„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kýs hollan og góðan mat frekar en öfgakúra og Keto

Kýs hollan og góðan mat frekar en öfgakúra og Keto
Greta Salóme

Greta Salóme Stef­áns­dóttir kemur fram á djan­gotón­leikum í Iðnó laug­ar­dag­inn 19. jan­úar. Nýtt lag eftir hana, Mess it up, kemur svo út 1. febr­úar. Greta Salóme ætlar að vera meira heima þetta árið til að spila og semja en í fyrra var hún að spila erlendis um hálft árið. Hún var farin að sakna þess að vera heima á Íslandi þar sem hún getur stundað eitt helsta áhuga­mál sitt sem er elda­mennska.

„Django er einn angi af djass­tón­list,“ segir Greta Salóme Stef­áns­dóttir. „Það skemmti­lega við django er að það geta allir hlustað á django og fund­ist það skemmti­legt. Maður verður svo glaður þegar maður hlustar á þessa tón­list,“ segir hún en Greta sal­ome kemur fram á djang­ótón­leikum í Iðnó í kvöld, laug­ar­dag­inn 19. jan­úar. Um er að ræða nýja tón­list­ar­há­tíð, Djan­godaga í Reykja­vík þar sem heiðri belgíska gít­ar­frum­kvöð­uls­ins Django Rein­hardt verður haldið á lofti.

Gít­ar­leik­ar­arnir Gunnar Hilm­ars­son og Jóhann Guð­munds­son ásamt Leifi Gunn­ars­syni bassa­leik­ara eru á meðal ann­arra flytj­enda á laug­ar­dags­kvöld­inu. „Þetta eru strákar sem ég hef spilað með lengi og ég myndi segja að það væri svo­lítið þeim Gunnari, Leifi og Jóhanni að þakka að ég kynnt­ist djangóinu. Ég og Gunni kynn­umst í MR og byrj­uðum að spila saman fljót­lega eftir að námi lauk og ég fann þá hvað ég fíl­aði djang­ótón­list­ina vel.“

Mess it up

Greta Salóme hefur haft í nógu að snú­ast í tón­list­inni síð­ustu ár og var nýliðið ár sér­stak­lega anna­samt. Hún var erlendis um hálft árið og kom heim á milli tón­leika og sýn­inga auk þess sem hún var hluta árs­ins hjá Disney þar sem hún kom fram eins og hún hefur gert und­an­farin ár.

„Ég er búin að vera á enda­lausu flakki og spila út um allt. Ég ákvað í lok síð­asta árs að vera meira á Íslandi þetta árið og æfa mig og semja. Það er svo merki­legt þegar maður er búinn að vera svona mikið á flakki eins og ég hef gert síð­ustu ár – og sér­stak­lega síð­asta ár – hvað maður fer að sakna Íslands mikið. Þá er svo gott að vera heima og virki­lega ein­beita sér að því að vera heima. Ég reyni að nýta tím­ann vel núna á meðan ég er á Íslandi og er að æfa og taka upp. Ég er að fara að gefa út lagið Mess it up 1. febr­úar og svo gef ég út EP-plötu í kjöl­farið á því þannig að ég er á fullu við að taka upp og und­ir­búa það allt.“

Engir öfgakúrar

Það að vera heima gerir það líka að verkum að Greta Salóme getur sinnt einu af sínum helstu áhuga­málum meira en ella en það er elda­mennska. „Það er alltaf best að vera heima. Það er alveg magnað. Ég var farin að hlakka til að gera hluti eins og að elda mat­inn minn heima, setja í þvotta­vél, ryk­suga og að keyra Toyota-bíl­inn minn þegar ég vil.“

Ég byrj­aði að elda þegar ég var mjög ung en mér fannst alltaf best að vera heima hjá mömmu og pabba

Greta Salóme seg­ist því miður ekki hafa haft mik­inn tíma fyrir áhuga­mál í gegnum árin en elda­mennska er þó áhuga­mál. Hún hefur stundað íþróttir og lík­ams­rækt í langan tíma og leggur almennt áherslu á hollan mat.

„Ég byrj­aði að elda þegar ég var mjög ung en mér fannst alltaf best að vera heima hjá mömmu og pabba og reyna að finna ein­hverja upp­skrift eða búa til rétt frá grunni og dunda mér við það. Svo held ég að þetta komi líka til af því að ég ólst upp á heim­ili þar sem var mik­ill gesta­gangur. Ég hef það frá mömmu og pabba að allir séu vel­komnir hvenær sem er og út frá því spinnst að elda fyrir fólk.“

Greta Salóme seg­ist leggja áherslu á hollan mat og leggur mikla áherslu á græn­meti. „Ég borða frekar kol­vetn­issnauðan mat. Ég hef verið á keto og prófað alls konar kúra en ég er ekki á neinum öfga­kúr núna. Ég reyni að elda mat­inn þannig að hann sé ekki bara hollur heldur verður mig að langa virki­lega í hann.“

Hver er upp­á­halds­mat­ur­inn? „Það er án efa Nóa Síríus-súkkulaði með sjáv­ar­salti. Ég reyni að sýna hvað ég er að elda og borða á Snapchat og Instagram og fólk virð­ist hafa ótrú­lega mik­inn áhuga á því og er alltaf að senda mér spurn­ingar. Ef fólk vill fylgj­ast með því þá er not­enda­nafnið greta­sal­ome bæði á Snapchat og Instagram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífstíll

Sturtuvenjur geta sagt sitthvað um persónuleika þinn – Hvaða líkamshluta þværðu fyrst?
Menning

Sturtu­venjur geta sagt sitt­hvað um per­sónu­leika þinn – Hvaða lík­ams­hluta þværðu fyrst?

Sumir vilja meina að það hvaða lík­ams­hluta fólk velur að þvo fyrst þegar í sturt­una er komið, geti gefið ákveðnar vís­bend­ingar um per­sónu­leika þess. Í dag má segja að offram­boð sé af hinum ýmsu per­sónu­leika­prófum og grein­ingum. Eitt próf getur svarað þeirri mik­il­vægu spurn­ingu hvaða per­sónu í Harry Potter þú lík­ist mest, á meðan annað vís­inda­legra próf flokkar þig niður...
Viðtal

„Ekki fundið mikið fyrir því hingað til að fólk sé feimið eða hrætt við að mæta“

Saga Lluvia Sig­urð­ar­dóttir, eig­andi Losta, og starfs­fólk brennur fyrir það að venju­gera umræð­una um allt sem teng­ist kyn­lífi. Versl­unin býður upp á vörur fyrir alls­konar fólk. En Losti er meðal ann­ars fyrsta verls­unin á Íslandi sem býður upp á vörur fyrir trans­fólk. „Losti er einnig í sam­starfi við alls­konar fag­fólk og fólk sem er að vinna við það sem teng­ist...
„Ég er í betra formi núna en þegar ég var tvítug”
Viðtal

„Ég er í betra formi núna en þegar ég var tví­tug”

Gyða Dís jóga­kenn­ari breytti alger­lega um stefnu fyrir um 20 árum en áður hélt hún sér gang­andi með gosi og súkkulaði. Síðasta ára­tug­inn hefur hún svo gengið skref­inu lengra með því að vera 90 pró­sent á hrá­fæði. „Þrátt fyrir almennt heil­brigt líf­erni er það engin til­viljun að ég umbreytti lífs­háttum mínum fyrir tutt­ugu árum. Ég á þrjá syni ásamt eig­in­manni...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins