Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hætta við að fækka brennum í borginni um næstu áramót.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata tilkynnti nú fyrir stundu á Facebook að borgin hefði ákveðið að hlusta á íbúa og íbúaráð um að hætta við að fækka áramótabrennum í ár. Dóra skrifaði: „Ég hef alltaf einsett mér að vera auðmjúk og næm á sjónarmið íbúa út frá mínum lýðræðishugsjónum og reyna að finna eins farsæla lendingu í málum og unnt er. Því er mér ljúft og skylt að taka mið af umræðunni og bregðast við með því að endurskoða fyrri ákvörðun. Hér er um tilfinninga- og hitamál að ræða sem þarf að ígrunda betur að mínu mati. Þegar kemur að umhverfisþættinum þá er ég uppteknari af stærri og áhrifaríkari aðgerðum í þeim efnum en svona token aðgerðum.“
Hér má lesa færsluna í heild sinni:
„Það verða áfram 10 brennur í Reykjavík um áramótin 2024
Eftir mikla hvatningu frá íbúum og íbúaráðum hyggjumst við leggja til við umhverfis- og skipulagsráð á næsta fundi að afturkalla tillögu um fækkun brenna sem áður hafði verið boðuð og halda áfram með þær 10 brennur sem haldnar hafa verið í Reykjavík áramótin 2024. Sömuleiðis verði skoðað hvernig hægt er að mæta athugasemdum viðbragðsaðila án þess að afleggja brennurnar.Ég hef alltaf einsett mér að vera auðmjúk og næm á sjónarmið íbúa út frá mínum lýðræðishugsjónum og reyna að finna eins farsæla lendingu í málum og unnt er. Því er mér ljúft og skylt að taka mið af umræðunni og bregðast við með því að endurskoða fyrri ákvörðun. Hér er um tilfinninga- og hitamál að ræða sem þarf að ígrunda betur að mínu mati. Þegar kemur að umhverfisþættinum þá er ég uppteknari af stærri og áhrifaríkari aðgerðum í þeim efnum en svona token aðgerðum.Jafnframt leggjum við til að eiga samráð við íbúa og viðbragðsaðila á árinu 2025 um staðsetningarnar til lengri tíma litið þar sem ræddar verði mögulegar nýjar staðsetningar eða aðrar breytingar til að mæta mismunandi sjónarmiðum.“


























Athugasemdir