„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Einfaldleiki, hreinar línur og notagildi

Elín Bríta Sig­valda­dóttir er vöru­hönn­uður að mennt sem rekur vef­versl­un­ina Lauuf.com. Hún býr ásamt eig­in­manni og tveimur sonum á Sel­tjarn­ar­nesi í húsi sem þau hjónin festu kaup á fyrir ári síðan og hafa verið að taka smám saman í gegn. Eldhúsið hann­aði Elín sjálf og setti upp sum­arið 2018. Þau höfðu þröngan tímara­mma, eða rétt tæpar fjórar vikur, til þess að rífa niður gamla eld­húsið og setja upp nýtt en óhætt er að segja að vel hafi tek­ist til.

Einfaldleiki, hreinar línur og notagildi

Hvernig var eld­húsið áður? Var skipu­lag­inu breytt mikið þegar farið var í fram­kvæmdir á eld­hús­inu?

Áður en við fórum í fram­kvæmdir var þetta klass­ískt U-laga eld­hús og veggur aðgreindi eld­hús og borð­stofu. Okkur þótti mikil synd að hafa þennan vegg, því bæði skyggði hann á útsýnið og lok­aði kokk­inn af í eld­hús­inu. Við eyðum miklum tíma með börn­unum í þessu rými og viljum geta átt í sam­ræðum við þá sem sitja í borð­stof­unni á meðan dag­legum eld­hús­verkum er sinnt.

Eldhúsið hann­aði Elín sjálf og setti upp sum­arið 2018.

Hvaða hugmynd lagðir þú upp með?

Ein­fald­leika, hreinar línur og nota­gildi. Ég vildi hanna eld­hús þar sem grunn­ur­inn væri ein­faldur og klass­ískur og auð­velt væri að breyta til með því að mála veggi eða skipta um höldur á inn­rétt­ingum. Einnig vildi ég hafa sem minnst af tækjum og græjum sjá­an­legar svo við fórum þá leið að setja örbylgju­ofn­inn í neðri skáp í eyj­unni og hafa önnur tæki inn­byggð.

Elda­vélin er frá Smeg.

Var útkoman í samræmi við upprunalega hugmynd?

Upp­runa­lega var planið að hafa hellu­borð í eld­hús­eyj­unni, en sú hug­mynd fékk fljótt að fjúka því okkur fannst alveg hrika­legt að hafa háf á þessum stað. Þetta þýddi líka að ég gat splæst í drauma­elda­vél­ina, ákvörðun sem ég sé svo sann­ar­lega ekki eftir.

Á veggjum eld­húss­ins eru Dark Paris frá Nordsjö og Restful Melun frá Nordsjö.

Hvað er það besta við þetta tiltekna eldhús?

Elda­vélin er klár­lega í upp­á­haldi en það er ekk­ert skemmti­legra en að elda á gasi. Svo er snilld að geta haft góða yfir­sýn yfir efri hæð­ina því rýmið er mjög opið eftir að vegg­ur­inn fór. Eldhúsið er aðal­sam­komu­stað­ur­inn í hús­inu og þar er spjall­vænt, sem mér finnst mjög mik­il­vægt, enda eru eld­húspartí lang­sam­lega skemmti­leg­ust.

Mynd / Hákon Davíð

Hvernig er efnisvalið og hvað réði því?

Við völdum borð­plötu úr kvars­steini með nátt­úru­steinsút­liti, en eins fal­legur og alvöru­steinn er, þá er hann ekki sá praktískasti fyrir fólk með lítil börn og þá sem elda mikið. Við ákváðum að hafa bæði eyj­una og vegg­hill­urnar úr eik til þess að ná inn meiri hlýju.

Mynd / Hákon Davíð

Inn­rétt­ingar: IKEA.
Eldavél: Smeg, fæst í Eirvík
Inn­byggður ísskápur, ofn og upp­þvotta­vél: AEG frá Ormsson
Vaskur: Franke frá Ísleifi Jónssyni
Ljós yfir eyju: Light Poing Copenhagen frá Pfaff
Ljós yfir borð­stofu­borði: Gregg frá Foscarini, fæst í Lumex.
Grænn litur á eld­hús­vegg: Dark Paris frá Nordsjö, fæst í Sérefni.
Litur á borð­stofu­vegg: Restful Melun frá Nordsjö, fæst í Sérefni.

Mynd / Hákon Davíð

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eldhús

Heimsfrumsýning á snjallvínkæli – Stóreldhússýning Bako Ísberg
Mannlífið

Heims­frum­sýn­ing á snjallvínkæli – Stór­eld­hús­sýn­ing Bako Ísberg

Í til­efni af Stór­eld­hús­sýn­ingu Bako Ísberg sem fram fer dag­ana 4. -5. nóv­em­ber verður heims­frum­sýn­ing á snjallvínkæl­inum ECELLAR 185 frá La Sommeliére hér á Íslandi, en kælir­inn er fyrsti vín­kælir sinnar teg­undar sem hugsar fyrir þig og auð­veldar vín­a­huga­mönnum lífið. Eftir margra ára þróun varð hug­myndin af snjalla vín­kæl­inum ECELLAR loks­ins að veru­leika en hug­mynda­fræðin er þannig að hver hilla...
Nýtískulegt eldhús sem gott er að vinna í
Kynning

Nýtísku­legt eld­hús sem gott er að vinna í

GKS í sam­starfi við Hús og híbýli Þegar Guðrún Ýr Birg­is­dóttir ákvað að taka eld­húsið í gegn í íbúð sinni við Álalind leit­aði hún til GKS. Pétur Haf­steinn Birg­is­son, inn­an­húss­arki­tekt hjá GKS, aðstoð­aði Guðrúnu og hann­aði drauma­eld­húsið hennar. Í fyrstu vildi Guðrún fá hvíta inn­rétt­ingu en í miðju ferl­inu var ákveðið að velja inn­rétt­ingu í gráum lit. Útkoman er nútíma­legt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður