„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sölufélagi Garðyrkjumanna gert að fjarlægja umdeildar auglýsingar

Þær aug­lýs­ingar Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna á inn­lendu græn­meti og ávöxtum hafa verið verið bann­aðar þar sem gefið er í skyn að aðstæður við ræktun inn­flutts græn­metis og ávaxta sé ábóta­vant.

Sölufélagi Garðyrkjumanna gert að fjarlægja umdeildar auglýsingar

Neyt­enda­stofa hefur bannað nokkrar aug­lýs­ingar Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna á inn­lendu græn­meti og ávöxtum sem birtar voru í sumar. Aug­lýs­ing­arnar voru teknar til athug­unar eftir að Neyt­enda­stofu barst erindi frá Innnes ehf. þar sem kvartað var yfir aug­lýs­inga­her­ferð­inni.

Í aug­lýs­ing­unum sjást við­skipta­vinir ganga um versl­anir, taka upp græn­meti eða ávöxt sem á stendur „imported“ eða „inn­flutt“, leggja upp að eyr­anu og þá heyr­ist hljóð á borð við hljóð úr kló­setti og vinnu­véla­hljóð eða finni ólykt.

Þegar sá hinn sami tekur hins vegar upp vörur íslenska ávexti og græn­meti þá heyr­ist hins vegar ljúf tón­list. Þá er les­inn upp eft­ir­far­andi texti.: „Grænmeti sem ber merkið okkar er ræktað með hreinu íslensku vatni. Hvaða vatn fer í gegnum græn­metið þitt? Íslenskt græn­meti, þú veist hvaðan það kemur.“

Umdeildu aug­lýs­ing­arnar vöktu strax umtal en í við­tali við Frétta­blaðið í sumar við­ur­kenndi Kristín Linda Sveins­dóttir, mark­aðs­stjóri hjá Sölu­fé­lagi garð­yrkju­manna, að skila­boð aug­lýs­ing­anna séu ögrandi en að til­gang­ur­inn væri að vekja athygli á þeim eig­in­leikum sem íslenska græn­metið hefur upp á að bjóða.

Á vef Neyt­enda­stofu kemur fram að Neyt­enda­stofa taldi að þrátt fyrir að ekki væri vísað með beinum hætti til Innnes eða ann­arra sam­keppn­is­að­ila Sölu­fé­lags garð­yrkju­manna væri aug­ljóst að skír­skotað væri til inn­flutts græn­metis og ávaxta og að gefið væri í skyn að aðstæður við ræktun, hrein­lætis og gæða þess væri ábóta­vant.

„Taldi Neyt­enda­stofa aug­lýs­ing­arnar fælu í sér vill­andi sam­an­burð, væru nei­kvæðar og lít­ils­virð­andi í garð keppi­nauta á mark­aði og með þeim væri kastað rýrð á vörur Innnes. Neyt­enda­stofa bann­aði Sölu­fé­lagi Garð­yrkju­manna ehf. að við­hafa ofan­greinda við­skipta­hætti og beindi þeim fyr­ir­mælum til fyr­ir­tæk­is­ins að fjar­lægja aug­lýs­ing­arnar þaðan sem þeim hafði verið komið á fram­færi.“

Ákvörð­un­ina má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins