„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rýnt í rúnir um áramót

Þegar ára­mótin nálg­ast er alltaf gaman að leika sér að því að spá fyrir um hvað kom­andi ár ber í skauti sér. Norræna rúnastaf­rófið, fúþark, inni­heldur tutt­ugu og fjórar rúnir en hér koma nokkrar þær algeng­ustu og ef les­endur loka aug­unum og velja sér eina þeirra blind­andi ætti hún að gefa vís­bend­ingu um hverst er að vænta á nýju ári.

Rýnt í rúnir um áramót
Inguz.

Inguz, rún frjósemi

Sýndu þol­in­mæði, þú nærð mark­miðum þínum með vinnu og blómstrar í kjöl­farið. Inguz er frá­bært tákn fyrir ást­ina. Ef þú ert ein­hleyp/ur, táknar það að ljúf mann­eskja, nátt­úru­unn­andi, kemur inn í líf þitt.

Þeir sem þegar hafa fundið ást­ina upp­götva að úti­vist eflir ástríð­urnar innra með þeim. Í fjár­málum gætu óskir ræst. Vertu jákvæð/ur og þakk­lát/ur fyrir það sem þú hefur og sjáðu fyrir þér það sem þú þráir. Heppni verður á vegi þínum í þeim málum.

Dagaz.

Dagaz, rún óvæntra breytinga

Þetta verður árið þitt. Þú áttar þig kannski ekki á því alveg strax en fram­tíðin lofar mjög góðu. Hafðu augun opin fyrir nýjum tæki­færum því allar dyr eiga eftir að standa þér opnar. Þegar það ger­ist verða miklar og góðar breyt­ingar hjá þér.

Þú og betri helm­ing­ur­inn dettið í lukku­pott­inn, annað ykkar eða bæði gætuð fengið óvænta pen­inga, launa- eða stöðu­hækkun. Þeir ein­hleypu ættu ekki að missa af tæki­færi til að að hitta ein­hvern – það verður róm­an­tík og við­kom­andi hefur afar góð áhrif á þig og mun efla skiln­ing þinn á svo mörgu.

Raido.

Raido, rún ævintýra

Raido táknar ferða­lög og hreyf­ingu og að senn komir þú að kross­götum í líf­inu. Tveir mögu­leikar eru í stöð­unni og ekki vinna gegn breyt­ingum. Taktu áhættu, það er þess virði.
Raido-rúnin segir þetta verða mjög róm­an­tískt ár hjá þér og að þú finnir ást­ina á þessu ári.

Ein­hleypir munu hitta mann­eskju sem teng­ist útlöndum. Ef ástin er þegar til staðar, sýndu frum­leg­heit, komdu ást­inni þinni á óvart og hún mun gera slíkt hið sama.

Farðu gæti­lega í fjár­málum. Stattu við skuld­bind­ingar þínar því Raido-rúnin hvetur til þess að fólk borgi skuldir sínar frekar en að eyða í óþarfa. Safnaðu frekar fyrir drauma­frí­inu eða -bílnum.

Wunjo.

Wunjo, rún gleði

Ekki búast við miklum breyt­ingum. Wunjo hvetur til að njóta þess sem maður hefur og þess sem lífið býður upp á. Haltu ró þinni og ein­beit­ingu hvað sem lífið færir þér og leggðu grunn að fram­tíð­inni.

Wunjo táknar sam­ein­ingu. Ein­hleypir hitta spenn­andi, dul­ar­fullan hugsuð í marg­menni. Pör munu styrkja sam­bönd sín með því að verja tíma með fjöl­skyldu og vinum. Fjár­málin taka kipp og er sam­vinna lyk­il­orðið. Gríptu tæki­færin þegar þau koma til þín.

Gebo.

Gebo, rún gjafa 
Gebo-rúnin spáir bjartri fram­tíð. Gjöful tæki­færi standa þér til boða. Þú sérð loks­ins leið til að öðl­ast það sem þú hefur alltaf þráð. Ekki hræð­ast tæki­færið þegar það loks­ins býðst, þú átt það skilið.

Gebo er eins og koss og þú átt von á mörgum kossum. Hún er tákn ham­ingju tveggja aðila sem sætta sig við hver ann­ars galla og verða óað­skilj­an­legir. Þeir ein­hleypu hitta mann­eskju sem er óheyri­lega róm­an­tísk.

Deildu hæfi­leikum þínum. Að deila með öðrum gerir mikið fyrir þig, bæði and­lega og fjár­hags­lega.

Ehwaz.

Ehwaz, rún félagsskapar

Þessi rún hvetur þig til auk­ins félags­lyndis. Hver sá sem þú hittir getur orðið hluti af vel­gengni þinni í fram­tíð­inni. Reyndu að kynn­ast sam­starfs­fólki þínu betur og leggðu þig fram við að kynn­ast nýju fólki.

Ekki hika við að biðja um aðstoð við að kom­ast á þann stað sem þú vilt vera.

Mála­miðlun er aðal­at­riðið og þessi rún minnir pör á að halda góðu og nánu sam­bandi. Þeir ein­hleypu gætu hitt mann­eskju sem þeir gætu hugsað sér að bind­ast. Blíða og góð­mennska er upp­skriftin að róm­an­tískri vel­gengni.

Perthro.

Perthro, rún örlaga

Í fornum menn­ing­ar­heimum var því trúað að and­legir kraftar spil­uðu stóra rullu í lífi okkar. Perthro-rúnin er tákn þess og ef þú dregst að henni táknar það að sjötta skiln­ing­ar­vitið leiðir þig að nýjum tæki­færum.
Ef þú ert ein­hleyp/ur muntu hitta hinn eina rétta/hina einu réttu. Við­kom­andi er hug­ul­söm mann­eskja og hlý til­finn­ing fer um þig í hvert skipti sem þið hitt­ist. Pör munu upp­götva að þau deila leyndum þrám. Pethro getur líka þýtt sköpun, fæð­ingu.
Áður en þú ferð að sofa, sjáðu fyrir þér Perthro-rún­ina. Þegar þú vaknar skrif­aðu niður drauma þína og þeir gefa þér vís­bend­ingar um hvernig bæta má fjár­málin.

Jera.

Jera, rún karma

Allar hugs­anir, orð og gjörðir senda gárur út í alheim­inn. Komdu fram við aðra eins og þú vilt að komið sé fram við þig er ein tákn­mynd Jeru og jákvæðni leiðir af sér jákvæða hluti.

Jera stendur fyrir endi og nýtt upp­haf. Mælt er með því að pör horfi til fram­tíðar og erfi ekki það gamla úr for­tíð­inni en það kemur nýrri orku í ásta­lífið. Ein­hleypir hitta mann­eskju sem þeim líður með eins og þeir hafi þekkt hana alla ævi … eða lengur.

Fjár­hag­ur­inn er á upp­leið. Finndu út hvaða mis­tök þú hefur gert í fjár­málum og lærðu af þeim. Þú færð gamla skuld greidda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áramót

Borgin hættir við fækkun áramótabrenna: „Hér er um tilfinninga- og hitamál að ræða“
Innlent

Borgin hættir við fækkun ára­móta­brenna: „Hér er um til­finn­inga- og hita­mál að ræða“

Reykja­vík­ur­borg hefur ákveðið að hætta við að fækka brennum í borg­inni um næstu ára­mót. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata til­kynnti nú fyrir stundu á Facebook að borgin hefði ákveðið að hlusta á íbúa og íbúa­ráð um að hætta við að fækka ára­móta­brennum í ár. Dóra skrif­aði: „Ég hef alltaf ein­sett mér að vera auð­mjúk og næm á sjón­ar­mið íbúa út...
Mest lesnu fréttir ársins – Endurkoma Gylfa, harmleikir og nýjar ástir
Innlentáramót

Mest lesnu fréttir árs­ins – End­ur­koma Gylfa, harm­leikir og nýjar ástir

Árið 2023 var ár end­ur­komu, ofbeldis, harm­leika og ást­ar­innar ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 18 milljón sinnum, sem þýðir að með­al­flett­ingar á dag var um 50.000. Verður það að telj­ast nokkuð gott hjá litlum miðli sem þessum. Nokkar fréttir stóðu upp úr en um leið og við rifjum upp tíu mest lesnu fréttir árs­ins...
Lögreglan minnir á rétta notkun flugelda: „Þar sé reglum framfylgt“
Innlent

Lög­reglan minnir á rétta notkun flug­elda: „Þar sé reglum fram­fylgt“

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur sent frá sér til­kynn­ingu varð­andi flug­elda­notkun. Þar eru íbúar minntir á að það sé bannað að breyta flug­eldum. Þá er einnig minnt á að mik­il­vægt sé að fara var­lega og nota örygg­is­gler­augu. „Hér eru íslenskar gæsalappir“ Hægt er að lesa alla til­kynn­ing­una hér fyrir neðan: „Reglu­lega skap­ast umræður um svo­kall­aðar skot­kökur og sam­teng­ingar á þeim. Gott...
Mest lesnu fréttir ársins – Vítalía, Svala Björgvins, stunguárásir og skandalar
Innlentáramót

Mest lesnu fréttir árs­ins – Vítalía, Svala Björg­vins, stungu­árásir og skandalar

Árið 2022 var ár skandala, ofbeldis og kyn­ferð­is­áreitis ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 21 milljón sinnum, þær voru þó nokkrar sem stóðu upp úr. Á sama tíma og við lítum til baka á vin­sæl­ustu fréttir árs­ins 2022, þökkum við á rit­stjórn Mannlífs fyrir veittan stuðn­ing og óskum þjóð­inni allri gæfu­ríks árs. Deilt innan Félags...
Gæði, sérþekking og gott verð – Áramótavínið 2021 er frá Tíu Vín
Mannlífið

Gæði, sér­þekk­ing og gott verð – Ára­móta­vínið 2021 er frá Tíu Vín

Ára­móta­vínið völdu þeir vin­irnir og vín­sér­fræð­ing­arnir hjá TÍU VÍN en er það freyði­vínið Moutard Blanc de Blancs Brut 100% Chardonnay frá Bourgogne Vínið er full­komið í ára­móta­veisl­una hvort sem það er með for­rétt­inum eða til þess að skála í þegar klukkan slær tólf. Vínið vann til gull­verð­launa í French National Crémant Contest. Það hefur fengið frá­bæra dóma og er gott...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu