„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tímalaus hönnun við rætur Öskjuhlíðar

Rétt við Öskju­hlíð­ina í Reykja­vík er nýtt hverfi í upp­bygg­ingu, húsið sem við heim­sóttum er enn á bygg­ing­ar­stigi en það er þó ekki að sjá þegar inn er komið. Sig­ur­borg Selma og Gísli Ingi­mund­ar­son búa hér ásamt þeim Kára sem er tíu ára og Benjamín litla sem er eins árs.

Tímalaus hönnun við rætur Öskjuhlíðar

Gísli er for­stöðu­maður áhættu­stýr­ingar og gæða­mála hjá trygg­inga­fé­lag­inu Sjóvá og Sig­ur­borg Selma er fata­hönn­uður að mennt, starfar sem blaða­maður hjá Morg­un­blað­inu.

Nýbygging miðsvæðis

Sig­ur­borg býður okkur ljós­mynd­ara upp á dýr­indis kaffi og við hefjum spjallið. Benjamín litli fylgist athug­ull með því sem fram fer, greini­lega skemmti­legt þegar gesti ber að garði. „Ég átti Moccamaster-upp­á­hell­ing­ar­vél en það tók svo langan tíma að hella upp á að ég náði aldrei að drekka kaffið því ég var alltaf eitt­hvað svo sein. Sjö­strand-vélin hentar mér mun betur,“ segir Sig­ur­borg og hlær.

Parketið er úr hvítt­aðri eik og kemur frá Birg­is­son.

Íbúðin er rúmir 100 fer­metrar og gott flæði er í björtu í meg­in­rým­inu þar sem stofa og borð­stofa liggja saman og opið eld­húsið er greini­lega hjarta heim­il­is­ins en þaðan má ganga beint út á sól­ríkar suð­ur­sval­irnar. Í hinum hluta íbúð­ar­innar eru þrjú svefn­her­bergi með gólf­síðum gluggum og rúm­gott bað­her­bergi með beinu aðgengi að þvotta­húsi og geymslu.

„Glugg­a­rnir eru mjög stórir og stundum er mjög heitt hér þegar sólin skín, en þá nýti ég tæki­færið og fer út í göngutúr í með Benjamín.“

Hvað varð til þess að þetta hverfi varð fyrir val­inu?

„Við vorum að leita að íbúð í Hlíðunum nálægt skól­anum hans Kára, eldri sonar okkar, en það var ein­hvern veg­inn ekk­ert í boði sem hent­aði okkur. Við duttum svo á þessa íbúð en bygg­ingin er tækni­lega séð í póst­núm­eri 101 þótt hún sé eig­in­lega nær Hlíðunum. Kári er líka að æfa körfu­bolta hérna í Val svo það er mjög stutt fyrir hann að fara á æfingar, mjög praktískt.“

Sig­ur­borg segir það hafa verið lítið mál að selja gömlu íbúð­ina í Hlíðunum en hún skellti henni í story á Instagram og hún hafi selst nán­ast um leið og aldrei náð inn á fast­eigna­vef­inn. „Við vorum með þeim fyrstu sem fluttu hingað en það er auð­vitað stutt síðan húsið var byggt.“

Hafa ekki verið mikil læti hérna?

„Ekki núna, en ég veit að íbú­arnir hinum megin í hús­inu heyra tölu­vert frá bygg­inga­svæð­inu. Síðasta sumar var þó verið að vinna í plan­inu hér fyrir framan og ég var að ærast, enda var Benjamín nán­ast nýfæddur og mikil læti,“ segir Sig­ur­borg. Hún bætir því við að í dag sé hávaða­mestu fram­kvæmd­unum þó lokið og að hér sé ynd­is­legt að vera og stutt í nátt­úr­una í Öskju­hlíð­inni.

Borð­stofustól­ana fann mamma Sig­ur­borgar á antík­sölu og Snowglobe-ljósið eftir Louise Poulsen fæst í Epal.

Tímalaus hönnun heillar mest

Stíll heim­il­is­ins er lát­laus og klass­ískur, blanda af tíma­lausri hönnun og fal­legum hús­gögnum njóta sín vel við ljósa vegg­ina. Greini­legt er að þau Sig­ur­borg og Gísli hafa næmt auga fyrir fal­legum hlutum.

Hvaðan koma hús­gögnin ykkar?

„Margt er úr fjöl­skyld­unni, stofu­borðið er í miklu upp­á­haldi en það kemur frá ömmu og afa sem eru miklir fag­ur­kerar. Síðan fengum við Wishbone-stól­ana og stóra arm­ljósið frá Flos í brúð­ar­gjöf síð­asta sumar og við erum mjög ánægð með hvoru tveggja. Mamma hefur líka verið dug­leg að hafa augun opin fyrir okkur á nytja­mörk­uðum og sölu­síðum á Netinu, hún gefur okkur líka alltaf eitt­hvað fal­legt fyrir heim­ilið í jóla- og afmæl­is­gjafir.“

Sig­ur­borg bendir á borð­stofu­borðið og -stól­ana og segir hvoru tveggja hafa komið af sölu­síðum á Netinu en þar megi finna hinar ýmsu ger­semar ef vel sé leitað. Við for­vitn­umst um rúm­gafl­inn sem er hrár og skemmti­legur, smíð­aður úr kros­svið.

„Rúm­gafl­inn er kross­við­ar­plata sem vinur minn smíð­aði fyrir sýn­ingu en hún var á leið­inni á haug­ana.“

„Rúm­gafl­inn er kross­við­ar­plata sem vinur minn smíð­aði fyrir sýn­ingu en hún var á leið­inni á haug­ana. Ég ákvað að prófa að skella henni upp bak­við rúmið og fannst hún koma svo skemmti­lega út!“

Rúm­gafl­inn er hrár og skemmti­legur, smíð­aður úr kros­svið.

Greini­legt er að mikið er um smekk­fólk í fjöl­skyld­unni og ekki eru allir svo heppnir að svo klass­ísk og tíma­laus hönnun ber­ist á milli fjöl­skyldu­með­lima.

Víðs­vegar um íbúð­ina má sjá fal­lega keramíkmuni, blóma­potta, bolla og skálar, við for­vitn­umst um hvaðan þeir komi? „Mamma mín, hún Guðbjörg Kára­dóttir, hannar undir merk­inu Ker og hefur lengi hannað fal­lega keramíkmuni. Þessa dag­ana er hún mest að hanna fyrir ein­stök verk­efni og hefur mikið gert fyrir veit­inga­staði, síðan er hún að sér­hanna bolla sem eru seldir í HAF store. Það má líka alltaf koma við í vinnu­stof­una hennar í Mávahlíð og næla sér í eitt­hvað fal­legt.“

„Síðan erum við alltaf að reyna að bæta við fal­legum lista­verkum á heim­ilið…“

Áttu þér upp­á­halds­versl­anir?

„Ég er mjög hrifin af HAF store og Epal og ég kaupi líka mikið á Netinu, en við erum bæði mjög hrifin af klass­ískri hönnun sem við getum alltaf átt. Gísli bjó erlendis svo hann átti í raun enga búslóð þegar við fluttum inn saman og við gátum svo­lítið ákveðið í hvaða átt við vildum fara. Síðan erum við alltaf að reyna að bæta við fal­legum lista­verkum á heim­ilið en pabbi Gísla er mik­ill áhuga­maður um mynd­list og er dug­legur að mæla með fal­legum verkum.“

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Þau Sig­ur­borg og Gísli eru meðal ann­ars með nokkur verk úr Gallery i8, verk eftir Sigríði Rún úr ser­í­unni líf­færa­fræði let­urs, annað eftir Rán Flygenring og verk eftir Ignacio Uriarte sem er í miklu upp­á­haldi.

Blaðamennskan heillaði

Nú starfar þú sem blaða­maður eftir að hafa lært fata­hönnun, hvernig gerð­ist það? „Mér var boðið starf hjá Morg­un­blað­inu meðan ég var enn þá í námi í Lista­há­skól­anum en ég ákvað þó að klára BA-gráðuna fyrst. Ég hef alltaf haft áhuga á blaða­mennsku og ég held ég hafi í raun upp­götvað í nám­inu að það hent­aði mér betur en að fata­hönnun. Ég fór í starfs­nám til Parísar á fyrsta náms­ár­inu í LHÍ og starf­aði þar á umboðs­skrif­stofu, ég fíl­aði það mjög vel og ætli áhug­inn hafi ekki kviknað þá.“

Sig­ur­borg Selma hefur starfað hjá Morg­un­blað­inu í um fimm ár og þar sér hún um tísku og hönnun í helg­ar­blað­inu. Við þökkum Sig­ur­borgu Selmu kær­lega fyrir heim­boðið, spjallið og kaffi­boll­ann og kveðjum að sinni.

Kaffi­vélin frá Sjöstand er í sér­stöku upp­á­haldi.
Mynd / Aldís Páls­dóttir
Her­bergið hans Benja­míns.

Ljós­myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsgögn

Nýr stóll eftir gamalli teikningu Nönnu Ditzel
Mannlífið

Nýr stóll eftir gam­alli teikn­ingu Nönnu Ditzel

Nýverið var borð­stofu­stóll­inn, Arkade Chair, frum­sýndur en það var Nanna Ditzel sem teikn­aði hann upp­haf­lega árið 1983 í sam­starfi við Brdr. Krüger. Nanna Ditzel. Nanna sótti sér inn­blástur í danska hönnun sem átti í senn að vera klass­ísk og nútíma­leg, stóll­inn var þó ekki settur í fram­leiðslu á þeim tíma. Ditzel var heilluð af skrauti og litum og bera efni­við­ur­inn...
Mikilvægustu húsgögn heimilisins
Mannlífið

Mik­il­væg­ustu hús­gögn heim­il­is­ins

Þekking sem kemur að góðum notum þegar inn­rétta á heim­ilið. Stólar eru vafa­laust ein mik­il­væg­ustu hús­gögn heim­il­is­ins en þekkt­ustu hönn­uðir og arki­tektar heims hafa margir hverjir hannað stóla eða ein­hvers konar sæti á starfsævi sinni. Þegar velja á stóla fyrir heim­ilið er gott að hafa í huga hvaða þarfir þeir þurfa að upp­fylla. Fag­ur­fræði og nota­gildi þurfa því að tvinn­ast...
Hrátt og nútímalegt
Mannlífið

Hrátt og nútíma­legt

Androg­yne-sófa­borðið er nýtt úr smiðju danska fyr­ir­tæk­is­ins Menu, hannað af norska arki­tekt­inum og hönn­uð­inum Danielle Siggerud. Borðið var upp­haf­lega gert fyrir Menu Space-kaffi­húsið en fór fljót­lega á almennan markað. Borðið er með marm­ara­plötu og stálfótum og ein­stak­lega fag­urt á að líta. Það stendur sem skúlp­túr og hentar í hinum ýmsu rýmum og varpar fal­legum skugga­myndum. Nútíma­legt, hrátt og fágað.
Fyrsta tölublað ársins – Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi og trendin fyrir árið 2020 krufin
Mannlífið

Fyrsta tölu­blað árs­ins – Fjöl­breyti­leik­inn í fyr­ir­rúmi og trendin fyrir árið 2020 krufin

For­síðu­myndin er af nýja veit­inga­staðnum Dill sem við heim­sóttum ásamt fjöl­breyttum híbýlum. Arki­tektúr og tísku­straum­arnir fyrir árið 2020 eru áber­andi og virki­lega áhuga­vert að sjá hvað er fram undan. Ein­stak­lega áhuga­verður arki­tektúr á Kala­stöðum sem danski arki­tekt­inn Ole Jakobsen teikn­aði en hann hann­aði húsið út frá nátt­úr­unni í Hval­firði. Fallegt hús hjá Hönnu Þóru í Garðabæ, með skemmti­legum arki­tektúr, sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður