Í dag verður boðið upp á sanna jólastemningu í Skúrnum (The Shed) við Suðurgötu 9 í Hafnarfirði þar sem stærsta jólatré Íslands er jafnframt staðsett.
Hjónin og hönnuðirnir Anthony Bacigalupo og Ýr Káradóttir eiga og reka Skúrinn ásamt því að vera stofnendur og eigendur Reykjavik Trading Co. sem margir kannast við.
View this post on Instagram
A post shared by Anthony Bacigalupo (@mono1984) on Dec 9, 2019 at 1:50pm PST
Í Skúrnum selja þau ýmsar sérvaldar vörur sem ekki hafa fengist á Íslandi áður ásamt eigin hönnun undir merkjum Reykjavik Trading Co. Undanfarnar helgar hafa hjónin boðið upp á jólasmakk fyrir gesti og gangandi þar sem alls kyns kræsingar hafa verið á boðstólum.

Þennan laugardag verður opið frá kl. 12-16 og boðið verður upp á eggjapúns frá Ólafi Ágústssyni matreiðslumanni á KEX í Portland ásamt heimagerðu graskersbrauði sem bakað er eftir uppskrift frá langömmu Anthonys í Kaliforníu.
View this post on Instagram
A post shared by Reykjavík Trading Co. (@rvktradingco) on Dec 21, 2019 at 12:13am PST
Það er því tilvalið að leggja leið sína í Hafnarfjörð, klára jólagjafakaupin og upplifa sanna jólastemningu en Skúrinn er í göngufæri frá Jólaþorpinu.






















Athugasemdir