„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gott að vera einn með kaffibollanum

Kaffi er ómissandi hluti af íslenskri menn­ingu og Guðrún frá Lundi gerði félags­legu mik­il­vægi hans góð skil í bók­inni Dalalíf. Við fórum á stúf­ana og spurðum nokkra ein­stak­linga um þýð­ingu kaffi­boll­ans í þeirra lífi.

Gott að vera einn með kaffibollanum

„Ég er mik­ill kaffi­s­velgur og finnst algjör­lega ómissandi að byrja dag­inn á kaffi­bolla þegar ég vakna, jafn­vel áður en ég fæ mér morg­un­mat,“ segir Sævar Þór Jónsson, lög­maður og eig­andi Lög­manns­stof­unnar Sævar Þór & partners.

„Mér finnst ég fá auk­inn kraft við fyrsta boll­ann og verk­efni dags­ins verða auð­leyst. Ég drekk mikið kaffi, kannski 5-10 bolla á dag en reyndar minna á frí­dögum en þá hef ég ákveðna hefð sem ég bregð ekki út af. Ég byrja alla frí­daga á því að fara niður í bæ til að fara á kaffi­hús og fæ mér kaffi til þess að taka með, eins og það er orðað hjá hinum ensku­mæl­andi „coffee to go“. Mér finnst eitt­hvað svo frá­bært við það að fara út af heim­il­inu og niður í bæ og byrja á að fá mér bolla á kaffi­húsi en þá eru fáir á ferli og ég einn með mínum kaffi­bolla. Þetta hef ég gert í mörg ár,“ segir Sævar og brosir.

Sævar Þór Jónsson, lög­maður og eig­andi Lög­manns­stof­unnar Sævar Þór & partners.

Hann seg­ist hafa lært seint að drekka kaffi. „Ég byrj­aði ekki að drekka kaffi fyrr en ég var 27 ára gam­all. Ég var þá deild­ar­stjóri hjá skatt­eft­ir­lit­inu í Reykja­vík, ekki það að starfið hafi verið svo leið­in­legt að ég hafi tekið upp á því að drekka kaffi, mér fannst bara kaffi alltaf svo vont en það var venja að starfs­menn sátu saman og drukku kaffi og ég dróst inn í þessa menn­ingu og varð fljót­lega mik­ill kaffi­s­velgur og finnst ekki kaffi lengur vont. Ég geri miklar kröfur þegar kemur að góðu kaffi.“ Hann segir eig­in­mann sinn, Lárus Lárusson, vera sinn besta kaffi­fé­laga. „Annars finnst mér alltaf best að vera einn með boll­anum mínum, ég get þá talað við sjálfan mig í leið­inni,“ segir hann og hlær.

Bætir í kaffi­drykkj­una ef mikið er að gera.

„Ég fæ mér alltaf fyrsta kaffi­boll­ann um leið og ég kem í vinn­una en það er um níu að morgni. Fyrsti sop­inn veitir mér góða til­finn­ingu, bæði vegna lykt­ar­innar af kaff­inu og þegar ég finn það streyma um lík­amann þá hugsa ég: Þetta verður góður dagur,“ segir Kristín Sigurey Sig­urð­ar­dóttir, fast­eigna­sali og eig­andi 101 Reykja­vík fast­eigna­sölu.

„Ég drekk um 5-7 bolla á dag en minna um helgar. Þá drekk ég fyrsta boll­ann aðeins seinna, strax á eftir morg­un­verði og fæ mér eitt­hvað smá­sætt með honum, svona af því að ég vil gera vel við mig. Ég er stundum algjör kaffi­s­velgur og þá sér­stak­lega ef það er mikið að gera hjá mér, þá bæti ég á kaffið,“ segir Kristín og brosir.

Kristín Sigurey Sig­urð­ar­dóttir.

„Sjálfri finnst mér best að drekka venju­legt kaffi með mik­illi mjólk. Ætli það flokk­ist ekki undir að vera latte-lepjandi 101,“ segir Kristín hlæj­andi. „Ég er með vél sem hellir upp á bæði í vinn­unni og heima. Vélarnar eru bauna­vélar og gera báðar mjög gott kaffi. Annars breyti nú ekki mikið út af venj­unni um helgar eða á frí­dögum en ef ég geri það þá panta ég mér cappuccino á kaffi­húsum en heima geri ég pressu­kaffi til til­breyt­ingar. Síðasti boll­inn minn er um sex leytið og þá eftir mjög gott kaffi­hlé eftir hádegi.“

Eiginkonan kom honum á bragðið

Kaffið spilar mis­mikla rullu í dag­legu lífi Örvars Hall­gríms­sonar, sjón­tækja­fræð­ings og eig­andi Plu­sm­inus Optic í Smára­lind. Stundum er hann kaffi­s­velgur og stundum getur hann alveg sleppt því að fá sér kaffi, það fer svona eftir and­anum hverju sinni.

Örvar Hall­gríms­son, eig­andi Plu­sm­inus Optic í Smára­lind.

„Ég er voða rólegur í fyrsta boll­ann en oft­ast er það þegar allt er orðið rólegt á heim­il­inu og allir farnir í skól­ann.“

 Hvernig líður þér við fyrsta sopann?

„Fyrsti sop­inn fer alveg eftir því hvernig ég er stemmdur. Stundum skvetti ég í mig á hlaupum en oft­ast er þetta bara nota­legt og afslapp­andi.“

Breytast venj­urnar eitt­hvað á vinnu­dögum miðað við frí­daga?

„Nei, ég er alltaf voða rólegur þegar kemur að kaff­inu og er ekk­ert ónýtur þótt ég hrein­lega sleppi því. En suma daga er ég skyndi­lega búinn með 6-7 bolla án þess að taka eftir því. Það er kannski ekk­ert mikið fyrir suma en það er heldur of mikið fyrir mig, segir frúin.“

Áttu þér kaffi­fé­laga?

„Já, eig­in­kon­una því það var nú hún kom mér á bragðið. Ég hafði aldrei drukkið kaffi fyrr en ég kynnt­ist henni. Hún var alltaf með kaffi hér og þar og ég fékk mér þá Pepsi eða eitt­hvað verra. En ég hef kom­ist að því að lífið er allt miklu ein­fald­ara með kaffi.“

Hellirðu sjálfur upp á kaffið eða læt­urðu vél gera það? Hvernig kaffi finnst þér best?

„Ég var alltaf með upp­á­hellt og það var bara fínt en eftir að maður fór yfir í góðar kaffi­baunir mal­aðar fyrir hvern bolla þá hef ég bara haldið mig við það. Ég setti alltaf mjólk út í kaffið en nú vil ég ekk­ert nema svart. Ég er langt frá því að verða bara að fá kaffi en góður bolli getur dimmu í dags­ljós breytt.“

En hvað með kaffi­boll­ann þinn, hvernig lítur hann út?

„Ég á mér upp­á­halds­bolla sem ég er í svona ást­ar­hat­urs­sam­bandi við. Það er bolli með áletrun stór­liðs­ins Nott­ing­ham Forest í Englandi sem hefur ekki getað neitt í langan tíma. Ég byrja yfir­leitt snemma á haustin að drekka úr honum og er bara bjart­sýnn á gengið hjá lið­inu og jákvæður en ég á það til að færa boll­ann aft­ast í hill­una þegar líður á tíma­bilið. En maður stendur samt með sínum mönnum.“

Kaffimenningin hluti af samskiptunum

„Ég fæ mér fyrsta kaffi­boll­ann klukkan tíu mín­útur yfir níu, stund­vís­lega,“ segir Fríða Rut Heim­is­dóttir, hár­greiðslu­meist­ari og eig­andi heild­söl­unnar Regalo. „Það er ástæða fyrir því,“ segir hún bros­andi og heldur áfram.

„Við hefjum alltaf dag­inn í vinn­unni á fundi þar sem við förum yfir verk­efni dags­ins og þar er kaffið ómissandi. Ég hef nú aldrei verið mikil kaffi­kona og ekki drukkið marga bolla af kaffi á dag en eftir að fengum Nes­presso-kaffi­vél­ina í vinn­una þá hefur það breyst. Hún er svo þægi­leg í notkun og býður upp á svo marga mögu­leika og fjöl­breytnin er mikil,“ segir Fríða og seg­ist hlæj­andi ekki vera á pró­sentum.

„Ég fæ mér fyrsta kaffi­boll­ann klukkan tíu mín­útur yfir níu, stund­vís­lega,“ segir Fríða Rut.

En hvernig kaffi­bolla skyldi Fríða eiga? „Hann er glær og mér þykir mjög vænt um hann því ég fékk hann að gjöf frá leyni­vini í sauma­klúbbnum mínum fyrir rúmu ári en þeir voru tveir í kassa og hinn boll­ann hef ég heima. Mér finnst svo gaman að sjá hvernig vélin hellir kaff­inu í boll­anum og freyðir mjólk­ina en mér finnst hún einmitt svo góð út í kaffið sem ég vil ekki hafa of heitt heldur volgt.“

Texti: Unnur Hrefna Jóhanns­dóttir
Myndir / Unnur Magna og Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kaffi

Glæsilegt kaffihús morgunhanans – Nýbakað bakkelsi klukkan sex á morgnana
Mannlífið

Glæsi­legt kaffi­hús morg­un­han­ans – Nýbakað bakk­elsi klukkan sex á morgn­ana

TIDES CAFÉ er kaffi­hús í hjarta borg­ar­innar að Aust­ur­bakka 2. Um er að ræða kaffi­hús og bak­arí fyrir morg­un­hana en það er opnað klukkan sex á morgn­ana. Kaffi­húsið er stað­sett á jarð­hæð hót­els­ins Edition en gengið er inn um sér inn­gang við hlið­ina á hót­el­inn­gang­inum. TIDES CAFÉ býður upp á nýbakað bakk­elsi og margar gerðir kaffi­drykkja. Hægt er að grípa...
Starbucks bannar notkun margnota kaffibolla
Heimur

Starbucks bannar notkun margnota kaffi­bolla

Kaffi­húsa­keðjan Starbucks hefur tíma­bundið bannað notkun margnota kaffi­bolla á kaffi­húsum sínum bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum til að leggja sitt af mörkum til að hamla útbreiðslu kór­óna­veirunnar Covid-19. For­svars­menn keðj­unnar segja það mik­il­væg­ara í augna­blik­inu að hefta útbreiðslu veirunnar en að stuðla að umhverf­is­vernd. Þeir sem koma með eigin margnota kaffi­í­lát fá þó ennþá afslátt af verði kaff­is­ins og hætt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu