Samkvæmt íslenskri þjóðtrú var talið að álfar og huldufólk flyttu
búferlum og fyndu sér nýjan bústað á áramótum.
Þá var talið að álfarnir og huldufólkið ættu til að koma við á bæjum og því skapaðist sú hefð að fólk þreif húsakynni sín hátt og lágt. Voru ljós látin loga í öllum hornum og húsfreyjan gekk um bæinn að verki loknu og hafði yfir eftirfarandi brot úr þulu:Komi þeir sem koma viljaVeri þeir sem vera viljaFari þeir sem fara viljaMér og mínum að meinlausuÁlfar, tröll, jólasveinar og aðrarþekktar íslenskar vættir koma líkavið sögu á brennum.


























Athugasemdir