„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nýtur lífsins á suðurhveli jarðar

Nýjasta bók Ránar Flygenring teikn­ara og Hjör­leifs Hjart­ar­sonar heitir fullu nafni Sagan um Skarp­héðin Dungal sem setti fram nýjar kenn­ingar um eðli alheims­ins og segir sögu flug­unnar Skarp­héð­ins í bundnu máli og myndum. Bókin var til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna í flokki barna- og ung­menna­bóka.

Nýtur lífsins á suðurhveli jarðar

„Skarp­héð­inn er for­vitin fluga og ólíkt hinum flug­unum í Háborg­inni þyrstir hann í að kom­ast að því hvað leyn­ist fyrir utan borg­ar­múr­anna. Þetta er laun­fyndin og heim­speki­leg bók fyrir allan aldur, ekki ólíkt fyrstu bók­inni okkar Hjör­leifs, Fuglar, sem kom út hjá Angústúru í fyrra. Sú bók spratt upp af fyrsta sam­starfs­verk­efni okkar Hjöra, en það var árið 2015 þegar við unnum bæði að lít­illi fugla­sýn­ingu á byggða­safn­inu á Dalvík,“ segir Rán.

„Sagan um Skarp­héðin Dungal er tölu­vert ólík öðrum bókum sem ég hef unnið að, sem er að miklu leyti að þakka sam­starfi við Birnu Geir­finns­dóttur bóka­hönnuð. Í upp­hafi sá ég fyrir mér fínar, flugu­lega línur en á okkar fyrsta fundi lagði Birna til graf­íska nálgun og náið sam­tal let­urs og teikn­inga. Mér fannst þetta ágæt áskorun og end­aði á að vinna með skærum og hníf í pappír – eitt­hvað sem ég hef ekki gert áður. Útkoman varð sterkar, graf­ískar klippi­myndir í tveimur litum.“

„Verð­launa­til­nefn­ing er ákveðin hvatn­ing til þess að halda áfram, rétt eins og ánægðir les­endur eru líka hvatn­ing.“

Rán segir það mik­inn heiður að hafa verið til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og gleði­legt að fá við­ur­kenn­ingu fyrir verk sín á þann hátt. „Verð­launa­til­nefn­ing er ákveðin hvatn­ing til þess að halda áfram, rétt eins og ánægðir les­endur eru líka hvatn­ing. Hljómar eitt­hvað klisju­lega en þannig er það bara,“ segir Rán sem núna er stödd á Nýja-Sjálandi að njóta sum­ars, heim­sækja tengda­fjöl­skyldu og teikna nýja bók sem kemur út í Þýska­landi á næsta ári. „Ég verð hér fram á vor og sný þá aftur á norð­ur­hvel.“

Hvaða aðrar bækur hefur þú gert? „Fyrsta bókin okkar Finn-Ole Heinrich, Frerk du Zwerg, kom út í Þýska­landi árið 2011 en sú hlaut einmitt Barna­bóka­verð­laun Þýska­lands það ár. Við Finn-Ole höfum gefið út fjórar bækur eftir það. Þar á milli var þriggja bóka sería um Maulinu Hansen en sú fyrsta í ser­í­unni er komin út á íslensku og heitir Ótrúleg ævin­týri Brjálínu Hansen. Hér á Íslandi hef ég gert áður­nefnda Fugla okkar Hjör­leifs, mynda­sög­una Ógæfu í sam­starfi við Hugleik Dagsson og svo teiknað á og í fjöl­margar bækur, til að mynda Bernsku­breka­bækur Ævars vís­inda­manns og Stellu-seríu Gunnars Helga­sonar svo ein­hverjar séu nefndar.“

Mynd / Sebast­ian Ziegler

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Alls hljóta 251 einstaklingar listamannalaun á næsta ári
Menning

Alls hljóta 251 ein­stak­lingar lista­manna­laun á næsta ári

Listi yfir þá sem fá úthlutað lista­manna­launum fyrir árið 2025 hefur verið birtur. Í heild er um að ræða 251 ein­stak­ling og verða launin 560.000 krónur á mán­uði. Alls sóttu 1.339 um launin, þar af 1.223 ein­stak­lingar og 116 sviðs­lista­hópar. Samkvæmt vef Stjórn­ar­ráðs­ins voru 1.720 mán­að­ar­laun úr átta launa­sjóðum til úthlut­unar. Þeir sjóðir voru: Hönnuða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda, tón­skálda,...
Andri Snær, Ævar vísindamaður og Logi Pedro hljóta listamannalaun – 1032 umsóknir bárust
Innlentlist

Andri Snær, Ævar vís­inda­maður og Logi Pedro hljóta lista­manna­laun – 1032 umsóknir bár­ust

Rannís hefur greint frá því hvaða lista­menn hljóta lista­manna­laun fyrir árið 2024. Mörg þekkt nöfn eru meðal þeirra sem hljóta náð fyrir augum Rannís þetta árið og má meðal ann­ars nefna Loga Pedro, Hildi Knúts­dóttur, Ævar vís­inda­mann, Ásu Ólafs­dóttur, Gunnar Helgason, Þórdísi Gísla­dóttur og Kela úr Agent Fresco ásamt fleirum. Hægt er að lesa til­kynn­ingu Rannís hér fyrir neðan Til...
Silja vekur athygli á merkilegum konum: „Við erum búin að ná svo ótrúlega langt á stuttum tíma“
Innlentlist

Silja vekur athygli á merki­legum konum: „Við erum búin að ná svo ótrú­lega langt á stuttum tíma“

Silja Hin­riks­dóttur er margt til lista lagt sem hefur meðal ann­ars í gegn um tíð­ina starfað sem mynd­list­ar­kona og vef­hönn­uður. Nú hefur hún farið að stað með spenn­andi verk­efni til að vekja athygli á konum sem hafa haft áhrif á mann­kyns­sög­una og sam­fé­lagið í heild sinni – en hafa ef til vill ekki fengið næga athygli fyrir. Markmið verk­efn­is­ins er...
Ólöf Nordal: Borgar­lista­maður Reykja­víkur – Hefur markað djúp spor í ís­lensku lista­lífi
Innlentlist

Ólöf Nordal: Borgar­lista­maður Reykja­víkur – Hefur markað djúp spor í ís­lensku lista­lífi

Ólöf Nor­dal mynd­listar­kona var í dag við hátíð­lega athöfn í Höfða útnefnd Borgar­lista­maður Reykja­víkur þetta árið. Hún tók við útnefn­ing­unni frá borg­ar­stjór­anum Degi B. Egg­erts­syni. Út­nefn­ing borg­ar­lista­manns er sér­stök heið­ur­sviður­kenn­ing til lista­manns sem með list­sköpun sinni hefur markað djúp spor í ís­lensku lista­lífi. Ólöfu var veittur á­graf­inn steinn; heið­urs­skjal og verð­launa­fé. Ólöf Nor­dal – sem er sex­tug að aldri –...
List til styrktar góðu málefni – ætlar þú að vera með?
Mannlífið

List til styrktar góðu mál­efni – ætlar þú að vera með?

Litla Hönnunar Búðin og Litla Gallerý ætla að vera með upp­boð í Litla Gallerýi, þann 2. októ­ber næst­kom­andi til styrktar Mæðra­styrks­nefnd Hafn­ar­fjarðar. Upp­boðs­sýn­ing mun standa yfir dag­ana 2.-17.októ­ber í Litla Gallerýi við Strand­götu 19 í Hafn­ar­firði en gall­erýið er stað­sett inn af Litlu Hönn­un­ar­búð­inni. Gestir og gang­andi geta komið og boðið í verkin á meðan sýn­ingu stendur en allur ágóði...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins