„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Býst við Ágústi Ólafi í febrúar

Býst við Ágústi Ólafi í febrúar
Logi Ein­ars­son. Mynd/Hallur Karlsson.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gerir ráð fyrir að Ágúst Ólafur Ágústs­son snúi aftur til þing­starfa í febr­úar. Ágúst hafi verið að leita sér hjálpar og end­ur­koma hans alfarið í hans höndum.

Þetta kemur fram í ítar­legu við­tali við Loga í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Ágúst Ólafur fór í tveggja mán­aða leyfi eftir að trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar áminnti fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni gegn Báru Huld Beck, blaða­manni á Kjarn­anum. Logi gerir ráð fyrir að Ágúst Ólafur snúi til baka í febr­úar. En nýtur hann trausts innan flokks­ins? „Ég get ekki talað fyrir hvern ein­asta félags­mann í Sam­fylk­ing­unni en ég að minnsta kosti trúi því að fólk, þó að því verði jafn­al­var­lega á og geti hrasað sem er nú einu sinni saga manns­ins frá örófi alda, eigi að geta fengið fyr­ir­gefn­ingu ef það raun­veru­lega iðr­ast og leitar leiða til að bæta ráð sitt. Það hefur hann verið að gera þannig að þetta er í hönd­unum á honum.“

Ágúst Ólafur gerði erfitt mál verra þegar Bára Huld steig fram og sagði þing­mann­inn hafa gert lítið úr hegðun sinni, í yfir­lýs­ingu þar sem hann greindi frá mál­inu. „Ég ætla ekki að fara út í hans við­brögð við þessu eða hvernig hann gerði það, hann verður að svara fyrir það sjálfur. Sam­fylk­ingin kom ekki að þeirri yfir­lýs­ingu, við sáum ekki inni­haldið. Mér fannst hins vegar akkúrat þetta mál sýna hvað það skiptir miklu máli að flokkar hafi hlut­lausar siða­nefndir og úrskurð­ar­nefndir sem í situr fag­fólk þannig að þú getir boðið þeim sem kvarta yfir óásætt­an­legri hegðun upp á hlut­lausa með­ferð sem hægt er að treysta

En eiga mál sem þessi heima á borði flokks­stofn­ana, er ekki hrein­leg­ast að vísa þeim til þar til bærra yfir­valda?

„Samkvæmt 4. grein siða­reglna okkar þá er það þannig að ef mál eru lík­leg til að varða við refsi­lög­gjöf­ina þá eru þolendur hvattir til og fá hjálp frá úrskurð­ar­nefnd­inni til að leita með málið til lög­reglu. Ef kæmi upp mál er varðar börn eru þau send beint til barna­vernd­ar­yf­ir­valda. Þannig að Sam­fylk­ingin er ekk­ert að halda inni hjá sér neinum málum er varða lög­brot. Það er ein­ungis fjallað um mál sem eru ósæmi­leg, ósið­leg. Í Sam­fylk­ing­unni eru 16-17 þús­und manns, þar er hvorki verra né betra fólk en ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Það segir sig sjálft að í svona stórum félags­skap þá koma upp erfið mál. Fólki verður á, fólk gerir mis­tök. Það er mjög mik­il­vægt að við getum búið til sam­fé­lag, boðið upp á fundi, aðstöðu og umhverfi þar sem konum, ungu fólki og öllum líður vel í og eru öruggir vissir um að ef eitt­hvað svona kemur upp, þá fer það ekki inn á skrif­stofu til for­manns og undir teppi.“

Fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Helgi Hjörvar, hefur sömu­leiðis verið sak­aður um áreitni gagn­vart konum. Aðspurður út í það mál segir Logi að það hafi aldrei komið inn á hans borð enda hafi Helgi ekki verið kjör­inn þing­maður eða gegnt trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn eftir að hann var kjör­inn for­maður. „Ég hef kynnt mér það mál eins og hægt er. Þar lá það fyrir að það var eng­inn sem stóð á bak við kvörtun­ina – eng­inn sem kom fram undir nafni. Þess vegna bjuggum við þessa trún­að­ar­nefnd til, til þess að sá sem kvartar geti verið öruggur um að njóta nafn­leyndar en geti samt staðið á bak­við kvörtun­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins