„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Er mest í að pakka inn líffærum“

Sylvía Margrét Cruz er búsett í Kali­forníu í Banda­ríkj­unum þar sem hún stefnir á sér­nám í skurð­lækn­ingum. Sylvía sem er 23 ára gömul segir að and­lát móður hennar hafi átt þátt í því að lækn­is­fræðin varð fyrir val­inu sem ævi­starf. Á meðan Sylvía bíður eftir svörum frá lækna­skólum starfar hún við líf­færa­heimt sem hún segir erfitt en á sama tíma gef­andi starf.

„Er mest í að pakka inn líffærum“
Sylvía Margrét Cruz|Sylvía við útskrift úr líf­fræði (Biological Sciences) við Uni­versity of California

„Ég tók líf­fræði og efna­fræði og fannst þau fög mjög skemmti­leg og áhuga­verð. Ég var ein­hvern veg­inn hrædd við þessa áfanga fyrst, en svo leist mér mjög vel á þá,“ segir Sylvía, spurð af hverju lækn­is­fræði hafi orðið fyrir val­inu frekar en annað nám. „Ég held að lækn­is­fræðin sé svona áhuga­verð af því að nátt­úru­fræði, líf­færa­fræði og fleira bland­ast þar saman í starf sem felst í að hjálpa fólki. Líklega dró það mig að lækn­is­fræð­inni.“

Sylvía er fædd árið 1996 á Íslandi. Árið 2011 flutti hún til Banda­ríkj­anna ásamt föður sínum og systk­inum vegna vinnu hans. Þegar fjöl­skyldan flutti aftur heim árið 2017 varð Sylvía eftir. „Þá var ég búin með tvö ár í háskóla (college) hér úti og vildi halda áfram og fara í lækn­is­fræð­ina hér úti,“ segir Sylvía sem kláraði háskól­ann fyrir rúmu ári.

Öll árin var hún afbragð­snem­andi og á for­seta­lista skól­ans, svoköll­uðum Deans Honors list. „Við erum með það sem heitir Latin honors, þá er það topp 1% nem­enda sem fá við­ur­kenn­ingu sem heitir Summa Cum Laude, en ég var í Magna Cum Laude sem er topp 5% nem­enda eða næstu topp 5%,“ segir Sylvía hóg­vær yfir þessum árangri sínum.

Skóla­kerfið í Banda­ríkj­unum er öðru­vísi en kerfið hér heima, útskýrir hún. „Á Íslandi getur maður farið beint í lækn­is­fræði eftir mennta­skóla, en hér þarf að klára fyrst BA- eða BS-gráðu í hvaða fagi sem er, sem er fjög­urra ára nám. Þegar sú gráða er komin er loks hægt að sækja um í lækn­is­fræði sem er annað fjög­urra ára nám.“

Sylvía er sú fyrsta í fjöl­skyld­unni sem leggur stund á lækn­is­fræði þannig að eng­inn nákom­inn var fyr­ir­mynd hennar í því. Þegar hún var 12 ára gömul lést móðir hennar úr krabba­meini. „Já, and­lát hennar hafði örugg­lega mikil áhrif,“ segir Sylvía aðspurð um hvort það hafi haft áhrif á áhuga hennar á lækn­is­fræð­inni. „Það var mjög erfitt að missa mömmu, en ég fékk mik­inn stuðn­ing frá öllum, frænkum og frændum, við að takast á við miss­inn. Pabbi bjó í Banda­ríkj­unum á þessum tíma og flutti aftur heim til Íslands tveimur dögum eftir lát mömmu.“

Sylvía í færni rann­sókn­ar­stofu.

Fékk áfall er hún sá fyrsta líffæragjafann

Starf Sylvíu í Stanford-háskóla heitir organ procurement sem gæti á íslensku kall­ast líf­færa­heimt. Þegar Sylvía var í háskóla­nám­inu var hún dug­leg við að vinna sjálf­boða­liða­störf á spít­ala og fá að fylgj­ast með. „Eftir útskrift­ina úr líf­fræði fór ég að vinna í Stanford-háskól­anum og vann mikið með líf­færa­skurð­lækn­unum, fékk að fylgj­ast með og aðstoða þá, auk þess að horfa á margar aðgerðir,“ segir Sylvía og bætir við að það þurfi ýmist heppni eða kunn­ings­skap til að kom­ast í stöðu aðstoð­ar­manns.

„Í líf­fræð­inni var ég í sum­ar­prógrammi í skurð­lækn­ingum þar sem okkur var meðal ann­ars kennt að gera aðgerðir á svíns­hjörtum. Ég fór síðan að vinna með og skipu­leggja prógram­mið fyrir mann­inn sem sér um námið. Í kjöl­farið fór hann að taka mig með í skurð­að­gerðir sínar og mæla með mér áfram,“ segir Sylvía. „Það sem ég fæ greidd laun fyrir eru aðal­lega verk­efni sem fel­ast í að gera allt til­búið fyrir skurð­lækn­inn og ég er mest í að pakka inn líf­færum. Sem nemi má ég ekki gera mikið, en lækn­ir­inn er dug­legur að leyfa mér að hjálpa til, gera einn saum hér og þar, og finna fyrir hjart­anu sem dæmi.

Þegar við tökum líf­færi til rann­sókna má ég hins vegar gera meira, enda er líf­færið ekki gjafa­líf­færi í lif­andi mann­eskju, heldur ónot­hæft nema í rann­sóknir. Þá hef ég fengið að fjar­lægja hjarta úr líf­færa­gjaf­anum og fleira.

Þegar ég sá líf­færa­gjafa í fyrsta sinn var áfall að sjá hann liggja á borði og vera haldið á lífi með vélum,“ segir Sylvía spurð að því hvernig vinnan við líf­færa­heimt­ina sé. „Mér finnst þetta hins vegar mjög spenn­andi starf og adrena­línið kikkar inn. Og ég læri alltaf eitt­hvað nýtt þótt ég hafi verið við­stödd mjög margar aðgerðir.“

Á Íslandi eru allir líf­færa­gjafar sam­kvæmt lögum sem tóku gildi síð­ustu ára­mót, nema þeir hafi und­ir­ritað skjal um annað. Í Banda­ríkj­unum er því öfugt farið, ein­stak­lingar þurfa að sam­þykkja líf­færa­gjöf og nefnir Sylvía að þegar sótt er um öku­skír­teini sé hægt að merkja við slíkt sam­þykki. Stundum er sam­þykki um líf­færa­gjöf ekki til staðar og í þeim til­vikum þurfa ætt­ingjar að sam­þykkja hana fyrir hönd dauð­vona ætt­ingja, svona eins og við sjáum í banda­rískum kvik­myndum og sjón­varps­þáttum. En hefur hún eitt­hvað komið að slíku ferli?

„Nei, ég hef ekk­ert komið nálægt því. Þegar við fáum sím­tal er spít­al­inn búinn að sam­þykkja líf­færa­heimt, stundum er beðið í einn dag frá því að fjöl­skyldan er spurð og þar til við komum á stað­inn. Oft er þetta mikið ferli, mikið af papp­írum sem þarf að und­ir­rita og á meðan er líf­færa­gjaf­anum haldið lif­andi með vélum,“ segir Sylvía og bætir við að hún hafi hvorki hitt líf­færa­þega né aðstand­endur. Hins vegar segir hún að það sé alltaf ákveðið ferli fyrir líf­færa­heimt og hún hefur tekið þátt í því.

„Áður en líf­færa­heimt hefst er lesið upp bréf sem fjöl­skylda líf­færa­gjafans hefur skrifað um hann, svona svipað og minn­ing­ar­grein, hver hann var og hvað hann gerði. Einnig er stundum tekið mynd­band af öllum í skurð­stof­unni, við segjum til nafns og hvert okkar hlut­verk er og fjöl­skylda líf­færa­gjafans fær að sjá það mynd­band ef hún vill. Síðan er þagn­ar­stund í hálfa til eina mín­útu áður en haf­ist er handa.“

Er ein­hver líf­færa­heimt eft­ir­minni­legri en önnur?

„Verstu stund­irnar eru þegar koma lítil börn, það er erf­ið­ast, ég man eftir tveggja vikna barni sem hafði lát­ist sem var nátt­úr­lega afar sorg­legt, en á sama tíma hugs­aði maður um hina hlið­ina, að annað lítið barn hafi fengið nýtt hjarta eða annað líf­færi,“ segir Sylvía.

Í mörgum til­vikum eru líf­færa­gjafi og líf­færa­þegi hvor á sínum spít­al­anum, jafn­vel hvor í sínu fylk­inu og Sylvía hefur margoft flogið sem fylgd­ar­maður með líf­færi. „Við fljúgum með lít­illi einka­flug­vél og ég hef farið til Kanada og margra fylkja í Banda­ríkj­unum. Við förum ekki mikið lengra, þó að flogið hafi verið til Alaska og Hawaii, þar sem líf­færið þolir oft­ast mest átta klukku­stundir. Þegar um hjarta er að ræða reynum við að fara ekki yfir fjórar klukku­stundir. Tíminn sem miðað er við er frá því líf­færi er tekið úr gjafa þar til það er sett í þeg­ann.“

Sylvía, Michael og Paul Chang, yfir­maður þeirra, við einka­flug­vél­ina sem flytur líf­færi frá gjöfum til þega.

Komin í alvöruvinnu eftir áratug

Ljóst er að lækna­námið fram undan verður bæði langt og strangt. „Lækna­námið tekur fjögur ár og ef ég fer í skurð­lækn­inn eru það fimm ár til við­bótar. Ég verð orðin rúm­lega þrí­tug þegar ég verð komin með alvöru­vinnu,“ segir Sylvía og hlær.

„Í lækn­is­fræð­inni sjálfri eru engin laun og maður tekur lán fyrir öllu. Ég hef verið að skoða kostn­að­inn í nokkrum skólum og nem­end­urnir þar eru yfir­leitt með lán upp á um 280 þús­und doll­ara eftir fjög­urra ára nám,“ segir Sylvía. „En þegar ég verð komin í sér­hæft nám fæ ég laun, en vinnu­tím­inn er hins­vegar 80 tímar á viku. Þetta er sem sagt mikið álag og langur vinnu­tími.“

Þessu til við­bótar fylgir svo heima­lær­dómur, hefur Sylvía tíma fyrir eitt­hvað annað? „Ég veit það ekki,“ segir hún og hlær.

Gríðarleg samkeppni um háskólanám

Sylvía ákvað að taka sér tveggja ára frí eftir að hún lauk líf­fræði­nám­inu fyrir rúmu ári, sækja um lækna­há­skóla og vinna. Er það ekki ókostur fyrir frekara nám að taka sér pásu? „Nei, alls ekki, flestir skólar kunna að meta að nem­endur hafi reynslu að baki, ekki bara bók­nám. Með­al­aldur lækna­nema hér er 24 ár, margir taka hlé til að vinna á rann­sókn­ar­stofu, fara til útlanda, fara í masters­pró­gramm á milli, bara svo dæmi séu tekin. Svo lengi sem maður sýnir áhuga og gerir eitt­hvað tengt lækn­is­fræð­inni,“ segir Sylvía, sem er á fullu að sækja um í lækna­há­skólum um þessar mundir.

„Þetta er 15 mán­aða ferli frá því sótt er um og þar til umsókn er sam­þykkt og hægt er að hefja nám. Ég veit ekki alveg hvernig þetta er á Íslandi, hérna er hægt að vera með full­komnar ein­kunnir og full­komið próf, en samt ekki kom­ist inn ef reynsl­una skortir. Sam­keppnin er mikil, ég held að í flestum skólum sæki yfir­leitt 10 þús­und nem­endur um og keppa um 150 sæti. Í alla skól­ana koma umsóknir frá um 50 þús­und nem­endum á hverju ári og um 20 þús­und kom­ast inn. Flestir sækja um svona 20 skóla, ég sótti um 36,“ segir Sylvía og hlær, en hún er þegar búin að fá inn­göngu í nokkra skóla. „Ég hef tvær vikur til að segja já eða nei við boði hvers skóla, en svo má ég halda eins mörgum boðum og ég vil opnum þar til í apríl. Um miðjan apríl þarf ég að fækka þeim í þrjá skóla og í lok apríl þarf ég að velja einn þeirra. Ég þarf því ekki að stressa mig of mikið við að velja strax, sem er mjög gott. Per­sónu­lega langar mig til að vera í Kali­forníu ef ég get það, fyrst og fremst af því að ég hef búið hér í átta ár þannig að Kali­fornía er „heima“ og út af veðr­inu. Segjum að ég kom­ist inn í nokkra skóla hér, þá er spurn­ing hvað þeir vilja veita mér mik­inn náms­styrk svo ég viti hversu hátt lán ég þarf að taka á móti,“ segir Sylvía. „Og það skiptir líka máli á hvaða spít­ala þeir sem útskrif­ast fara að vinna á, það er líka mikil sam­keppni að kom­ast í starf á góðum spít­ala. Margir í Kali­forníu vilja vera þar og mikil sam­keppni. Það er hins vegar hægt að vinna starfs­námið (residency), hvar sem er í Banda­ríkj­unum.“

Sylvía og kærast­inn, Michael Wong, eru sam­taka í námi og starfi.

Kærastinn stuðningur en ekki samkeppni

Sylvía er þó ekki ein í Banda­ríkj­unum, því hún býr með kærasta sínum, Michael Wong, sem er í sömu stöðu og hún, að sækja um í lækna­há­skólum.

„Við kynnt­umst í mennta­skóla og höfum verið saman í sex ár, fórum í sama háskóla og sóttum um í sömu lækna­skólum. Núna erum við bæði í við­tölum vegna umsókn­anna og bíðum eftir svörum um hvar við komumst inn,“ segir Sylvía.

Ríkir sam­keppni á milli þeirra? „Nei, alls ekki, við erum með svip­aðar ein­kunnir og inn­töku­próf, svip­aða reynslu þannig að það við lærum frekar saman og styðjum hvort annað,“ segir Sylvía.

Margir lækna­nemar á þeirra aldri og aðeins eldri hafa stofnað fjöl­skyldu og eign­ast börn meðan á nám­inu stendur og segir Sylvía marga lækna­há­skóla hjálpa barna­fjöl­skyldum með styrkjum og dag­vistun. Einnig segir hún flesta nema dug­lega að finna sér tóm­stundir. „Hver árgangur er með eigið fót­boltalið, blaklið og fleira. Og hver árgangur hitt­ist og gerir alls konar saman. Það gefa sér flestir tíma fyrir annað með námi og vinnu.“

Aðspurð um hvort hún ætli að koma heim til Íslands að námi loknu, seg­ist Sylvía hafa hugsað um það en sjái þó fyrir sér að vinna í Banda­ríkj­unum. „Margir lækna­nemar fara og vinna ann­ars staðar í Banda­ríkj­unum eða í öðru landi í nokkra mán­uði. Það væri spenn­andi að gera það, en maður veit aldrei. Enda kannski óþarfi að hugsa það strax, þar sem minnst níu ár eru í útskrift.“

Faðir Sylvíu og þrjú hálf­systk­ini hennar búa á Íslandi, en hvernig er að vera svona langt frá þeim? „Það var erfitt fyrst en við tölum saman á Facetime dag­lega sem gerir þetta allt auð­veld­ara. Ég reyni að koma heim einu sinni á ári, tvisvar ef ég get. Litla systir mín, tíu ára, vex og dafnar og það er svo­lítið erfitt að missa af því öllu, en tæknin gerir allt miklu auð­veld­ara,“ segir Sylvía.

En saknar þú Íslands? „Já, ég geri það, það er allt öðru­vísi umhverfi hérna en ég sakna mat­ar­ins mest: lamba­kjöts­ins, pylsanna, nammi­bars­ins og íss­ins, ég er alltaf spennt­ust fyrir ísnum,“ segir Sylvía og hlær og bætir við að lokum að skortur sé á góðri sósu með mat í Banda­ríkj­unum, aðeins flöskusósur séu í boði.

Sylvía ásamt föður sínum og yngri systk­inum í Dis­neylandi í Kali­forníu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins