„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kvikmyndir: Jólasveinar einn og átta

Þó að við á Íslandi séum vön bræðr­unum þrettán sem við köllum jóla­sveina þekkjum við samt öll káta, rauð­klædda jóla­svein­inn sem á hug og hjörtu barna um allan heim. Í kvik­myndum er að finna alls kyns útfærslur á sveinka, bæði góðar og slæmar, og hér eru nokkrar þeirra.

Kvikmyndir: Jólasveinar einn og átta

Vondi jóli

Mynd­irnar um Bad Santa segja frá svika­hrapp­inum Willie Stokes sem flakkar, ásamt félaga sínum, á milli versl­ana­mið­stöðva klæddur sem jóla­sveinn en í stað­inn fyrir að breiða út fagn­að­ar­er­indi jól­anna er mark­mið tvíeyk­is­ins að ræna hvern ein­asta stað sem þeir koma á. Í fyrri mynd­inni kynn­ist Willie átta ára gömlum krakka sem flækir svo sann­ar­lega hlut­ina fyrir honum. Önnur myndin var frum­sýnd í lok nóv­em­ber árið 2016. Í henni nálg­ast jólin á ný og Willie er við sama hey­garðs­hornið og áður, nú safnar hann pen­ingum fyrir bág­stadda en hirðir svo pen­ing­ana sjálfur. Willie vill samt enn meira, fégráð­ugur sem hann er, og því ákveður hann að ræna vel­stæð góð­gerð­ar­sam­tök í slag­togi við smá­vaxna félaga sinn, Marcus, og móður sína, Sunny.

Nýr jólasveinn

Í mynd­inni The Santa Clause, sem er fyrsta myndin í þrí­leik, er sagt frá Scott Calvin. Hann er bara venju­legur maður sem lendir í því óhappi að jóla­sveinn­inn dettur af þaki hans og slasast á aðfanga­dags­kvöld. Scott og sonur hans, Charlie, finna 8 hrein­dýr á þak­inu og þeir ákveða að klára að send­ast með pakk­ana fyrir sveinka. Að ferð­inni lok­inni fara þeir til Norð­ur­póls­ins þar sem Scott er tjáð að hann verði að ger­ast nýi jóla­sveinnin og hafi því 11 mán­uði til að ganga frá sínum málum og mæta aftur á pól­inn á þakk­ar­gjörð­ar­dag­inn.

Kraftaverkajól

Í Miracle on 34th Street virð­ast öll börn New York-borgar sann­færð um að Kris Kringle, nýi jóla­sveinn­inn í Cole’s-stór­versl­un­inni, sé hinn raun­veru­legi jóla­sveinn. Vin­sældir Kris vekja bæði tor­tryggni og afbrýði­semi meðal ann­arra jóla­sveina og versl­un­ar­eig­enda. Þeir reyna að taka hann úr umferð með því að höfða dóms­mál gegn honum. Þá kemur lög­mað­ur­inn Bryan Bedford og reynir að sanna til­vist jóla­sveins­ins og vinna málið. Það reyn­ist auð­vitað ekki ein­falt mál en eins og allir vita þá ger­ast krafta­verk á jól­unum.

Yngri sonur jólasveinsins

Í teikni­myndin Arthur Christmas fáum við loks svar við ráð­gát­unni um hvernig jóla­svein­inum tekst að afhenda allar gjaf­irnar á einni nóttu. Starf­semin á Norð­ur­pólnum ein­kenn­ist af útpældu skipu­lagi og mik­illi hátækni sem er vel falin fyrir okkur hinum. En undir niðri leyn­ist venju­leg fjöl­skylda sem fer á kostum í góð­lát­legum deilum og valda­bar­áttu. Yngri syni jóla­sveins­ins, Arthur, er enn mjög annt um anda jól­anna og þegar hann fær óvænt upp í hend­urnar óend­an­lega mik­il­vægt verk­efni leggur hann allt í söl­urnar til þess að klára það áður en jólin renna upp.

Umsjón / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

afþreying

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“
Innlent

Alþjóð­legur afþrey­ing­ar­staður opnar í Kringl­unni: „Þetta verður háþró­að­asti pílu­staður lands­ins“

Stjörnu­torg Kringl­unnar fær loks nýtt hlut­verk í sumar en þá mun þar opna alþjóð­leg veit­inga- og afþrey­inga­keðja. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að Alþjóð­lega veit­inga­staða- og afþrey­inga­keðjan Oche muni taka yfir pláss hins gamla Stjörnu­torgs Kringl­unnar frá og með sum­ar­byrjun. Verður Ísland þar með níunda landið sem getur boðið lands­mönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúf­fengra veit­inga,...
„Hver nennir að horfa á hamingjusamt fólk heilan vetur“
Fólk

„Hver nennir að horfa á ham­ingju­samt fólk heilan vetur“

Sænska stjarnan Jos­ephine Bornebusch er sann­kallað hæfi­leika­búnt en hún skrifar hand­ritið, leik­stýrir og leikur í gam­andramanu Älskar mig, eða Elskaðu mig og sýndir eru á streym­isveit­unni Viaplay. Þar leikur hún m.a. á móti hinum sænsk-íslenska Sverri Guðn­a­syni. Jos­ephine er í einka­við­tali við Vikuna. Hún er brosmild og glettin þar sem hún segir frá sjálfri sér. „Ég hef alltaf verið skrif­andi....
Hannaði nýtt spil í sjálfskipaðri sóttkví
Innlentafþreying

Hannaði nýtt spil í sjálf­skip­aðri sótt­kví

Lista­mað­ur­inn Hug­leikur Dagsson sat ekki auðum höndum þegar hann var í sjálf­skip­aðir sótt­kví í mái því hann bjó til nýtt spil sem hann lýsir sem „sára­ein­földu sam­stæðu­spili“ og „algerum heila­brjót“. Spilið heitir Ríða­DrepaKúra. „Ríða­DrepaKúra eða FuckCuddleKill er spil sem ég bjó til þegar ég var í sjálf­skip­aðri sótt­kví í Svarf­að­ar­dalnum síð­ast­lið­inn maí. Þetta er í raun­inni sára­ein­falt sam­stæðu­spil en sam­tímis...
Kvikmyndahátíð á Akranesi – frítt á flesta viðburði
Innlent

Kvik­mynda­há­tíð á Akranesi – frítt á flesta við­burði

Heim­ilda­mynda­há­tíðin Icelandic Documentary Film Festival hefst á Akranesi í kvöld, mið­viku­dag­inn 15. júlí, og stendur fram á sunnu­dag. Fjöl­breytt úrval mynda og við­burða verða í boði. Yfir 20 heim­ilda­myndir af öllu tagi verða sýndar á heim­ilda­mynda­há­tíð­inni Icelandic Documentary Film Festival sem hefst á Akranesi í kvöld. Mynd­irnar, sem eru hvaðanæfa að úr heim­inum og fjöl­breyttar eftir því, eru alveg frá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu