„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kynbundið ofbeldi heimsfaraldur

Kynbundið ofbeldi heimsfaraldur
Í síð­asta mán­uði krafð­ist fjöldi fólks þess í París að bund­inn verði endir á kyn­bundið ofbeldi og morð. Margir héldu á lofti spjöldum með nöfnum kvenna sem hafa verið myrtar. Mynd/epa

Árlega eru átta­tíu og sjö þús­und konur drepnar í heim­inum og helm­ingur þeirra fellur fyrir hendi maka, fyrr­ver­andi maka eða ein­hverjum úr fjöl­skyldu sinni. Umfang ofbeldis gegn konum er slíkt að því er líkt við far­aldur. Sumir er þeirrar skoð­unar að ofbeldi gegn konum sé eitt­hvert umfangs­mesta mann­rétt­ind­inda­brot sem við­gengst í heim­inum.

Hundrað og sautján konur hafa fallið fyrir hendi maka eða fyrr­ver­andi maka það sem af er ári í Frakk­landi. Aðgerða­sinnar í París hafa brugð­ist við með því að líma á veggi borg­ar­innar plaköt með ýmsum slag­orðum og með nöfnum kvenna sem hafa fallið fyrir hendi eig­in­manns eða kærasta á árinu.

Tíðni heim­il­is­of­beldis í Frakk­landi er með því hæsta sem þekk­ist í Evrópu og mikla athygli vöktu fjöl­mennar aðgerðir í París þann 23. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Mót­mæl­endur klædd­ust fjólu­bláu og kveiktu á ljósum til marks um að þörf væri á upp­lýsa fólk um raun­veru­lega stöðu mála.

Emanuel Macron, for­seti Frakk­lands, hafði lofað að beita sér fyrir harð­ari refs­ingum í heim­il­is­of­beld­is­málum og nú hafa verið boð­aðar hertar aðgerðir í fjöru­tíu liðum. Það var einnig slá­andi að Macron var boðið að fylgj­ast með í síma­veri þar sem tekið er á móti sím­tölum frá þolendum heim­il­is­of­beldis. Þar heyrði hann við­brögð lög­reglu er sér­fræð­ingur vers­ins reyndi ítrekað að fá þá til að fylgja fimm­tíu og sjö ára gam­alli konu heim til sín að sækja eigur sínar og nauð­syn­legan far­angur áður en henni væri komið í öruggt skjól. Heima beið eig­ina­maður hennar sem hafði gengið alvar­lega í skrokk á henni og konan stödd á lög­reglu­stöð þar sem hún hafði nýlokið við að kæra árás­ina. Lög­reglu­menn neit­uðu að sinna beiðni hennar og báru fyrir sig alls konar afsak­anir sem ýmist voru veikar eða bein­línis ósannar. Sér­fræð­ing­ur­inn sem Macron tal­aði við tjáði honum að þetta væru mun algeng­ari við­brögð en hitt að lög­reglan sam­þykkti að verja kon­urnar sem þeim ber laga­leg skylda til að gera.

Ítarlega er fjallað um kyn­bundið ofbeldi gegn konum í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heimilisofbeldi

Tilkynningum um heimilisofbeldi fækkar á milli ára
InnlentHeimilisofbeldi

Til­kynn­ingum um heim­il­is­of­beldi fækkar á milli ára

Ný skýrsla rík­is­lög­reglu­stjóra um til­kynn­ingar til lög­reglu um heim­il­is­of­beldi og ágrein­ing milli skyldra eða tengdra aðila fyrir árið 2024 hefur verið birt á vef­svæði lög­regl­unnar. Á lands­vísu fékk lög­regla 2.379 til­kynn­ingar um slík mál árið 2024. Er það tæp­lega tvö pró­sent aukn­ing sam­an­borið við síð­ustu þrjú ár á undan. Ef aðeins er litið er til árs­ins 2023 var þrjú pró­sent...
Fyrrum tengdapabba Diddy býður við myndbandinu: „Ég myndi ekki koma svona fram við óvin minn“
HeimurHeimilisofbeldi

Fyrrum tengdapabba Diddy býður við mynd­band­inu: „Ég myndi ekki koma svona fram við óvin minn“

Faðir Kim Porter, Jake Porter, lýsir and­styggð sinni yfir nýlega birtu mynd­bandi af Sean „Diddy“ Combs, sem réðst á söng­kon­una Cassie Ventura árið 2016. Diddy er fyrr­ver­andi tengda­sonur Jake. Jake ræddi við Rolling Stone tíma­ritið á föstu­dag­inn en dóttir hans, Kim heitin, var í sam­bandi með Diddy í fjöldi ára og átti með honum þrjú börn. Í við­tal­inu gagn­rýndi Jake...
Maðurinn á bak við stóra kjólamálið reyndi að kyrkja eiginkonu sína: „Einhver mun deyja“
HeimurHeimilisofbeldi

Maðurinn á bak við stóra kjóla­málið reyndi að kyrkja eig­in­konu sína: „Einhver mun deyja“

Maðurinn sem átti stóran þátt í að starta alþjóð­legt rifr­ildi sem kallað var „Kjólinn sem braut inter­netið“ situr nú á bak við lás og slá eftir að hafa játað að hafa reynt að kyrkja eig­in­konu sína. Samkvæmt The Guardian ját­aði Keir Johnson, 38 ára, sig sekan um að stofna lífi eig­in­konu sinnar í hættu á fimmtu­dag, fyrir rétti í Glasgow,...
Níu konur kæra ríkið vegna brota á rétti í kjölfar ofbeldis
Innlent

Níu konur kæra ríkið vegna brota á rétti í kjöl­far ofbeldis

Níu konur hafa nú kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir að hafa brotið á rétti sínum til rétt­látrar máls­með­ferðar. Konurnar eiga það allar sam­merkt að vera brota­þolar sem kærðu nauðg­anir, heim­il­is­of­beldi og/eða kyn­ferð­is­lega áreitni til lög­reglu en málin voru felld niður af ákæru­vald­inu. Það voru Stígamót ásamt 12 öðrum kvenna- og jafn­rétt­is­sam­tökum sem vöktu athygli á ákærunni. Steinunn Gyðu-...
Fólk

Erfitt fyrir utan­að­kom­andi aðila að skilja af hverju þol­and­inn fer ekki frá ger­and­anum

Það getur reynst erfitt fyrir utan­að­kom­andi aðila að skilja af hverju þol­andi heim­il­is­of­beldis fer ekki frá þeim sem beitir hana eða hann ofbeldi. Í sínum nýjasta pistli varpar Íris Eik Ólafs­dóttir, fjöl­skyldu­fræð­ingur, rétt­ar­fé­lags­ráð­gjafi og sátta­miðl­ari, ljósi á þann víta­hring sem þol­andi heim­il­is­of­beldis sog­ast inn í. Hún segir þann sem beitir ofbeldi gjarnan hafa í svo miklum hót­unum að þol­and­inn þorir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“