.

Áhugaverðar staðreyndir

Alls losn­uðu 82 kjara­samn­ingar um ára­mót og 152 til við­bótar renna út í mars. Stærsta ein­staka deilan er á milli Samtaka atvinnu­lífs­ins ann­ars vegar og VR, Eflingar og Verka­lýðs­fé­lags Akraness hins vegar en þeirri deilu var vísað til rík­is­sátta­semj­ara í des­em­ber.

Af þessum félögum er VR fjöl­menn­ast en félags­menn þess eru um 35.500 tals­ins úr öllum geirum sam­fé­lags­ins, allt frá almennu versl­un­ar­fólki upp í háskóla­mennt­aða sér­fræð­inga. Heild­ar­laun félags­manna VR sam­kvæmt launa­könnun félags­ins í fyrra voru 668 þús­und krónur.

Félags­menn Eflingar eru um 27 þús­und tals­ins og starfa þeir flestir við þjón­ustu­störf, umönnun, ræst­ingar og almenn verka­störf. Um helm­ingur félags­manna eru erlendir rík­is­borg­arar. Heild­ar­laun félags­manna Eflingar í fyrra voru 479 þús­und krónur sam­kvæmt kjara­könnun félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins