„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég vil bara gleðja fólk“

Grínsketsar sem leik­ar­inn Vilhelm Neto gerir hafa náð tölu­verðum vin­sældum á Instagram und­an­farið. Um stutt mynd­bönd er að ræða þar sem Vilhelm gerir grín af m.a. mál­efnum líð­andi stundar og hinum ýmsum týpum. Mark­miðið með skets­unum er að gleðja fólk.

„Ég vil bara gleðja fólk“
Mynd / Unnur Magna|Mynd / Unnur Magna

Leik­ar­inn Vilhelm Neto lærði leik­list í Kaup­manna­höfn og útskrif­að­ist í sumar. Spurður úr í hvað hann hefur verið að gera síðan hann útskrif­að­ist segir hann: „Ég er búinn að vera á fullu síðan ég kom aftur til Íslands. Ég er búinn að vera að semja uppi­stand með Stefáni Inga og Hákoni Erni og gera hlað­varp fyrir RÚV Núll sem heitir Já OK! með Fjölni Gísla­syni. Svo eru fleiri járn í eld­inum, spenn­andi verk­efni sem eru samt leyndó.“

Til við­bótar við þetta birtir Vilhelm reglu­lega sketsa á Instagram sem njóta mik­illa vin­sælda. „Ég byrj­aði að gera sketsa fyrir nokkrum árum, þá byrj­aði ég á snjall­símafor­rit­inu Vine, þegar það var ennþá til.“

Þegar Vine hætti árið 2017 fór Vilhelm að not­ast við Twitter. „Ég sá að fólki fannst það sem ég var að gera skemmti­legt og var að fíla skets­ana. Þannig að ég ákvað að kýla á það að setja þá alla á Instagram.“

Mynd / Unnur Magna

Vilhelm byrj­aði að birta mynd­böndin sín á Instagram sum­arið 2019. Í dag fylgja tæp­lega 13.000 manns honum þar. „Ég er mjög þakk­látur fyrir alla þessa athygli. Ég vil bara gleðja fólk,“ segir hann.

Úthverfamamman og finnski pabbinn vinsæl

Þegar Vilhelm er spurður út í hvaða skets frá honum hefur verið vin­sælastur hugsar hann sig um og svarar svo. „Rapp­eft­ir­herm­urnar fengu mikla athygli. Og bagg­kóng­ur­inn, fólk er enn þá að vísa í það við mig niðri í bæ,“ segir hann og hlær. „Sketsinn um gengi íslensku krón­unnar var líka vin­sæll, ég er smá stoltur af honum,“ bætir hann við.

View this post on Instagram

Íslenska gengið

A post shared by Vilhelm Neto (@villineto) on Feb 21, 2019 at 9:01am PST

Skets­arnir sem Vilhelm gerði með Ingunni vin­konu sinni eru líka í upp­á­haldi hjá honum að hans sögn.

„Svo eru það nokkrir karakt­erar sem hafa vakið athygli og fengið mikið áhorf, t.d. úthverfa­mamman og finnski pabb­inn.“

View this post on Instagram

Úthverfa­mamman

A post shared by Vilhelm Neto (@villineto) on Aug 5, 2018 at 6:25am PDT

View this post on Instagram

Finnskur pabbi í sól­ar­landa­ferð.

A post shared by Vilhelm Neto (@villineto) on Aug 7, 2018 at 4:30am PDT

Annars seg­ist Vilhelm ekki vilja velta sér mikið upp úr áhorfs­tölum. „Ég reyni að telja áhorfin ekki, þá verð ég smá geð­veikur,“ segir hann og hlær. „Ef ég fer að hugsa of mikið um við­brögðin og skoða stöð­una reglu­lega þá verð ég bara stress­aður yfir þessu.“

Talandi um stress, Vilhelm við­ur­kennir að hann finni fyrir stressi þegar hann er ekki búinn að birta nýjan skets á Instagram í langan tíma. „Ef fólk fer að ýta á mig og spyrja hvenær ég ætli að birta nýjan skets þá fyrst verð ég stress­aður,“ segir hann og hlær.

Vill ekki særa

Aðspurður hvort hann rit­skoði sig mikið áður en hann birtir nýtt mynd­band á Instagram segir hann: „Nei, nema það að ég passa mig á að gera ekki grín sem nið­ur­lægir. Áður en ég birti skets þá spyr ég mig hvort ein­hverjum gæti liðið illa vegna mynd­bands­ins. Ég vil ekki særa fólk…vera ein­hver leið­in­leg týpa sem er alltaf að móðga.“

„Áður en ég birti þá spyr ég mig hvort ein­hverjum gæti liðið illa vegna mynd­bands­ins.“

Vilhelm seg­ist ekki hafa lent í því að móðga fólk með sketsum sínum. „Nei, ég hef verið frekar hepp­inn með það. Ég hef reyndar sjálfur fengið efa­semdir og eytt skets sem mér fannst ekki í lagi.“

Uppistandssýningar fram undan

Að lokum bendir Vilhelm áhuga­sömum á uppi­stands­sýn­ing­arnar End­ur­menntun sem eru fram undan. „Við Stefán og Hákon verðum með uppi­stand á Akureyri 21. nóv­em­ber á Græna Hattinum. Á Rifi á Snæ­fells­nesi 22. nóv­em­ber og á Kex Hostel 23. nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Hinn dauðvona „Harold Bishop“ fékk gleðitíðindi: „Þeir geta ekki sagt að krabbameinið sé farið“
Heimurleiklist

Hinn dauð­vona „Harold Bishop“ fékk gleði­tíð­indi: „Þeir geta ekki sagt að krabba­meinið sé farið“

Nágranna­goð­sögnin Ian Smith var sagt að hann myndi ekki lifa fram að mars­mán­uði, eftir að hafa barist við árás­ar­gjarnt form lungna­krabba­meins, en nýlegar fréttir frá lækn­unum hafa gefið honum von um fram­leng­ingu á lífi. Ian Smith, ást­sæli leik­ar­inn sem lék Harold Bishop í áströlsku sápu­óp­er­unni Nágrönnum (e. Neighbours) í ára­tugi, var sagt að hann myndi ekki lifa fram í mars...
Vill að RÚV geri samning við Vesturport um árlegar þáttaraðir:„Allt small hér sem best mátti verða“
Menning

Vill að RÚV geri samn­ing við Vest­ur­port um árlegar þátt­araðir:„Allt small hér sem best mátti verða“

„Mikið megum við vera þakk­lát fyrir þá stór­kost­lega vel heppn­uðu þætti um líf elsku Vigdísar okkar allra, sem haldið hafa okkur hug­föngnum und­an­farin sunnu­dags­kvöld.“ Þannig hefst lof­ræða Jakobs Frímanns Magn­ús­sonar um þætt­ina um Vigdísi Finn­boga­dóttur, sem slegið hafa í gegn að und­an­förnu. Jakob stingur upp á því að RÚV geri sér­stakan samn­ing við Vest­ur­port, sem gerði þætt­ina um Vigdísi, um...
Gunnar gerir upp andlát foreldra sinna: „Þá er gott að eiga vini“
Menning

Gunnar gerir upp and­lát for­eldra sinna: „Þá er gott að eiga vini“

Leik­ar­inn og hand­rits­höf­und­ur­inn Gunnar Smári Jóhann­es­son sýnir um þessar mundir ein­leik­inn Félags­skapur í Tjarn­ar­bíó en í verk­inu gerir Gunnar upp and­lát for­eldra sinna sem lét­ust þegar hann var barn. „Í raun og veru fjallar þetta í grófum dráttum um félags­kvíða sem ég upp­lifði eftir and­lát for­eldra minna í æsku,“ sagði Gunnar í við­tali á RÚV um verkið en það fjallar...
Jón Gnarr og Edda Björgvins leika hjón: „Ég á fulla von á að þessir þættir muni slá í gegn“
Menning

Jón Gnarr og Edda Björg­vins leika hjón: „Ég á fulla von á að þessir þættir muni slá í gegn“

For­seta­fram­bjóð­and­inn Jón Gnarr hefur heldur betur um nóg að snú­ast þessa dag­ana. Jón Gnarr skrif­aði færslu í morgun þar sem hann lýsti ansi stífri dag­skrá sinni þessi dægrin en hann mun til að mynda brátt leika í nýjum sjón­varps­þáttum ásamt Eddu Björg­vins­dóttur. „Gær­dag­ur­inn var vel pakk­aður af verk­efnum. Byrjaði dag­inn á fyrsta sam­lestri á sjón­varps­þáttum sem ég er að gera...
„Harry Klein“ liggur á dánarbeðinum: „Hún höndlar aðstæðurnar ótrúlega vel“
Heimurleiklist

„Harry Klein“ liggur á dán­ar­beð­inum: „Hún höndlar aðstæð­urnar ótrú­lega vel“

Þýski leik­ar­inn Fritz Wepper, sem þekkt­astur er á Íslandi fyrir hlut­verk sitt sem Harry Klein í saka­mála­þátt­unum Derrick, liggur á dán­ar­beð­inum sínum á hjúkr­un­ar­heim­ili í Efri-Bæj­ara­landi. Þar er honum veitt líkn­andi með­ferð en hann er hættur að taka lyfin sín. Fritz, (82) hefur verið á hjúkr­un­ar­heim­il­inu síð­ustu daga en eig­in­kona hans, Susanne Kell­er­mann, (49) og dóttir þeirra Filippa (12) hafa...
Engin jarðarför fyrir Nágranna-leikarann: „Frjáls andi sem ekki var hægt að halda aftur af“
Heimurleiklist

Engin jarð­ar­för fyrir Nágranna-leik­ar­ann: „Frjáls andi sem ekki var hægt að halda aftur af“

Engin jarð­ar­för verður fyrir Nágranna-stjörn­una Troy Beckwith, sem lést á dög­unum aðeins 48 ára að aldri. Samkvæmt systur Troy, lést leik­ar­inn, sem þekkt­astur var fyrir hlut­verk sitt sem Michael Martin í Nágrönnum frá 1992 til 1998, eftir erf­iða bar­áttu við krabba­mein. Ættingi Troy, Shane Beckwith sagði á sam­fé­lags­miðlum frá dán­ar­or­sökum frænda síns í dag. „Fjöl­skyldan vill að allir viti að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins