Sjöan sem framleidd er úr formbeygðum krossvið kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1958. Stóllinn hefur fram að þessu verið fáanlegur sprautaður í ýmsum litum, með leðurklæði og í hinum ýmsu viðaráferðum.

Nýja áklæðið er fáanlegt í þremur litum. Mynd/Fritz Hansen
Flauelisáklæðið er hannað af ítalska fjölskyldufyrirtækinu Redaelli Velluti sem sérhæfir sig í textílhönnun og sérstaklega í flaueli.
Fyrirtækið hefur framleitt flauel í meir en 100 ár fyrir stór tískuhús, húsgagnaframleiðendur og innanhússhönnunarfyrirtæki. Þrír litir eru í boði: muskubleikur, gráblár og haustrauður.

Bleiki liturinn kallast Misty Rose. Mynd/Fritz Hansen

Blái liturinn nefnist Grey Blue. Mynd/Fritz Hansen

Haustrauður eða Autumn Red kallast rauði liturinn. Mynd/Fritz Hansen





















Athugasemdir