„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nokkur góð ráð þegar matvæli eru fryst

Frysting á mat­vælum hefur marga kosti fram yfir aðrar geymslu­að­ferðir.

Nokkur góð ráð þegar matvæli eru fryst

Frysti­skápar og -kistur urðu vin­sælar um miðja 20. öld­ina en vin­sældir þeirra hafa aðeins minnkað með auknum opn­un­ar­tíma versl­ana og meiri áherslu á ferskar vörur. Flestir eru þó með frysti­hólf í ísskápnum eða lít­inn frysti og þeir sem búa fjarri byggð eru oft með stóra frystikistu. Frysting á mat­vælum hefur marga kosti fram yfir aðrar geymslu­að­ferðir þar sem bragðið breyt­ist lítið og hægt er að frysta ýmsa mat­vöru í tals­vert langan tíma. Hér eru nokkur góð ráð sem vert er að hafa í huga við fryst­ingu mat­væla.

Betra er að frysta litla skammta af mat vegna þess að ef fryst­ingin er hröð þá mynd­ast litlir vatns­krist­allar í matnum sem hefur lítil áhrif á bragðið þegar mat­ur­inn er þið­inn. Stórir skammtar af mat frjósa eðli­lega hægar og því verða vatns­krist­all­arnir stærri sem hefur meiri nei­kvæð áhrif á mat­inn þegar hann er þið­inn, hann getur orðið vatns­kenndur og bragð­minni.

Setjið aldrei heitan mat inn í frysti, reyndar gildir sama regla um kæli­s­kápa. Betra er að láta mat­inn kólna alveg og setja hann svo í pass­legar skammta­stærðir inn í frysti.

Notið ávallt góð ílát, stökkt plast er ekki endi­lega best þar sem það getur brotnað. Best er að kaupa þar til gerð frystiplast­box.

Merkið ávallt boxin með frystitússi, skrifið hvernær mat­ur­inn var settur í fryst­inn og einnig hvað er í box­inu. Einnig er hægt að kaupa miða sem þola frost til að merkja boxin.

Reynið að stafla ekki box­unum saman þegar mat­ur­inn er frystur, betra er að hafa bil og rúm á milli svo mat­ur­inn fryst­ist hraðar og sem minnstir krist­allar mynd­ist.

Hita­stigið á fryst­inum ætti að vera á milli -18°C og -20°C.

Matvæli sem inni­halda mikið magn syk­urs eða alkó­hóls fryst­ast oft illa og því er mikl­vægt að hafa þau ekki lengi í fryst­inum, þetta á t.d. við um ís sem krist­all­ast með tím­anum sem hefur áhrif á bragð og áferð.

Hafið gott skipu­lag í fryst­inum svo að mat­ur­inn skemmist síður. Gott er t.d. að nota körfur sem auð­velt er að færa til. Einng er snið­ugt að vera með gott kerfi og t.d. að setja alla ávexti á einn stað, kjöt á annan og eld­aðar mál­tíðir á hinn þriðja og þar fram eftir götum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eldhús

Heimsfrumsýning á snjallvínkæli – Stóreldhússýning Bako Ísberg
Mannlífið

Heims­frum­sýn­ing á snjallvínkæli – Stór­eld­hús­sýn­ing Bako Ísberg

Í til­efni af Stór­eld­hús­sýn­ingu Bako Ísberg sem fram fer dag­ana 4. -5. nóv­em­ber verður heims­frum­sýn­ing á snjallvínkæl­inum ECELLAR 185 frá La Sommeliére hér á Íslandi, en kælir­inn er fyrsti vín­kælir sinnar teg­undar sem hugsar fyrir þig og auð­veldar vín­a­huga­mönnum lífið. Eftir margra ára þróun varð hug­myndin af snjalla vín­kæl­inum ECELLAR loks­ins að veru­leika en hug­mynda­fræðin er þannig að hver hilla...
Nýtískulegt eldhús sem gott er að vinna í
Kynning

Nýtísku­legt eld­hús sem gott er að vinna í

GKS í sam­starfi við Hús og híbýli Þegar Guðrún Ýr Birg­is­dóttir ákvað að taka eld­húsið í gegn í íbúð sinni við Álalind leit­aði hún til GKS. Pétur Haf­steinn Birg­is­son, inn­an­húss­arki­tekt hjá GKS, aðstoð­aði Guðrúnu og hann­aði drauma­eld­húsið hennar. Í fyrstu vildi Guðrún fá hvíta inn­rétt­ingu en í miðju ferl­inu var ákveðið að velja inn­rétt­ingu í gráum lit. Útkoman er nútíma­legt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður