„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Halda bingó og safna fyrir hænsnabúi

Hópur kvenna er þessa stund­ina að und­ir­búa bingó til styrktar Haven Rescue Home í Kenýa. Haven Rescue Home er heim­ili fyrir stúlkur, 18 ára og yngri, sem eru barns­haf­andi eða mæður ungra barna. Mark­miðið er að safna 450.000 krónum og setja upp hænsnabú fyrir ágóð­ann.

Halda bingó og safna fyrir hænsnabúi
|Anna Þóra Bald­urs­dóttir

„Í Kenýa ríkir mikil fátækt og eitt af þeim mörgu vanda­málum sem fylgir fátækt er að ungar stúlkur verða barns­haf­andi og ljúka ekki skóla­göngu. Ríkjandi hug­ar­far í Kenýa er að þegar þú ert orðin móðir þá sé skóla­göng­unni lokið.

Þær stúlkur sem kjósa að halda áfram að mennta sig hafa því hingað til ein­ungis haft þann mögu­leika að gefa barn sitt frá sér. Mörg heim­ili taka við unga­börnum sem fjöl­skyldur gefa frá sér en aðeins örfá heim­ili aðstoða bæði móður og barn saman,“ segir Hafdís Ósk Bald­urs­dóttir í sam­tali við Mannlíf.

Hafdís Ósk er ein þeirra sem stendur að bingóinu en systir hennar, Anna Þóra Bald­urs­dóttir, er einn stofn­andi Haven Rescue Home. Anna Þóra stofn­aði heim­ilið með kenískri sam­starfs­konu sinni.

Þess má geta að Anna Þóra sagði frá líf­inu í Kenía og Haven Rescue Home í við­tali við Vikuna í októ­ber í fyrra. 

„Á meðan stelp­urnar á Haven Rescue Home klára skóla­göng­una er þeim boðið að búa með barnið sitt inni á heim­il­inu og fá nauð­syn­lega aðstoð til að geta sinnt bæði skóla og barni. Með því að klára skóla­göngu eiga þær mögu­leika á að fá góða vinnu og geta flutt aftur út sem sterk­ari ein­stak­lingar,“ útskýrir Hafdís Ósk.

Tilvalið að halda bingó

„Styrkt­ar­fé­lag Haven Rescue Home hefur síð­ustu mán­uði verið að leggja höf­uðið í bleyti varð­andi fjár­öflun fyrir heim­ilið. Heimilið er ein­göngu rekið á styrkjum, mán­að­ar­legum boð­greiðslum og styrkjum frá ein­stak­lingum,“ segir Hafdís Ósk. „Okkur fannst upp­lagt að skipu­leggja bingó og safna þannig.“

„Fyrsti áfang­inn í því að setja upp hænsnabú sem skapar tekjur.“

Hópurinn sem stendur að bingóinu hefur sett sér það mark­mið að safna 450.000 krónum. „Draum­ur­inn er að gera rekst­ur­inn sjálf­bæran að mestu. Fyrsti áfang­inn í því að setja upp hænsnabú sem skapar tekjur. Áætlað er að heild­ar­kostn­aður muni nema 450.000 krónum. Því leggjum við upp með að safna þeirri upp­hæð,” útskýrir Hafdís Ósk.

Hún segir und­ir­bún­ing bingós­ins hafa gengið vel og margt fólk er til­búið að leggja verk­efn­inu lið. „Vinn­ing­arnir hrúg­ast inn og stefnir þetta í mjög veg­legt bingó.”

Bingóið verður haldið 23. nóv­em­ber klukkan 15:00. í Flens­borg­ar­skól­anum í Hafn­ar­firði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Viðburðir

Tók U-beygju við Heiðmörk og flúði undan löggunni – Dópaður á 160 kílómetra hraða í Ártúnsbrekku
Innlent

Tók U-beygju við Heiðmörk og flúði undan lögg­unni – Dópaður á 160 kíló­metra hraða í Ártúns­brekku

Ökumaður á leið um Vest­ur­lands­veg reyndi í ofboði a taka u-beygju og snúa við þegar hann sá lög­reglu­menn við umferð­ar­póst á Vest­ur­lands­vegi við Heiðmörk. Lög­reglu­menn brugðu skjótt við og eltu flótta­mann­inn. Í ljós kom að hann bar sterk ein­kenni þess að vera undir áhrifum. Hann er nú með stöðu grun­aðs manns og má vænta refs­ingar. Rúmlega 100 önnur öku­tæki voru...
Eivör Pálsdóttir hlaut í gærkvöldi tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
InnlentViðburðir

Eivör Páls­dóttir hlaut í gær­kvöldi tón­list­ar­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs

Eivör Páls­dóttir hlaut í gærkveldi tón­list­ar­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs þegar nor­ræna verð­launa­há­tíðin fór fram í Kaup­manna­höfn. Þeir sem til­nefndir voru fyrir Íslands hönd voru Þor­gerður Ing­ólfs­dóttir og Víkingur Ólafsson fyrir tón­list. Andri Snær Magnason fyrir Um tím­ann og vatnið og Guðrún Eva Mínervu­dóttir fyrir Aðferðir til að lifa, af voru til­nefnd í flokki bók­mennta. Í flokki barna- og ung­linga­bók­mennta voru til­nefndir Íslend­ing­arnir...
Sycamore Tree gerir allt vitlaust á Sjálandi: „Það verður bara partý hjá okkur!“
Kynning

Sycamore Tree gerir allt vit­laust á Sjálandi: „Það verður bara partý hjá okkur!“

Það verður svaka stuð á veit­inga­staðnum Sjálandi eftir rúmar tvær vikur. Þá verður haldin mögnuð kvöld­stund með hljóm­sveit­inni vin­sælu Sycamore Tree og boðið upp á glæsi­legan þriggja rétta kvöld­verð. Mið­viku­dag­inn 31 . mars fara her­leg­heitin fram og er miða­sala hafin. Lág­marks­fjöldi miða eru fjórir. Húsið opnar klukkan 18 og borð­hald hefst klukku­stund síðar. Boðið verður upp á þriggja rétta kvöld­verð...
List til styrktar góðu málefni – ætlar þú að vera með?
Mannlífið

List til styrktar góðu mál­efni – ætlar þú að vera með?

Litla Hönnunar Búðin og Litla Gallerý ætla að vera með upp­boð í Litla Gallerýi, þann 2. októ­ber næst­kom­andi til styrktar Mæðra­styrks­nefnd Hafn­ar­fjarðar. Upp­boðs­sýn­ing mun standa yfir dag­ana 2.-17.októ­ber í Litla Gallerýi við Strand­götu 19 í Hafn­ar­firði en gall­erýið er stað­sett inn af Litlu Hönn­un­ar­búð­inni. Gestir og gang­andi geta komið og boðið í verkin á meðan sýn­ingu stendur en allur ágóði...
100% Ull – sýning í Hönnunarsafni Íslands
Mannlífið

100% Ull – sýn­ing í Hönn­un­ar­safni Íslands

Ull er klass­ískur, nátt­úru­legur efni­viður með óend­an­lega mögu­leika. Á sýn­ing­unni getur að líta dæmi um vörur úr íslenskri ull sem hönn­uðir og hand­verks­fólk er að fást við í dag. Þátt­tak­endur sýn­ing­ar­innar koma frá ólíkum sviðum hönn­unar og hand­verks en eiga það sam­eig­in­legt að vinna af hug­vits­semi með íslensku ull­ina í sínum afurðum. Þátt­tak­end­urnir eru: Ást­hildur Magn­ús­dóttir, vef­ari; Magnea Ein­ars­dóttir, fata­hönn­uður;...
Villiblómið og Borgarhljóðvist í formi ensks lystigarðs – haustsýningar í Hafnarborg
Mannlífið

Villi­blómið og Borg­ar­hljóð­vist í formi ensks lysti­garðs – haust­sýn­ingar í Hafn­ar­borg

Haust­sýn­ingar árs­ins 2020 í Hafn­ar­borg bera heitið Villi­blómið og Borg­ar­hljóð­vist og opn­uðu þær þann 29. ágúst síð­ast­lið­inn. Í aðal­sal húss­ins fer sýn­ingin Villi­blómið fram en sýn­ing­ar­stjórar eru Becky Forsythe og Penelope Smart. Sýningin byggir á sam­starfi alþjóð­legra lista­manna frá Kanada og Íslandi en þeir beina sjónum sínum að plöntu­rík­inu og birt­ing­ar­myndum blóma á norð­ur­slóðum. Sýn­ing­ar­sal­ur­inn umbreyt­ist í engi fag­urra blóma,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins